Morgunblaðið - 09.09.2008, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. SEPTEMBER 2008 13
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
!!
!"#$%&%" '
5!6 /!+
5 *7 /!+
8 " *7 /!+
,9 /!+
*& & /!+
!+ ,
7 !: 1 &
;6 & *7 /!+
< 7(& 8 & /!+
3 & & 1 & /!+
. /!+
)= >4
)
'8$ 2 ?2!++ /!+
@ /!+
())'$*$+,-&&
5 &6 5A -
5 &6 =
=B?
, 8 &
?C- 8 &
4D/ /!+
E-
/!+
F&&$& /!+
$ .$,
&)/
G&- 5
&
G+
8 * & /!+
7$ & /!+
0-12&
%3$-
4567
859:
/6540
95 8566
0576
/0586
90500
/75 18560
758:
1599
:8590
/00500
446500
/1500
40500
/510
/5/:
1560
740500
#
#
F$ 7
&
E$
< 7 )
+H + + ++ +IHI+ ++ +I+ + +H+ I+H+ I
+I+I
+ +I ++ + +HH+H + H+ H
H+ + +I+H
'
'
'
+II+HI
'
'
H HJ I '
'
'
'
'
JH
HJI
HJH
I JH
HJ ?
"$ 7
H
'
'
'
'
'
'
0 &&
"$ +"$
H+I+ H+I+ H+I+ H+I+ H+I+ H+I+ H+I+ H+I+ H+I+ H+I+ H+I+ H+I+ H+I+ +I+ H+I+ H+I+ H+I+ +H+ H+I+ +H+ 5E
5E
>.K 4
>.K
807
164
;/54
;751
L
L
>.K 5
6 8K
/*/1
777
;757
;/58
L
L
0A M&
4 N
*6 /*/90
;/54
;054
L
L
?E),
05K
6*884
4*/48
;75:
;/5/
L
L
>.K >.K 8* :7/
;58
;/51
L
L
ÞETTA HELST ...
Eftir Bjarna Ólafsson
bjarni@mbl.is
EKKI ber á öðru en að fjárfestar
hafi tekið fagnandi fregnum af yf-
irtöku bandarískra yfirvalda á íbúða-
lánasjóðunum Fannie Mae og
Freddie Mac. Í Bandaríkjunum
hækkaði Dow Jones-vísitalan um
2,58% og S&P 500 um 2,05%.
Gera fjárfestar ráð fyrir því að nú
megi sjá fyrir endann á þeirri óvissu
sem ríkt hefur um ástand fasteigna-
lánamarkaðarins, en eins og allir vita
liggja rætur yfirstandandi hremm-
inga á mörkuðum í fasteignalána-
markaðnum bandaríska.
Styðja við skuldabréfin
Inngripum bandaríska ríkisins er
m.a. ætlað að verja þá fjárfesta sem
keypt höfðu sérvarin skuldabréf frá
Fannie og Freddie. Talið er að slík
bréf að andvirði um 5.000 milljarða
dala séu í eigu seðlabanka og ann-
arra fjárfesta um allan heim. Það
kemur því ekki á óvart að seðla-
bankastjórar í Evrópu og Asíu hafi
tekið ákvörðun Bandaríkjastjórnar
vel. Jean-Claude Trichet, banka-
stjóri Seðlabanka Evrópu, sagði
ákvörðunina mikilvæga og velkomna
í ljósi aðstæðna. Masaaki Shirakawa,
seðlabankastjóri Japansbanka, tók í
sama streng og sagðist vona að
ákvörðunin myndi leiða til meiri
stöðugleika á bandaríska skulda-
bréfamarkaðnum.
Ljóst er hins vegar að einhverjir
munu tapa háum fjárhæðum á inn-
gripum ríkisins og í þeim flokki eru
einkum þeir sem keypt höfðu hluta-
bréf í sjóðunum tveimur. Ríkið mun
geta eignast allt að 79,9% í hvorum
sjóði fyrir sig og greiða fyrir hlutinn
lítið fé. Þeir sem eiga fyrir hlutabréf
í sjóðunum sjá því fram á að eign
þeirra muni þynnast til muna á
næstu mánuðum og mun tapið nema
milljörðum dala.
Framtíð sjóðanna er óljós, en
reikna má með því að hart verið tek-
ist á um málefni sjóðanna á næstu
misserum. Hefur fjármálaráðherra
Bandaríkjanna, Henry Paulson,
sagst vilja minnka mjög útlánasöfn
sjóðanna, en demókratar á þingi
hafa tekið slíkum hugmyndum illa.
Forstjórum sjóðanna tveggja hef-
ur verið sagt upp, en þeir gætu geng-
ið út með allt að 15 milljónir dala
hvor vegna starfslokasamninga.
Yfirtöku alríkisins vel tekið
Í HNOTSKURN
» Fannie Mae var stofnaðurárið 1929 og Freddie Mac
árið 1970.
» Sjóðunum var ætlað aðauðvelda Bandaríkja-
mönnum að eignast eigið hús-
næði með því að veita þeim
greiðari aðgengi að lánsfé.
» Staða þeirra hefur verið áreiki. Sjóðirnir eru í einka-
eigu, en hafa notið stuðnings
ríkisins og því verið eins kon-
ar hálfopinberar stofnanir.
Markaðir hækkuðu í kjölfar yfirtöku bandaríska ríkisins á lánasjóðunum Fannie
Mae og Freddie Mac Erlendir seðlabankastjórar fagna ákvörðuninni
Reuters
Dýrt Yfirtaka bandarískra yfirvalda á sjóðunum kann að kosta þarlenda
skattborgara stórfé, en ríkið segir aðgerðaleysi myndu hafa verið dýrara.
● ÚRVALSVÍSITALA Kauphallarinnar
styrktist um 1,35% í gær og var
lokagildi hennar við lokun markaða
4.112,56 stig. SPRON hækkaði
mest félaga á aðallista Kauphall-
arinnar, um 7,38%, og þá hækkaði
Exista um 5,65%. Bréf Eimskipa-
félagsins lækkuðu hins vegar um
16,46% og var það eina félagið í úr-
valsvísitölunni sem lækkaði í gær.
Gengi krónunnar veiktist um
1,25% og var lokagildi gengisvísitöl-
unnar 166,1 stig. bjarni@mbl.is
Hækkanir í Kauphöll
● AFSKIPTI
stjórnmála-
manna af af-
drifum Hróars-
keldubanka eru
hafin en Rune Vi-
berg sem situr í
bæjarráði Hró-
arskeldu fyrir
hönd jafn-
aðarmanna, hefur lagt fram kæru á
hendur stjórnenda bankans. Viberg
er ekki hluthafi í bankanum sjálfur
en börn hans eiga hlut sem er einsk-
is virði í dag, samkvæmt frétt á vef
Børsen. Hróarskeldubanki lenti í al-
varlegum vandræðum í sumar og svo
fór fyrir skömmu að danski seðla-
bankinn tók hinn fyrrnefnda yfir.
guna@mbl.is
Kærir stjórnendur
ASKAR Capital skilaði 961 milljón
króna í tap á fyrri helming ársins. Á
sama tíma í fyrra var hagnaður fé-
lagsins 207 milljónir, en bankinn
hafði þá nýlega tekið til starfa.
Sé litið á grunnrekstur bankans
voru hreinar vaxtatekjur neikvæðar
um 47 milljónir króna og hreinar
þóknanatekjur stóðu nánast í stað
milli ára. Fyrstu sex mánuði þessa
árs voru hreinar þóknanatekjur 576
milljónir króna en 551 milljón árið
2007. Benedikt Árnason, forstjóri
Askar Capital, bendir á að bankinn
var að hefja starfsemi sína á fyrri
hluta ársins 2007.
Afskriftarreikningur stækkar
Askar Capital færir 748 milljónir
króna á afskriftarreikning. Eru alls
938 milljónir á afskriftarreikningi fé-
lagsins. „Rétt um 500 milljónir eru
varúðarniðurfærslur vegna bílalána-
fyrirtækisins Avant sem er 100% í
eigu Askar Capital. Og það er lítið
sem ekkert af töpuðum útlánum hjá
Avant en vanskil eru að aukast,“
bendir Benedikt á, „þannig að ekki
er annað forsvaranlegt en að bæta
dálítið ríflega við afskriftarreikn-
ing.“
Benedikt er ekki sáttur við þetta
hálfsársuppgjör. „Það eru vonbrigði
að það skuli vera tap á rekstrinum á
fyrri hluta ársins, þó svo að tapið
komi að mestu til vegna varúðar-
færslu vegna útlána. Við erum hins
vegar í aðgerðum til að tryggja það
að þóknanatekjur bankans dekki all-
an rekstrarkostnaðinn. Það tókst
ekki á fyrri helmingi ársins en í
fréttatilkynningu segjum við að gert
sé ráð fyrir að rekstrarkostnaður á
fjórða ársfjórðungi verið 35% lægri
en á öðrum ársfjórðungi.“
Benedikt segir það gert með sölu á
eignum og með fækkun starfsfólks.
bjorgvin@mbl.is
Vanskil á bílalánum Avant
aukast á fyrri helmingi árs
Askar tapar 961
milljón króna frá
janúar til júní
Morgunblaðið/Eggert
Stjóri Benedikt Árnason stýrir nú
Askar eftir að Tryggvi Þór Her-
bertsson fór í forsætisráðuneytið.
HLUTABRÉF í Eimskipafélagi Ís-
lands lækkuðu um 16,5% í Kauphöll
Íslands í gær. Endaði gengi félags-
ins í 10,35. Í september fyrir ári stóð
gengið í kringum 40. Miðað við geng-
ið 10,23 er markaðsverðmæti Eim-
skips tæpir 20 milljarðar króna.
Veltan með bréfin í gær nam tæpum
53 milljónum króna.
Eimskip hefur tilkynnt að það
kynni níu mánaða uppgjör sitt á
fimmtudaginn 11. september.
Engar sérstakar fréttir bárust af
félaginu í gær sem höfðu bein áhrif á
þessa lækkun. Flest önnur félög í ís-
lensku kauphöllinni hækkuðu í verði.
Í samtölum við nokkra einstak-
linga sem fylgjast með markaðnum
mátti heyra að margir byggjust við
fréttum af Eimskipi á næstunni. Er
því spáð að salan á XL Leisure
Group gangi til baka. Eimskip er enn
í ábyrgð fyrir 280 milljón dollara lán
þess félags sem ekki hefur enn tekist
að fjármagna. Gangi það eftir mun
að öllum líkindum koma til hlutafjár-
aukningar. Þær væntingar hafi áhrif
á gengi félagsins. bjorgvin@mbl.is
Óvissa lækkar bréf
í Eimskipafélaginu
Hlutabréf félagsins féllu um 16,5% í gær
● GLITNIR hefur haft milligöngu um
180 milljóna bandaríkjadala lánafyr-
irgreiðslu fyrir Nevada Geothermal
Power Inc. Í tilkynningu segir að
fyrirgreiðslan verði nýtt til að fjár-
magna fyrsta áfanga í byggingu jarð-
hitavers í Nevada. Framleiðslugeta
verður 49,5 MW og verður raforkan
seld Nevada Power Company með
samningi til 20 ára. Þegar orkuverið
tekur til starfa undir lok árs 2009
mun það sjá íbúum í suðurhluta Ne-
vada fyrir orku, en íbúum svæðisins
hefur fjölgað töluvert. bjarni@mbl.is
Fyrirgreiðsla til bygg-
ingar jarðhitavers
● GLITNIR hefur keypt 8,89% hlut í
Atorku Group, en greint var frá kaup-
unum eftir lokun Kauphallarinnar í
gær. Um var að ræða 300 milljónir
hluta og voru þeir keyptir á genginu
4,785. Er kaupverðið því um 1,4
milljarðar króna. Seljandi bréfanna
var Atorka, sem á eftir viðskiptin
tæplega 10,4 milljónir eigin hluta.
bjarni@mbl.is
Glitnir kaupir í Atorku
fyrir 1,4 milljarða
HEIMSMARKAÐSVERÐ á olíu
lækkaði umtalsvert í gær og nálgast
verð á Brent Norðursjávarolíu nú
100 dali á fatið. Eftir 1,29% lækkun
var verðið um 101,5 dalir í gær.
Styrking dollars gagnvart evru hef-
ur haft áhrif, en þar sem olíuverð er
ætíð reiknað í dollurum lækkar það í
takt við styrkingu dalsins.
Þá kom í ljós að aðildarríki sam-
taka olíuframleiðsluríkja, OPEC,
framleiddu töluvert umfram sjálf-
skipaðan kvóta og hefur aukið fram-
boð eðlilega áhrif á verðmyndun.
Kvótinn gerir ráð fyrir því að aðild-
arríki framleiði ekki meira en 29,7
milljónir fata á dag, en aðildarríkin
munu hafa framleitt um 600.000 föt
umfram kvóta í ágúst
Enn er óljóst hver áhrif fellibyls-
ins Ike verða á olíumannvirki við
Mexíkóflóa, en þrátt fyrir það voru
áhyggjur af framvindu mála ekki
nægar til að koma í veg fyrir áfram-
haldandi lækkun olíuverðs.
bjarni@mbl.is
Enn lækkar
olíuverð
TÉKKNESKI fjárfestingabankinn
Wood & Company jók í ágústmánuði
hlutdeild sína í miðlun verðbréfa í
kauphöllum utan Tékklands sam-
kvæmt tilkynningu frá Straumi fjár-
festingabanka, sem á helmingshlut í
fjármálafyrirtækinu.
Hlutdeild Wood í viðskiptum í
kauphöllinni í Varsjá í Póllandi nam
6,4% í ágúst og hefur aldrei verið
meiri samkvæmt Straumi. Þá jókst
hlutdeild Wood í kauphöllinni í
Búdapest í Ungverjalandi umtals-
vert eða upp í 8,7% af veltu.
bjorgvin@mbl.is
Velta Wood
að aukast
Morgunblaðið/Golli
Stjórar Forstjóri Wood, Jan Sykora,
og William Fall, forstjóri Straums.