Morgunblaðið - 09.09.2008, Síða 19
heilsa
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. SEPTEMBER 2008 19
Eftir eitt sólríkasta og besta sumar
í mörg ár, fer að halla að hausti hér
eins og annars staðar á landinu.
Göngur og rétti hafnar og ættu
dilkar að koma vænir af fjalli og
ekki hefur heyrst að gangnamenn
hafi orðið varir við nein aðskotadýr
á afréttinum, svo sem ísbirni eða
annað slíkt.
Slátrun fór vel af stað í síðustu
viku hjá Sláturhúsi KS, en þá var
slátrað um 12.000 dilkum, að sögn
Ágústs Andréssonar sláturhús-
stjóra, og met í upphafsviku, þá
sagði hann að í haust væri gert ráð
fyrir að tekið yrði á móti 110 til 115
þúsund dilkum, sem er veruleg
aukning frá fyrra ári, enda leituðu
bændur eftir því hvar best afurða-
verð fengist, og sagði Ágúst að
verðhækkun milli ára væri um
22,5% og skilaði KS sláturhúsið
hæsta verði sláturleyfishafa til
bænda. Við slátrunina vinna nú um
130 manns, þar af tæplega 90 út-
lendingar, en Ágúst sagði hér vera
um að ræða að mestu sama kjarna
sem kæmi ár eftir ár til starfa hjá
sláturhúsinu.
Á Sauðárkróki og í Skagafirði hef-
ur atvinnuástand verið og er gott,
ekki hefur orðið vart niðursveiflu.
Enda þenslueinkennin sem þjakað
hafa suðvesturhornið ekki náð hing-
að norður og þar af leiðandi er
mannlífið hér í þokkalegu jafnvægi
og menn horfa með jafnaðargeði til
komandi vetrar. Allir grunnskól-
arnir eru komnir í gang og aðsókn
að Fjölbrautaskólanum er með
ágætum, um 470 nemendur, og þar
af 100 á heimavist. Nýmæli við
skólann er skrifstofubraut, og þá er
einnig aftur tekið til við kennslu
sjúkraliða eftir nokkurt hlé, en 20
nemendur í þessu námi sem nefnt
hefur verið sjúkraliðabrú, er fólk
sem nú aflar sér réttinda, en hefur
starfsreynslu frá sjúkrastofnunum.
Á næstu dögum verður hafist
handa við útlagningu svonefnds
Suðurgarðs við Sauðárkrókshöfn,
en hann verður um 350 metra lang-
ur og mun með garðinum fást kyrrð
í höfnina, þannig að öll skip ættu að
vera þar örugg, jafnvel í verstu
veðrum. Fram hafa farið miklar
rannsóknir og líkanagerð af höfn-
inni á vegum Siglingastofnunar, og
taldist þessi framkvæmd skila best-
um árangri. Kostnaðaráætlun við
verkið var 134 milljónir, en lægsta
tilboð í verkið áttu Víðimelsbræður,
94,5 milljónir eða um 70% af áætl-
uðu kostnaðarverði. Verklok verða í
febrúar næstkomandi. Að sögn
Gunnars Steingrímssonar hafn-
arvarðar er veruleg aukning á sjó-
flutningum til Sauðárkróks, en slík-
ir flutningar höfðu nánast lagst af.
Með auknum kostnaði við landflutn-
inga hefur komum flutningaskipa
hins vegar fjölgað og t.d. hefur á
síðustu dögum verið skipað upp um
800 tonnum af frosinni rækju, sem
áður kom öll landleiðina frá Reykja-
vík.
Þá er Íslandspóstur að reisa nýtt
pósthús á Sauðárkróki og er það
byggingarfyrirtækið K-tak sem
annast þær framkvæmdir.
Á vegum Kaupfélags Skagfirðinga
er í byggingu nýtt bílaverkstæði á
hafnarsvæðinu, en þar er um að
ræða um 3.000 ferm. byggingu sem
auk verkstæðisins mun hýsa starfs-
mannaaðstöðu véla- og rafmagns-
verkstæðis. Gunnar Valgarðsson,
yfirmaður verkstæðisins, taldi að
unnt yrði að flytja starfsemina í
nýju bygginguna upp úr áramótum.
Þá er verið að endurbyggja og
stækka vinnslurými fyrir ost, svo
og starfsmannaaðstöðu við Mjólk-
ursamlag KS, en með aukinni fram-
leiðslu og meiri fjölbreytni í osta-
gerðinni var orðið verulega þröngt
um framleiðsluna.
SAUÐÁRKRÓKUR
Eftir Björn Björnsson
Morgunblaðið/ÞÖK
Sláturtíð Slátrun fór vel af stað hjá
Sláturhúsi KS í síðustu viku, en þá
var slátrað 12.000 dilkum.
úr bæjarlífinu
NÝLEGAR rannsóknir hafa leitt í ljós
að leið barna til að flýja fjölskyldu-
vandamál liggur oft í því að borða óholl-
an mat. Frá þessu er sagt á vefmiðli
MSNBC. Ástæðan fyrir því að milljónir
fátækra barna í Bandaríkjunum verða
of feitar fyrir tíu ára aldur geta þannig
legið í því að mæður þeirra eru haldnar
mikilli streitu, sem hefur síðan þau
áhrif á börnin að þau leita huggunar
vegna álagsins heima við með því að
borða óhollustu.
„Ástæða streitu foreldranna liggur
oft í fátæktinni og eilífum fjárhags-
áhyggjum, vinnuálagi, ófullnægjandi
sjúkratryggingum og fleiru,“ segir
Craig Gundersen sem leiddi rannsókn-
ina hjá háskólanum í Illinois. „Við fund-
um út að sívaxandi streita mæðra er rík-
ur þáttur í yfirþyngd barna þeirra.
Þetta á sérstaklega við um börn á aldr-
Streita mæðra og
holdafar barna
Reuters
Yfirþyngd Börn, líkt og þeir sem eldri eru, eiga það til að borða sér til huggunar.
inum þriggja til tíu ára því eldri börn
geta leitað huggunar fyrir utan heim-
ilið, ýmist hjá vinum eða í vinnu,“ segir
Craig og bendir á að nauðsynlegt sé að
hjálpa mæðrunum til að hjálpa börn-
unum. Þannig megi að hluta til taka á
offituvanda barna í Bandaríkjunum en
þar eiga 17 prósent barna á aldrinum 2-
19 ára við offituvanda að stríða og önn-
ur 16 prósent eru yfir meðalþyngd.
Niðurstöður þessarar rannsóknar
sýna að þörf er fyrir góðan félagslegan
stuðning við fátækar fjölskyldur. Slíkt
gæti falist í matarmiðum fyrir börnin í
skólanum, leiðsögn í meðferð fjármuna
fyrir foreldra og fullnægjandi sjúkra-
tryggingum.
Rannsókn þessi var gerð meðal tæp-
lega þúsund barna foreldra, sem voru
undir fátæktarmörkum, á árunum 1999-
2002.
...www.rannis.is/visindavaka
MENNTAMÁLA
RÁÐUNEYTIÐ
Í tilefni af Vísindavöku 2008 efnir Rannís til ljósmyndasamkeppni meðal ungs
fólks á aldrinum 13-18 ára. Efni myndanna skal vera „Vísindin í daglegu lífi“.
Myndum skal skilað rafrænt á alla@rannis.is eða til Rannís, Laugavegi 13,
101 Reykjavík, fyrir 15. september. Verðlaun verða veitt á Vísindavöku
26. september 2008. Nánari upplýsingar á...
Skilafrestur er
til 15.sept. 2008
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
s
k
h
ö
n
n
u
n