Morgunblaðið - 09.09.2008, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. SEPTEMBER 2008 25
MINNINGAR
✝ Björn Helgasonfæddist í
Reykjavík 12. októ-
ber 1927. Hann
lést á Landspít-
alanum við Hring-
braut 31. ágúst síð-
astliðinn.
Foreldrar hans
voru hjónin Helgi
Pétursson, fram-
kvæmdastjóri út-
flutningsdeildar
SÍS í Reykjavík, f.
11. maí 1896, d. 12.
júní 1966, og Soffía
Björnsdóttir húsfreyja í Reykja-
vík, f. 25. apríl 1899, d. 15. des-
ember 1973. Systkini Björns eru
Helga S., f. 7. september 1931,
og Gunnlaugur Pétur, f. 10.
október 1940, d. 19. janúar 1992.
Eiginkona Björns var Soffía
Einarsdóttir húsfreyja, f. 27.
september 1932, d. 1. mars 2005.
Foreldrar hennar voru Einar
Tómasson kolakaupmaður í
Reykjavík, f. 18. febrúar 1893, d.
12. september 1966, og kona
hans Ragnhildur Jónsdóttir hús-
freyja, f. 26. júlí 1893, d. 1. maí
barnalæknir. Börn þeirra eru
Arnar, Hákon og Ásdís. 6) Arn-
dís lífeindafræðingur, f. 27. sept-
ember 1969. Börn hennar eru
Haukur Tandri og Skorri Þór.
Björn ólst upp í miðbæ
Reykjavíkur. Hann varð stúdent
frá Menntaskólanum í Reykjavík
1947. Hann lauk embættisprófi í
lögfræði frá Háskóla Íslands
1952. Hann stundaði nám í nið-
urjöfnun sjótjóna í Englandi
1954-1955 og var héraðsdóms-
lögmaður frá 1956. Björn starf-
aði hjá Samvinnutryggingum frá
1952-1956, var lögfræðingur hjá
varnarliðinu á Keflavík-
urflugvelli 1956-1961 og starfaði
sjálfstætt við niðurjöfnun sjó-
tjóna í Reykjavík 1961-1972.
Hann var skipaður hæstarétt-
arritari 1972 og saksóknari 1986
og gegndi hann því embætti til
starfsloka. Björn var einnig
dómari í Félagsdómi frá 1980.
Björn gegndi ýmsum félags-, rit-
og trúnaðarstörfum, meðal ann-
ars sem formaður hamfara-
nefndar, formaður stjórnar Líf-
eyrissjóðs bænda og í
sóknarnefnd Digranesprestakalls
í Kópavogi.
Útför Björns fer fram frá
Fossvogskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 15.
1961. Börn Björns
og Soffíu eru 1)
Helgi versl-
unarmaður, f. 11.
júlí 1950. Börn hans
eru: a) Helga Heiða,
maki Magnús
Yngvason, börn
þeirra eru Egill
Örn, Atli Már,
Yngvi Jóhann og
Helgi Aron. b) Hild-
ur Sif, d. 2007, gift
Ásþóri Sædal Birg-
issyni, sonur hennar
er Þórður Helgi
Friðjónsson. c) Björn. 2) Soffía,
f. 26. mars 1953, d. 31. júlí 1955.
3) Einar vélfræðingur, f. 29.
ágúst 1956, maki Alda Ásgeirs-
dóttir hjúkrunarfræðingur. Börn
þeirra eru Erlingur, Ragna og
Benedikt. 4) Björn Ragnar
reiknifræðingur, f. 16. apríl
1958, maki Gréta Mjöll Bjarna-
dóttir framhaldsskólakennari.
Börn þeirra eru Baldur Logi og
Óðinn Jökull, einnig á Björn son-
inn Guðmund Ragnar. 5) Soffía
lífeindafræðingur, f. 18. apríl
1960, maki Herbert Eiríksson
„Nú eiga strákar að fara að
sofa“ var uppáhaldssetning Björns
Helgasonar við syni mína, afa-
strákana sína. Núna er hann sjálf-
ur farinn að sofa. Þegar ég kvaddi
hann var ró yfir honum. Hann var
orðinn sléttur á hörund og kannski
svefninum feginn.
Björn var alinn upp í umhverfi
betri borgara Reykjavíkur með
vinnukonu á heimilinu. Það var því
engin þörf á að bjarga sér sjálfur
með nein húsverk í uppvexti svo
að hann tileinkaði sér aldrei þá
eiginleika sem gerð var krafa um
að allir karlmenn næstu kynslóðar
gætu sinnt og þeir kunna flestir
svo vel.
Það kom kannski ekki heldur að
sök því ástkær eiginkona hans
Soffía gat gert allt sem viðkom
húsverkum betur en flestir aðrir.
Hver kynslóð á sitt blómaskeið.
Þegar ég kynntist Birni Helgasyni
tengdaföður mínum fyrir 21 ári
var hann orðinn fullorðinn maður.
Kominn um sextugt. Það var þó
augljóst að hann hafði ekki alltaf
farið troðnar slóðir. Eftir lögfræði-
nám fór hann í framhaldsnám til
Lundúna með fjölskylduna. Þar
misstu Björn og Soffía unga dóttur
í bifreiðaslysi. Sá atburður hafði
djúp áhrif á hann og aðra fjöl-
skyldumeðlimi. Þegar ég kynntist
honum var hann hættur að stunda
marga hluti sem hann hafði haft
áhuga á áður.
Þar má nefna hestamennsku og
veiðimennsku og satt að segja gat
ég aldrei ímyndað mér hann á
hestbaki. Aðra hluti eins og
gönguferðir og sund ræktaði hann
af einstakri reglusemi á meðan
heilsan leyfði. Og áhuga á menn-
ingarviðburðum eins og óperum,
leiklist og kvikmyndum missti
hann aldrei og stundaði nánast allt
til enda. Eitt sinn lentum við með
sæti við hliðina hvort á öðru við
eina óperuuppsetningu og vorum
þá bæði ein á ferð. Af tónskáldum
var Richard Wagner hans uppá-
hald og sótti hann flesta fyrir-
lestra um hann og tónleika sem
voru í boði. Björn stundaði sólböð
og því höfðuðu ferðalög til heitra
landa alla tíð til hans og Soffíu á
meðan hún lifði.
Hápunktur ferðalaga þeirra
saman var þriggja vikna ferðalag
um suðurríki Bandaríkjanna með
Grayhoundrútum, m.a. til New Or-
leans. Það var ljóst þegar rætt var
við þau um ferðina að það var
gamall draumur að fara „to the so-
uth“ eins og hann lýsti með til-
þrifum. Og það var ekki verið að
fara troðnar slóðir í ferðatilhögun
og kaupa einhverja tilbúna pakka-
ferð. Þegar þau fóru í þetta ferða-
lag var Björn 65 og Soffía 60 ára.
Eftir að Soffía lést 2005 var aug-
ljóst að hann hafði misst sinn betri
helming og lífið var ekki það sama.
Síðustu misserin og þá ekki síst
eftir að erfiðara var að hreyfa sig
bættist við mikill áhugi hjá Birni á
að horfa á fótbolta og annað sport
í sjónvarpinu. Eftir að Ólympíu-
leikunum lauk nokkrum dögum
fyrir lát hans var fátt sem kallaði
hann að sjónvarpinu. Flest þessi
20 ár höfum við átt aðfangadags-
kvöld saman og þá hef ég upplifað
barnið í tengdaföður mínum koma
fram með sömu eftirvæntingu eftir
jólapökkunum og hjá litlu afastá-
kunum. Núna er strákur farinn að
sofa.
Gréta Mjöll Bjarnadóttir.
Við fráfall Björns Helgasonar,
fyrrum saksóknara við embætti
rikissaksóknara, minnist ég sam-
starfs okkar á þeim vettvangi., en
hann var skipaður saksóknari 23.
sept. 1986 frá 1. okt. s.á.
Voru honum á starfstíma sínum
falin ýmis veigamikil mál til úr-
lausnar. Lutu þau bæði að tillög-
um um afgreiðslu þeirra svo og að
flutningi þeirra fyrir dómstólum er
efni þóttu til saksóknar af hálfu
ákæruvalds.
Voru tillögur hans vel rökstudd-
ar sem og málflutningur hans. Mat
ég framlag hans í þeim efnum mik-
ils og veit ég, að starfsfélagar hans
voru sama sinnis.
Vinsæll var hann og í okkar
hópi, og er margs að minnast frá
samvinnu okkar og samveru á
þessum árum. Orðheppinn var
hann og hrókur alls fagnaðar á
góðri stundu. Við Erla minnumst
og með þakklátum huga margra
ánægjustunda er við áttum með
Birni og hans ágætu konu Soffíu.
Sendum við ástvinum Björns
okkar innilegustu samúðarkveðjur.
Hallvarður Einvarðsson.
Samferð okkar Björns Helga-
sonar í skólum var svo löng að
óvenjulegt hlýtur að teljast. Við
hittumst fyrst í Grænuborg, skóla
Ísaks Jónssonar, fimm vetra gaml-
ir. Síðan lá leiðin í Barnaskóla
Austurbæjar og vorum við þar
sambekkingar til fullnaðarprófs.
Sama var næstu sex árin í
Menntaskólanum í Reykjavík og
lögfræðiprófi lukum við sama vorið
1952.
Björn var alla sína skólatíð mjög
samviskusamur námsmaður, skil-
aði jafnan góðum árangri í prófum,
en gaf sig lítt að ærslum og
stympingum sem löngum fylgja
æskufólki. Hann fylgdist vel með á
sviði ýmissa listgreina, einkum
tónlistar og myndlistar.
Á menntaskólaárunum kynntist
hann fallegri stúlku úr hópi
margra systra, sem allar voru ann-
álaðar fyrir fríðleika og bjuggu við
Bergstaðastræti. Ég vissi aldrei til
að hann stigi dansspor eða færi á
fjörur við aðrar stúlkur en Soffíu
Einarsdóttur. Þau giftu sig árið
1950. Soffía reyndist manni sínum
mikilhæf húsmóðir og gætti heim-
ilis þeirra af smekkvísi og metnaði.
Þau eignuðust sex börn, en barn-
unga stúlku misstu þau er hún
hljóp fyrir bíl að föður sínum sjá-
andi í umferð Lundúnaborgar. Það
slys varð foreldrunum mikið áfall
og olli djúpum sárum í huga og
hjarta beggja. Björn stundaði á
þeim tíma nám í London í nið-
urjöfnun sjótjóna. Eftir heimkom-
una tók hann þegar til við störf á
þessum vettvangi og sinnti lengi
slíkum verkefnum. Síðar var hann
skipaður ritari Hæstaréttar Ís-
lands og í því starfi tók hann upp
sama sið og ágætir forverar hans,
að gera í útvarpi grein fyrir störf-
um Hæstaréttar og niðurstöðum í
þýðingarmiklum málum. Björn
starfaði við Hæstarétt þar til hann
fékk veitta stöðu saksóknara, og
sinnti hann því starfi til starfsloka,
70 ára að aldri.
Björn sinnti störfum sínum af
meðfæddri samviskusemi. Hann
gaf sig lítið sem ekkert að félags-
málastörfum, en tók þátt í veiði-
ferðum og hestaferðalögum með
undirrituðum og fleiri vinum, og
hafði mikið yndi af. Björn var
einnig góður bridge spilari.
Björn var góður félagi í stúd-
entahópi MR frá 1947, og lét sig
aldrei vanta með Soffíu sinni þeg-
ar blásið var til samverustunda.
Sambúð Björns og Soffíu var
mjög náin meðan bæði lifðu. Soffía
lést vorið 2005, og má segja að
Björn hafi vart tekið á heilum sér
eftir fráfall hennar. Lífskraftur
hans og lífslöngun dvínaði.
Vinir hans og samstúdentar frá
MR kveðja hann með virðingu og
þakklæti fyrir samferðina.
Hvíli hann í friði.
Sveinbjörn Dagfinnsson.
Björn Helgason var faðir æsku-
vina minna Bjössa og Einars.
Hann og eiginkona hans bjuggu
þeim fallegt heimili á æsku- og
unglingsárum okkar í Birki-
hvammi í Kópavogi. Við félagar
ásamt fjölmörgum öðrum nutum
þess að eyða stundum okkar þar,
hvort sem það var við leiki sem
börn eða við hlustun á tónlist sem
unglingar.
Oftar en ekki var það val okkar
félaganna að dvelja í Birkihvamm-
inum langtímum saman á þessum
árum enda vorum við alltaf vel-
komnir, og alltaf vel að okkur búið
alla tíð.
Við þessi leiðarlok vil ég færa
Birni Helgasyni innilegar þakkir
fyrir hlýlegt viðmót í minn garð á
þessum árum. Ég flyt einnig
Bjössa, Einari, Helga, Soffíu og
Arndísi og öðrum aðstandendum
innilegar samúðarkveðjur.
Jón Heiðar Guðmundsson.
Björn Helgason
NORÐURLÖND
bera vegna land-
fræðilegrar legu sinn-
ar ábyrgð á því að
norðurskautssvæðin
verði ekki sá heims-
hluti þar sem alþjóða-
samfélagið komst í
þrot vegna sérhags-
muna þjóðríkja. Norð-
urlandabúar eiga að
hafa forgöngu um að
tryggja sjálfbæra þróun á norð-
urskautinu – og þeim er ekki til
setunnar boðið.
Norðurlönd eiga víðfeðm land-
og hafsvæði á norðurhjara. Þau
hafa því beitt sér mjög í málefnum
þessa einstaka og viðkvæma
heimshluta.
Norrænu ríkin hafa þegar efnt
til samstarfs um að styðja við
frumbyggja á norðurslóð og stuðla
að framþróun á sviði félags-, efna-
hags- og menningarmála.
En þau ætla einnig að leggja
sitt af mörkum til að tryggja að
auðlindir heimskautasvæðanna
verði nýttar á sjálfbæran hátt og
að ekki verði gengið á líf-
fræðilegan fjölbreytileika.
Augljóst er þó að Norðurlönd
valda þessu verkefni ekki ein. Al-
þjóðasamfélagið allt verður að
hlaupa undir bagga.
Umhverfisváin sem steðjar að
norðurskautinu á rætur að rekja
miklu sunnar á jarðarkúluna. Upp-
söfnun mengandi efna, kvikasilf-
ursmengun og eiturefni sem ber-
ast frá verksmiðjum í Evrópu,
Bandaríkjunum, Rússlandi og
Kína eru dæmi um þá hættu sem
ógnar viðkvæmu vistkerfi á norð-
urslóð.
Aukin sókn hins hnattvædda
heims í olíu- og gasauðlindir og
óskir um styttri flutningaleiðir yfir
norðurhöf valda líka hættu á norð-
urskautssvæðunum.
Á sama tíma skapa breyttar að-
stæður ný tækifæri og áskoranir
fyrir íbúa norðurskautssvæðanna.
Því er mikilvægt að nýta tækifær-
in til að bæta lífskjör þeirra án
þess að gengið verði um of á nátt-
úruauðlindir.
Lykilatriði er að Evrópusam-
bandið axli meiri ábyrgð á norð-
urskautssvæðunum. Á for-
mennskutíma Dana í
Evrópusambandinu á árinu 2001
varð Gluggi til norðurslóða (Det
Arktiske Vindue) þáttur í Evrópu-
samstarfi um hina Norðlægu vídd.
Þegar Finnar gegndu formennsku
í ESB á árinu 2007 var samstarfið
um Norðlægu víddina svo eflt enn
frekar.
Nú ber Norðurlöndum að setja
heimskautasvæðin á dagskrá hjá
Evrópusambandinu, ekki síst þeg-
ar kemur að samþættri sjáv-
arútvegsstefnu bandalagsins og
forystu þess í viðræðum um nýjan
loftslagssamning.
Þess vegna hefur Norræna ráð-
herranefndin nú látið vinna
skýrslu um bein og óbein áhrif
Evrópusambandsins á Norð-
urskautið í gegnum hin fjölmörgu
sameiginlegu stefnumál. Í skýrsl-
unni er bent á að ESB hafi þegar
mikil áhrif á norðurskautssvæð-
unum, en hafi hins vegar ekki mót-
að neina heildarstefnu fyrir þau.
Undir forystu Svía hefur Nor-
ræna ráðherranefndin boðað til
ráðstefnu á Grænlandi dagana 9.-
11. september til að vekja áhuga
ráðamanna í ESB, aðildarríkja og
annarra sem hagsmuna eiga að
gæta á þeim vanda sem við blasir
á norðurslóð.
Háttsettir fulltrúar frá Evrópu-
sambandinu og ríkjum á norð-
urslóð munu sitja ráðstefnuna,
sem haldin verður undir yf-
irskriftinni „Common Concern for
the Arctic“. Á henni mun gefast
einstakt tækifæri til að samræma
viðbrögð og stilla saman strengi.
Það tækifæri verðum við að nýta.
Eitt af markmiðum ráðstefn-
unnar er að sýna fram á að þörf
sé fyrir samræmd stefnumið ESB
þegar kemur að norðurskauts-
svæðunum og þá sérstaklega
m.t.t. sjálfbærrar nýtingar nátt-
úruauðlinda. Málið hefur mikla
þýðingu fyrir allan heiminn vegna
þess hve norðurskautssvæðin eru
landfræðilega mikilvæg þegar
kemur að stefnumótun varðandi
loftslagsvandann og auðlindanýt-
ingu, svo og vegna nýrra sigl-
ingaleiða sem eru að opnast.
Það er jákvætt að ESB ætli á
haustmánuðum að birta yfirlýs-
ingu um norðurskautssvæðin og
það er von okkar að ráðstefnan
muni verða til þess að samræma
sjónarmiðin í Evrópusambandinu.
Svíar gegna formennsku í Nor-
rænu ráðherranefndinni á þessu
ári. Þeir munu haustið 2009 taka
við formennsku í Evrópusam-
bandinu. Svíar munu svo gegna
formennsku í Norðurskautsráðinu
á árunum 2011-2012, þannig að
þeir eiga alla möguleika á því að
beina alþjóðlegu samstarfi að mál-
efnum norðurskautssvæðanna.
Á Norðurlöndum er löng hefð
fyrir aðgerðum til að tryggja
sjálfbæra þróun, en þegar norð-
urskautssvæðin eru annars vegar
getur skipt sköpum að Evrópu-
sambandið og þær þjóðir sem eiga
land norðan heimskautsbaugs;
Rússar, Bandaríkjamenn og Kan-
adamenn, taki einnig virkan þátt í
að leysa verkefnin í þessum
heimshluta.
Norrænu umhverfisráðherr-
arnir hafa nýlega haft frumkvæði
að aðgerðum sem miða að því að
efla skipulag og stjórnsýslu um
verndun hafsvæða, þar með talið
á norðurskautssvæðunum
Krafan er að tafarlaust verði
tekist á við þau viðfangsefni sem
blasa við á norðurslóð, líka á vett-
vangi Evrópusambandsins og um
heim allan – það þolir enga bið!
Ekki má vanmeta þýðingu
heimskautasvæðanna fyrir heims-
byggðina.
Norðurlöndin verða að vera í
fararbroddi, ásamt íbúum á norð-
urslóð, þegar kemur að því að
tryggja jafnvægi milli verndunar
og nýtingar auðlinda, en aðrir
sem hagsmuna eiga að gæta verða
einnig að leggjast á árarnar.
Hverjir gæta
hagsmuna norður-
skautsins?
Christina Husmark
Pehrsson, Halldór
Ásgrímsson
Halldór
Ásgrímsson
» Viðkvæm náttúra
norðurskautssvæð-
anna og mikilvægi henn-
ar gerir þá kröfu til okk-
ar að við gætum
jafnvægis í verndun og
nýtingu náttúruauð-
linda.
Christina er samstarfsráðherra Sví-
þjóðar. Halldór er framkvæmdastjóri
Norrænu ráðherranefndarinnar.
Cristina Husmark
Pehrsson
UMRÆÐAN