Morgunblaðið - 09.09.2008, Side 21

Morgunblaðið - 09.09.2008, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. SEPTEMBER 2008 21 Árni Sæberg Í Frostastaðavatni Við Landmannalaugar er ýmislegt hægt að gera sér til dundurs. Þessi veiðimaður vissi það og sveiflaði veiðistöng sinni af miklu listfengi. Blog.is Kolbrún Baldursdóttir | 8. september Ekkert lát á skemmdarverkum Ein er sú starfsstétt sem klárlega fer vaxandi næstu misseri. Það er starfs- stétt öryggisvarða og vaktmanna. Nú er svo komið í okkar þjóðfélagi að fátt fær að vera í friði. Skemmdarverk eru unnin í skjóli nætur á flestu því sem hægt er að skemma og skemmdarvargar hafa mögulegan að- gang að. Helst allt þarf að vakta ef það á ekki að vera eyðilagt og dugar ekki til samanber skemmdarverk sem unnin voru á Þristinum þrátt fyrir öfluga örygg- isgæslu á svæðinu. Þetta er sorglegt og margir spyrja sig hverju þetta sætir. ... Meira: kolbrunb.blog.is Dofri Hermannsson | 8. september Að rasa um ráð fram Þótt við Íslendingar séum býsna djarf- huga, hugmyndaríkt og öflugt fólk upp til hópa þá verður að segjast eins og er að oft ætlum við okkur um of. Stundum væri hyggilegt að fara hægar. Við erum vissu- lega með fremstu þjóðum í nýtingu jarðhita bæði til hitaveitu og raforkuframleiðslu. Það er hins vegar miklu meira af óupplýstum leyndardómum á þessu sviði en upp- lýstum. Eins og Orkustofnun og ýmsir leikir og lærðir bentu á í umræðunni um Bitruvirkjun er alls ekki nægilega mikið vitað um jarðhitageyminn í Henglinum. Hugsanlegt er að hann hafi verið talsvert ofmetinn. ... Meira: dofri.blog.is Björgvin Guðmundsson | 8. september Gæti íslenskur banki orðið gjaldþrota? Umræðan um íslenska banka og fjár- málastofnanir er nú komin á það stig, að menn ræða opinskátt um það, að íslenskur banki gæti orðið gjaldþrota. Ný- lega voru birtar tölur um skuldir bankanna erlendis og eignir á móti. Menn hrukku við þegar þeir sáu hve gífurlega miklar skuldirnar eru en eignir eru að vísu miklar á móti. Sá galli er hins vegar á gjöf Njarðar, að það getur oft verið erfitt að koma eignunum í verð. Meira: gudmundsson.blog.is TÆPAST er völ á orkuvinnslu, sem er vænni gagnvart um- hverfinu en nýting jarðhita. Á þessu ári er hitaveita á Íslandi aldargömul – en þó 800 ára ef litið er aft- ur til hitaveitu Snorra í Reykholti. Mik- ilvægasta framlag okkar Íslendinga til umhverfismála í heiminum og átakanna við loftslagsvandann felst einmitt í því að koma nýtingu jarðhita á dagskrá sem víðast á hnettinum. Það fagnaðarerindi er á miklu skriði. Nýting jarðhita til raforkuvinnslu hófst þó ekki fyrir alvöru hér á landi fyrr en undir lok síðustu aldar. Á því sviði hefur Íslendingum gengið ákaflega vel og litið er til okkar sem fyr- irmyndar. Reynslan hefur þó leitt í ljós nokkur verkefni sem þarf að leysa, bæði til að skapa meiri sátt um nýtinguna en líka til að skapa aukin verðmæti. Frágangur og sjálfbærni Í fyrsta lagi þarf að setja reglur um hvernig á að ganga frá jarð- hitasvæðum. Í Sovétinu orti Maja- kovský um fegurð iðnvæðing- arinnar en þau viðhorf henta illa á Hellisheiðinni í dag. Mekkirnir sem þar stíga til him- ins, pípurnar sem liggja um víðavang- inn, og rofið land, voru um hríð sig- urtákn um beislun auðlindarinnar og sköpun nýrra verð- mæta. Sú tilfinning er horfin, og í stað- inn ergir frágang- urinn bæði almenn- ing og ritstjóra Morgunblaðsins. Þess vegna hefur iðnaðarráðuneytið beðið starfshóp um rammaáætlun, sem starfar undir forystu Svanfríðar Jón- asdóttur bæjarstjóra að gera drög að reglum um frágang á jarð- hitasvæðum. Ég hyggst hrinda þeim jafnskjótt í framkvæmd í krafti heimilda sem lög veita iðn- aðarráðherra. Í öðru lagi er eðli- leg krafa að auðlindin sé nýtt með eins sjálfbærum hætti og kostur er. Í dag er hins vegar ekki sjálf- gefið að endurnýjanleg auðlind einsog má yfirleitt telja jarðhita á núverandi nýtingarsvæðum, sé nýtt með sjálfbærum hætti. Við erum einfaldlega ekki komin það langt að skilgreining á hugtakinu sjálfbær jarðhitanýting liggi form- lega fyrir. Þessi mál þurfa hins vegar að vera skýr, enda hefur skortur á skýrleika þegar skapað deilur – meðal annars á Alþingi. Því hefur starfshópi Svanfríðar einnig verið falið að láta sérfræð- inga í jarðhita skilgreina sjálfbæra notkun hans. Á þeim grunni hyggst ég síðan setja fastar reglur – sem í framtíðinni gætu orðið for- sendur virkjanaleyfa. Hönnun virkjana og brennisteinn Í þriðja lagi tel ég að orkufyr- irtækin þurfi að endurskoða hönn- un mannvirkja með það fyrir aug- um að fella þau betur inn í landslagið þar sem þörf krefur. Í sumum tilvikum væri hreinlega æskilegt að fella þau að mestu eða öllu leyti undir yfirborð landsins ef þess væri tæknilegur kostur. Við eigum frábæra hönnuði sem manna glaðastir myndu glíma við svo stórkostlegt verkefni. Stund- um er eins og orkuvirki séu bein- línis byggð til að vera sem mest áberandi, og kalla í sama mæli á eftirtekt ferðalanga. Það er hluti af eldsneyti andstöðunnar við ein- stakar virkjanir. Þetta eru verk- efni sem orkufyrirtækin verða sjálf að taka á dagskrá án leið- beiningar iðnaðarráðherra. Auð- vitað mun þessi leið kalla á meiri kostnað, en friður og sátt eru stundum dýr. Í fjórða lagi þarf að fullvinna aðferðir til að ná brennisteini úr gufunni þannig að hann verði ekki losaður út í umhverfið. Lyktin af honum skapar litla gleði, og hann er kannski ekki besta viðbót við umhverfið sem hægt er að hugsa sér. Þetta hefur þegar skapað deilur milli orkufyrirtækja og al- mennings. Tækniþróunarsjóður iðnaðarráðuneytisins hefur þegar styrkt slíkt verkefni myndarlega. Árangurinn var mjög góður. Nú er búið að einangra örverur sem éta brennisteinssamböndin úr loft- inu og skila hreinum – og verð- mætum – brennisteini. Þessa að- ferð þarf að vinna upp í iðnaðarferli. Hún verður örugg- lega í sjálfri sér dýrmæt útflutn- ingsþekking. Aðrar aðferðir eru líka til. Í framtíðinni á brenni- steinsnám úr gufu að vera hluti af vinnsluferli orkunnar þar sem þess er þörf vegna umhverfis og eðlis jarðhitavökvans. Bætt nýting – meiri verðmæti Í fimmta lagi þarf að finna að- ferðir til að nýta orkuna úr jarð- hitanum miklu betur. Við raf- orkuframleiðslu fellur til mikið af heitu vatni, sem í dag er helst nýtt með því að skila því aftur í jörðina um sérstakar niðurdæling- arholur. Í umræðum á Alþingi hef- ur lök nýting orku við rafmagns- framleiðslu verið gagnrýnd. Með þeirri gagnrýni hníga þau rök að okkur ber skylda til að nýta eins mikla orku og hægt er úr því sem á annað borð er aflað úr jörðu. Ég lít hins vegar ekki á það sem vandamál heldur verkefni að finna leiðir til að nýta betur vatnið og orkuna sem til fellur – og þannig tækifæri til að skapa meiri verð- mæti. Nokkrar leiðir eru þegar í þróun. Orkuveitan á lof skilið fyrir að hafa þróað lokað kerfi þar sem affallsvatni yfir hundrað gráðum er blandað öðru efni með lægra suðumark og þannig framleidd veruleg raforku. Húsvíkingar hafa sömuleiðis framleitt rafmagn úr sjóðandi lághita. Svo mikil verð- mæti felast í orkunni í affallsvatn- inu að hvorki má spara atgervi né fjármagn til að virkja hana til verðmætaframleiðslu. Þegar þessi fimm forgangsverk- efni hafa verið leyst er tæpast hægt að gagnrýna nýtingu jarð- hita á Íslandi á þeim forsendum að hún sé ekki í anda ströngustu krafna um umhverfisvernd. Í þessu eins og öðru sem lýtur að endurnýjanlegri, grænni orku- vinnslu eigum við Íslendingar allt- af að vera í fararbroddi. Jarðhiti og íslensk umhverfisvernd Eftir Össur Skarphéðinsson » Svo mikil verðmæti felast í orkunni í af- fallsvatninu að hvorki má spara atgervi né fjármagn til að virkja hana til verðmætafram- leiðslu. Össur Skarphéðinsson Höfundur er iðnaðarráðherra.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.