Morgunblaðið - 09.09.2008, Page 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 9. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
ORKUVEITA Reykjavíkur hvetur til þess að
rannsakað verði ofan í kjölinn hvort gróð-
urskemmdir vestan Reykjafells á Heng-
ilssvæðinu tengist starfsemi Hellisheiðarvirkj-
unar. Starfsmenn Náttúrufræðistofnunar
skoðuðu í gær stórt svæði frá hringveginum að
virkjuninni og út í Svínahraun, þar sem mjög
gamall mosi af tegund sem nefnist hraungambri,
hefur látið mjög á sjá.
Haft er eftir Hjörleifi Kvaran, forstjóra Orku-
veitunnar, í tilkynningu þaðan, að slæmt sé að
horfa upp á þessar skemmdir á svæðinu en hann
vekur athygli á því að virkjunin á Nesjavöllum
hafi verið starfrækt í hartnær tvo áratugi án þess
að svipaðra gróðurskemmda hafi orðið vart.
Sennilega brennisteinsvetni
Sigurður H. Magnússon, gróðurvistfræðingur
hjá Náttúrufræðistofnun, segir í samtali við Þóru
Kristínu Ásgeirsdóttur á vefvarpi Morgunblaðs-
ins að nær öruggt sé að um mengun sé að ræða,
sennilega af völdum brennisteinsvetnis. Hann
segir að skemmdirnar séu ekki ólíkar skemmdum
af völdum bruna og það geti tekið mosann mjög
langan tíma að jafna sig. Sé mengunin viðvarandi
jafni hann sig væntanlega aldrei. Þá verði þetta
svæði mjög gróðurlítið þegar fram líða stundir.
Gróðurskemmdir verði rannsakaðar
Eftir að Hellisheiðarvirkjun tók til starfa hefur gamall mosi drepist á stóru svæði í nágrenninu
Vistfræðingur hjá Náttúrufræðistofnun telur orsökina líklega mengun af brennisteinsvetni
Í HNOTSKURN
»Fyrsti áfangi Hellisheið-arvirkjunar var tekinn í
notkun árið 2006. Virkjunin
framleiðir nú 90MW og er
svipuð að afköstum og Nesja-
vallavirkjun, þar sem tals-
menn OR segja viðlíka gróð-
urskemmdir ekki sjást.
»Mosi hefur drepist í skjóliáveðurs á svæðinu. Því
eru skemmdirnar ekki taldar
vera vegna veðurfars.
Morgunblaðið/Magnús Bergmann
Mengun? Mosi hefur drepist á milli Hellisheiðarvirkjunar og Svínahrauns og út að hringveginum.
Gróður drepst vegna mengunar
mbl.is | Sjónvarp
FRÉTTASKÝRING
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
GÖNGUDEILD Barna- og ung-
lingageðdeildar Landspítalans
(BUGL) er að flytja í nýtt 1.244 m2
hús á Dalbraut 12 í Reykjavík. Guð-
laugur Þór Þórðarson heilbrigð-
isráðherra tekur húsið formlega í
notkun við hátíðlega athöfn sem
hefst kl. 14. Nýja göngudeildin verð-
ur opin almenningi til skoðunar á
morgun kl. 14-16.
Ólafur Ó. Guðmundsson, yf-
irlæknir á BUGL, segir að nýja
byggingin sé bylting hvað aðstöðu
varðar. „Þetta er í fyrsta sinn í Ís-
landssögunni sem bygging er sér-
staklega hönnuð og byggð fyrir geð-
heilbrigðisþjónustu við börn og
unglinga.“
Nýja húsið er tvær hæðir og jarð-
hæð og tengt eldra húsi BUGL með
glerjuðum tengigangi. Ný aðkoma
var gerð að húsinu frá Dalbraut þar
sem eru bílastæði. Húsnæði göngu-
deildar BUGL mun nálægt því þre-
faldast að stærð við flutninginn. Við-
bótin mun bæta alla aðstöðu, ekki
síst við móttöku sjúklinga. Nýbygg-
ingin kemur einnig legudeildum
BUGL, bæði barna- og unglinga-
deild, til góða því þær munu fá til af-
nota um 400 m2 sem göngudeildin
hefur notað til þessa. Í næsta áfanga
endurbóta og stækkunar húsnæðis
BUGL er á dagskrá að lagfæra það
húsnæði sem nú losnar. Ólafur sagði
áherslu lagða á að hefja endurbæt-
urnar sem fyrst því þrengslin há
legudeildunum. M.a. hafa stofnanir
sem sinna eftirliti gert athugasemd-
ir vegna þrengslanna þar.
Hjá BUGL starfa nú rúmlega 100
manns. Um fjórðungur sinnir um 17
stöðugildum á göngudeild. Hinir
starfa á legudeild og dagdeild. Ólaf-
ur vonaði að hægt yrði að fjölga
starfsmönnum svo betur gengi að
vinna á biðlista. Frá því snemma í
vor hefur verið starfrækt svonefnd
„laugardagsklíník“ þar sem starfs-
menn hafa unnið utan hefðbundins
vinnutíma í málum af biðlistanum.
Þriðji áfanginn í uppbyggingu á
Dalbraut er bygging nýs húss fyrir
útibú Brúarskóla og iðjuþjálfun.
Nýbyggingin var boðin út í des-
ember 2006 og átti Framkvæmd ehf.
lægsta tilboðið. Fyrsta skóflustunga
var tekin 20. febrúar 2007. Arkis ehf.
teiknaði húsið, Landhönnun ehf.
hannaði lóðina, Línuhönnun hf.
hannaði burðarþol og lagnir og Raf-
tæknistofan ehf. hannaði raflagnir.
Margir hafa stutt við byggingu
nýja hússins. Auk framlags ríkisins
upp á um 200 milljónir og sölu Kleif-
arvegar 15, en andvirði þess húss
rann til byggingarinnar, gaf Kven-
félagið Hringurinn 50 milljónir
króna til verksins. Auk þess hafa
samtök á borð við Barnaheill, Thor-
valdsenskonur, Kiwanismenn,
Lionsmenn og fleiri lagt lið.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Viðbót Unnið var hörðum höndum í gær að því að ljúka frágangi utanhúss við nýja göngudeild BUGL við Dalveg. Húsið verður tekið í notkun í dag.
Rýmkast um BUGL
Fyrsta húsið á Íslandi sem er hannað sérstaklega til geðheilbrigðisþjónustu fyrir
börn og unglinga tekið í notkun í dag Bylting, segir yfirlæknir deildarinnar
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
féllst í gær á kröfu lögreglustjórans
í Reykjavík um áframhaldandi
gæsluvarðhald yfir karlmanni á
fimmtugsaldri, eða til 15. sept-
ember nk. Maðurinn er grunaður
um að hafa ráðist á 68 ára gamlan
karlmann, Jóhannes Guðmundsson,
í íbúð hins síðarnefnda við Skúla-
götu. Bráðabirgðaniðurstöður
krufningar leiddu í ljós að hann lést
af völdum höfuðáverka.
Tveir menn voru upphaflega
færðir í gæsluvarðhald. Öðrum
þeirra, karlmanni á sextugsaldri,
var sleppt úr haldi síðdegis í gær.
Ekki er talið að hann tengist mál-
inu, svo saknæmt sé, en hann vísaði
lögreglu höfuðborgarsvæðisins á
hinn látna á mánudag fyrir viku.
andri@mbl.is
Talinn hafa
valdið dauða
mannsins
NÚ ER hægt að deila fréttum á
mbl.is með vinum á Facebook-
vefþjónustunni. Sá sem það hyggst
gera smellir á
tengilinn
„Senda á Face-
book“ sem
fylgir öllum fréttum á mbl.is og þá
birtist tilvísun í frettina í Facebook-
prófíl viðkomandi.
Ingvar Hjálmarsson netstjóri
mbl.is telur að með þessu muni
fréttir mbl.is fá enn víðtækari
dreifingu á netinu þar sem face-
book-tengslavefurinn nýtur mikilla
vinsælda. „Facebook hefur á
skömmum tíma náð mikill út-
breiðslu og með þessari bættu þjón-
ustu við lesendur mbl.is tel ég að
vinsældir mbl.is komi til með að
aukast enn frekar.“ Ingvar sagði
jafnframt að lesendur mbl.is hefðu
löngum haft gaman af því að senda
hver öðrum fréttir af vefnum en nú
gætu menn bætt þeim beint inn á
facebook síður sínar.
Facebook-
tenging á mbl.is
TVEIR karlmenn voru í gær úr-
skurðaðir í gæsluvarðhald vegna
hnífaárásar í Norðurmýri um
helgina. Mennirnir sæta varðhaldi
til 12. september.
Lögregla leitar auk þess tveggja
manna til viðbótar sem taldir eru
viðriðnir málið. andri@mbl.is
Varðhald
vegna árásar
Hvað er BUGL?
Barna- og unglingageðdeild Land-
spítalans er sérhæfð í að meta og
meðhöndla geðraskanir barna og
unglinga. Einnig fara þar fram
kennsla, handleiðsla og rannsóknir
fagstétta. Þá veitir deildin ýmsa
þjónustu öðrum deildum og stofn-
unum sem sinna börnum, unglingum
og fjölskyldum þeirra.
Hvernig skiptist starfsemin?
Á BUGL eru göngudeild og inn-
lagnadeildir.
Göngudeildin fær allt að 7.000 heim-
sóknir á ári en skjólstæðingarnir eru
mun færri því sumir koma oft í heim-
sókn. Ný mál á hverju ári eru 300-
400 talsins.
Innlagnadeild skiptist í barnadeild,
sem ætluð er börnum til 12 ára ald-
urs, og unglingadeild fyrir 12-18 ára
börn.
Á lóð BUGL er Brúarskóli með útibú.
Hann er sérskóli fyrir nemendur sem
eiga við geðræna erfiðleika að etja
og dvelja á BUGL.
S&S