Morgunblaðið - 09.09.2008, Page 27

Morgunblaðið - 09.09.2008, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. SEPTEMBER 2008 27 ✝ Karl PálmiÓlafsson fædd- ist á Spítalastíg 10 Reykjavík 20. sept- ember 1920. Hann andaðist á Landspít- alanum í Fossvogi 2. september síðastlið- inn. Foreldrar hans voru hjónin Ólafur Teitsson skipstjóri, f. 12. janúar 1878, d. 8. október 1959, og Kristín Káradóttir húsfreyja, f. 14. júlí 1897, d. 5. ágúst 1983. Hálfsystkini hans samfeðra voru Guðmundur Ágúst Waage Ólafsson, f. 30. október 1909, d. 10. mars 1940, Jósefína Waage Ólafsdóttir Campell, f. 27. júní 1912, d. 9. desember 1988 og Val- borg Waage Ólafsdóttir, f. 11. nóvember 1914, d. 9. maí 1994. Al- bróðir Þórir Ólafsson, f. 2. októ- ber 1922, d. 15. júní 1995. Karl kvæntist 22. mars 1952 Ásu Gunnarsdóttur frá Bjarna- stöðum i Grímsnesi, f. 25. október 1932, dóttur hjónanna Gunnars Oddssonar bónda og Sigurlaugar Guðmundsdóttur Ottesen. Börn Karls og Ásu eru 1) Sigurlaug Margrét geðlæknir, f. 28. sept- ember 1952. 2) Kristín Karólína launafulltrúi, f. 18. febrúar 1954, maki Þorkell Gunnarsson vatns- veitustjóri, f. 4. júlí 1950. Börn þeirra eru: a) Jón Gunnar, f. 2. janúar 1975 húsasmiður og nemi, sambýliskona Krist- rún Hermannsdóttir íþróttakennari, f. 29. september 1969, sonur þeirra Ísak, f. 15. desember 2005, fósturbörn Jóns og börn Kristrúnar eru Hermann Ágúst Canales, f. 29. des- ember 1994 og Es- meralda Aldís Canales, f. 17. sept- ember 1996. b) Karl pípulagningamað- ur, f. 26. júní 1981. c) Þorkell húsasmiður, f. 10. júlí 1983. 3) Ása krabbameinslæknir, f. 30. ágúst 1961. 4) Kári Steinar verkfræðingur, f. 27. júlí 1966, maki Ragnheiður Aradóttir arki- tekt, f. 2. maí 1967. Sonur Kára og fyrrverandi sambýliskonu Gróu Höllu Hákonardóttur, f. 25. októ- ber 1968 er Gunnar Örn, f. 22. desember 1989. Börn Kára og Ragnheiðar eru: Kristín, f. 21. júlí 1995, Ari, f. 19. maí 1998, og Snorri, f. 13. júní 2003. Karl gekk i Miðbæjarbarna- skólann, var síðan eitt ár við nám i Verzlunarskóla Íslands. Hann vann síðan ýmsa verkamanna- vinnu, en lengst af starfaði hann við leigubílaakstur, í 48 ár eða þar til hann varð að láta af störf- um vegna aldurs, 74 ára að aldri. Útför Karls fer fram frá Frí- kirkjunni í Reykjavík í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Karl var innfæddur Reykvíking- ur, ólst upp í miðbænum fyrst á Spítalastíg 10 en frá 8 ára aldri á Bergstaðastræti 30 þar sem hann bjó til dauðadags. Hann ólst upp á mannmörgu heimili með foreldrum, systkinum, öfum, ömmum og öðru frændfólki. Hann átti ánægjulega barnæsku við leik og störf. Faðir hans var fyrst skipstjóri, en kom fljótlega í land að ósk fjölskyld- unnar og varð síðar verkstjóri i De- fensor-fiskverkunarstöð þar sem Borgartún er nú. Fjaran var leik- völlur pabba og félaga hans, þaðan stunduðu þeir siglingar og tóku meðal annars að sér flutninga á fólki gegn gjaldi. Á sumrin var hann í sveit á Æsustöðum í Mosfellssveit og á Ballará við Breiðafjörð hjá kæru skyldfólki sem hann hélt tryggð við alla tíð. Hann byrjaði ungur að vinna, vann ýmis verkamannastörf, meðal annars við uppskipun, starfaði í þágu loftvarna Reykjavíkur á stríðs- árunum, Bretavinnunni, vegavinnu, en lengst af starfaði hann sem leigu- bílstjóri hjá BSR eða í 48 ár þar til hann varð að láta af störfum vegna aldurs 74 ára að aldri, þá enn með fulla starfsorku. Hann hafði alla tíð mikinn áhuga á bílum og eignaðist ungur sinn fyrsta bíl, Ford herjeppa með Þóri bróður sínum. Þeir bræður ferðuðst víða um land með félögunum og komust víða þrátt fyrir vegleysur. Hann sagði oft söguna af Lýðveld- ishátíðinni 1944 þegar tjaldhælarnir urðu eftir heima og þá voru góð ráð dýr, en mikilvægt að bjarga sér með því sem tiltækt var. Á stríðsárunum keyrði hann vörubíl, tók meðal ann- ars þátt í að keyra Rauðhólana í flugvöllinn í Vatnsmýrinni. Árið 1950 kynntist hann tilvon- andi konu sinni úr Grímsnesinu, þau giftu þau sig tveimur árum seinna og voru gift í rúm 56 ár. Eftir að hann eignaðist fjölskyldu var fjöl- skyldan hans aðaláhugamál. Árið 1952 fæddist frumburðurinn og á næstu 14 árum urðu börnin 4. Á þessum árum snerist lífið um að búa fjölskyldunni öruggt heimili, en hann hafði samt alltaf tíma til að rétta vinum og vandamönnum hjálp- arhönd. Pabbi hafði gaman af ferða- lögum, hann ferðaðist víða um land og fór í sína síðustu hringferð um landið sumarið 2006. Það var ekki fyrr en eftir miðjan aldur að hann fór í fyrsta sinn út fyrir landstein- anna, þá til Norðurlandanna. Ferð- irnar urðu fleiri bæði til Evrópu og Ameríku, en yfirleitt til að heim- sækja börn sín sem búsett voru er- lendis. Pabbi var ævinlega til staðar fyrir okkur og ávallt boðinn og búinn að sækja og keyra bæði á nóttu og degi. Hann var heilsuhraustur alla tíð og keyrði bíl nema síðasta árið, þegar heilsunni byrjaði að hraka. Hann var alla tíð mjög barngóður, það sem gaf lífinu gildi var að fá börnin, barnabörnin og barnabarna- börnin i heimsókn, segja sögur og rifja upp gamla tíma. Hinsta kveðja, börnin þín, Sigurlaug, Kristín, Ása og Kári. Karl Pálmi Ólafsson Það var miðvikudaginn 3. septem-ber þegar ég kom óvænt í húsakynni Hugarafls, að mér var tjáð sú sorg- arfregn að Garðar Jónasson væri látinn. Þetta sló mig mikið þar sem hann og Haukur voru fyrstu aðilarn- ir sem ég kynntist í Hugarafli, þar sem þeir voru mínir tengiliðir. Hann var með einstaklega góða nærveru og var ávallt stutt í hláturinn. Hvert sinn er ég kom í Bolholtið var Garðar þar, tók vel á móti mér og lét mér finnast ég svo velkominn. Ég hefði viljað kynnast þér mikið betur um ókomin ár, en Guð hafði aðra ætlun og ég veit að þér líður vel þar sem þú ert nú. Hafðu þökk fyrir samfylgdina. Aðstandendum sendi ég mínar bestu samúðarkveðjur. Kveðja, Marteinn Jakobsson. Ég kynntist Garðari fyrir 9 mán- uðum. Það er ekki langur tími til að mynda vinatengsl en ég ætla samt að leyfa mér að kalla hann vin minn, því Garðar var maður sem allir vildu eiga að vini. Nú hefur hann yfirgefið þennan heim, langt fyrir aldur fram. Fyrsta hugsun mín við fráfall Garð- ars var að nú væri tilveran fátæk- legri. En það má líka segja að hún sé ríkari, af því að hans naut við. Garð- ar skilur ekki bara eftir sig ljúfar minningar, heldur líka holla lexíu. Hann átti við meðfædda fötlun að stríða og þar á ofan veikindi sem margan manninn hafa lagt. Ég veit að Garðar átti sín erfiðu og myrku tímbil, en hann reis alltaf upp aftur. Ekki eingöngu fyrir aðstoð og um- hyggju sinna nánustu, vina sinna og heilbrigðisstarfsfólks, heldur aðal- lega með einbeitni og baráttuvilja að vopni. Barátta hans og fleiri fyrir því að notendum geðheilbrigðiskerfisins yrði sýnd sú virðing og þau sjálf- sögðu mannréttindi að fá að hafa áhrif á meðferð sína, að auka val- kosti í meðferð og svo framvegis, ól af sér afkvæmið Hugarafl fyrir rúm- um 5 árum. Hugarafl, sem vex jafnt og þétt svo ekki sér fyrir endann á því vaxtarferli, heldur baráttunni áfram. Lexían, sem Garðar hefur skilið eftir sig er sú, að manneskjan skil- greinist af gerðum sínum, fasi og framkomu við aðra en ekki af veik- indum sínum og fötlun. Garðar var mikill baráttujaxl. En hann var margt fleira. Hann var maður sem lét fólk finna að það skipti hann máli, nærvera hans var róandi en ekki slævandi. Nei, engan veginn slæv- andi, því húmoristi var Garðar mikill og hlátur hans einlægur og smitandi. Hann var alltaf vel til fara og hann var áreiðanlegur. Fleiri mannkosti hafði Garðar, en í heildina var hann einfaldlega gull af manni. Maður sem við, sem eftir lifum, minnumst með söknuði, virðingu og brosi. Samúðarkveðjur sendi ég að- standendum. Haukur Hauksson. Í dag kveð ég góðan félaga og mér finnst erfitt að kveðja gott fólk. Við erum hnípin og lútum höfði, vinir, fé- lagar og samstarfsfólk Garðars. En þetta er lífsins gangur, fólk kemur og fer. Eitt sinn skal hver deyja. Samt er, finnst mér, eins og stendur í gömlum dagurlagatexta: „Sama rósin sprettur aldrei aftur, þó önnur fegri komi í hennar stað.“ Ég kynnt- ist Garðari vel í gegn um félagið Hugarafl sem við vorum bæði í. Einnig unnum við nokkra mánuði saman hjá Hlutverkasetri. Garðar var með sérstökustu mönnum sem ég hef kynnst. Hug- sjónirnar og þrautseigjan, aldrei gafst hann upp þótt hann þyrfti að hopa. Samviskusamur og heiðarleg- ur. Hann sagði það sem honum bjó í brjósti. Þar talaði hann tæpitungu- laust. Samt var hann prúðmenni og sannur herramaður. Hann var alltaf í svo fallegum fötum og vel til hafður. Annað einkenni á honum var mjög sterk réttlætiskennd. Kímnigáfa hans var mikil og oft brá hann á leik. Þá var mikið hlegið og þar lagði hann sitt af mörkum. Ég hef fáa heyrt hlæja jafn innilega og lengi. Maður gat ekki annað en hrifist af hlátrinum og hlegið með. Orðatil- tækin sem gátu oltið upp úr honum voru oft stórskemmtileg. Ég sakna Garðars og við gerum það öll í Hugarafli. Góður liðsmaður og félagi er genginn, en minningin lifir og mun lifa um góðan dreng. Fjölskyldu hans og öllum hans nán- ustu sendi ég samúðarkveðjur Védís Drafnardóttir Elsku Garðar minn. Í upphafi þessa árs sátum við tvö saman og ræddum fimmta afmælisár Hugarafls. Þú lagðir ríka áherslu á að gera það eftirminnilegt með stíl. Þarna skein persónuleiki þinn í gegn sem einkenndist m.a. af hlýju, glæsi- leika, vandvirkni og jafnframt mikilli réttlætiskennd. Við náðum því, Garðar, að gera afmælisárið við- burðaríkt og í þínum anda, við héld- um tvö málþing, fluttum gjörninginn „bedrun“ þ.e. ýttum sjúkrarúmi frá Kleppi og niður í Grasagarð til að minna á vonina þrátt fyrir geðröskun og þörfina fyrir aukna valmöguleika í geðheilbrigðisþjónustunni, við héld- um veislu í Grasagarðinum og grill- uðum á Hofteignum, við stóðum þög- ul mótmæli við Kínverska sendiráðið þegar í ljós var komið að þeir sam- þykktu ekki geðsjúka á Ólympíuleik- ana. Síðasta sinn sem ég sá þig vor- um við að faðma fólk „ókeypis“ á Laugaveginum á menningarnótt og þú ljómaðir! Þar fékk ég þitt síðasta faðmlag sem ég mun ætíð geyma innra með mér. Samstarf okkar hófst fyrir alvöru þegar þú komst til mín í byrjun árs 2002, vegna réttlætisbaráttu sem þú kaust að vinna í og óskaðir eftir mín- um stuðningi. Við brettum upp erm- ar og hófumst handa. Þú varst ein- faldlega að berjast fyrir virðingu og góðri þjónustu á geðdeildum. Þarna eins og svo oft, komu sterkt fram þau áhrif sem þú hafðir á aðra og seinna þýðingin sem þín barátta hafði fyrir þá sem á eftir komu. Þegar við töld- um nóg komið, lögðum við málið bók- staflega á „hilluna“ með viðhöfn og þar fékk það að hvíla að loknum erf- iðisdegi. Áfram hélt lífið og þú tókst til við að starfa af auknum krafti að verkefnum sem skiptu máli fyrir þig, hópinn og samfélagið. Þú styrktist á hverjum degi og „réttir úr þér“. Ég var svo lánsöm að fá að vera þinn stuðnings- og samferðamaður í gegnum súrt og sætt þar til yfir lauk. Við tengdumst sterkum böndum, við gátum hlegið og grátið saman og tek- ist á við verkefnin í dagsins önn. Þú gafst mér innsýn í líf þitt, ég kom í heimsóknir á þitt fallega heimili, þú sagðir mér frá móður þinni sem þér þótti svo vænt um, Guðrúnu systur og hennar fjölskyldu sem hafði svo mikla þýðingu fyrir þig og eins hvað þú alltaf saknaðir pabba þíns. Það var líka notaleg stund þegar þú kíkt- ir í kaffi til okkar hjóna á Hofteiginn. Árið 2003 stofnuðum við nokkrir félagar Hugarafl. Erla iðjuþjálfi var með okkur í fyrstu skrefunum og hennar stuðning höfum við alltaf kunnað að meta síðan. Eitt fyrsta verkefnið sem þú tókst að þér var að finna nafn á hópinn og þar með var tónninn sleginn. Við hugsuðum stórt, ætluðum að hafa áhrif á geðheil- brigðismál á Íslandi, vildum breytta nálgun og aðra hugmyndafræði. Við höfum komið mörgu til leiðar og Hlutverkasetur er orðið að veru- leika. Þú vildir að „Geðveika kaffi- húsið“ hefði opnað fyrir löngu og ég lofa þér því að ég mun berjast fyrir því áfram, meðvituð um að persóna þín, manngæskan, vináttan, baráttu- andinn og ekki síst húmorinn mun áfram styrkja okkur í Hugarafli til láta ekki deigan síga. Ég votta aðstandendum mína dýpstu samúð. Auður Axelsdóttir. „Vissirðu það ekki, Garðar er dá- inn,“ sagði góð vinkona mín mér þegar ég ætlaði að mæta á fund. Ég náði að halda andliti í smástund en brotnaði svo saman. Ég var svo hissa. En nú þegar ég veit að hann er í annarri vídd en þessari og að hann fór í friði líður mér betur. Ég sé hann aðeins fyrir mér brosandi og svo byrjar hann að skellihlæja, sínum einstaka hlátri, og svo sé ég hann fyrir mér friðsælan, en látinn. Ég veit að þessi líkami er bara skel og musteri andans, og nú er Garðar á fundi skapara síns, aflsins sem er ást og kraftur. Ég trúi því að ég eigi eft- ir að hitta hann aftur og þá munum við hlæja saman. Garðar vann stórvirki, hann var einn af stofnendum Hugarafls, hann kom með hugmyndina um nafnið og var frumkvöðull að Notandi spyr notanda-verkefninu sem er mjög mikilvægt fyrir mér því það hefur verið vinna mín undanfarin ár. Hann skilur mikið eftir sig og er sárt sakn- að. Ég á eftir að hugsa um hann komandi ár þegar ég kemst í kyrrð uppi í sófa á kvöldin og rifja upp hvernig samskipti okkar voru og hvernig hann hress í bragði myndi heilsa mér og segja: „Komdu sæll og blessaður Haraldur.“ Hvíl í friði hrausta hetja, ég mun ætíð minnast þín. Ég votta fjölskyldu og vinum sam- úð mína af heilum hug. Haraldur Guðmundsson. Garðar vinur minn er látinn. Ég kveð með söknuði góðan og traustan vin en eftir standa góðar minningar sem munu varðveitast. Ég átti ekki von á því að símtalið sem við áttum aðeins örfáum dögum fyrir andlát hans yrði jafnframt okk- ar síðasta samtal. Við ræddum um daginn og veginn á léttu nótunum og fórum yfir málin eins og við gerðum reglulega saman. Alltaf var spurt af einlægum áhuga um hvernig strák- arnir mínir hefðu það og hvað væri að frétta af fjölskyldunni. Ég á góðar minningar frá Sölu- nefnd Varnarliðseigna þar sem við vorum vinnufélagar. Mér líkaði stax vel við þennan rólega og yfirvegaða náunga sem var alltaf reiðubúinn að leggja fram hjálparhönd og gera sitt allra besta í öllu því sem hann tók sér fyrir hendur. Húmorinn var heldur aldrei langt undan. Minningin lifir um góðan dreng og votta ég og fjölskylda mín aðstand- endum Garðars innilegustu samúð. Hlynur Í. Ragnarsson. Vinur minn er dáinn. Fundum okkar bar fyrst saman í Hringsjá þar sem við vorum saman í námi á tímabilinu frá janúar 2000 til maí ár- ið 2001. Á þessum tíma vorum við Garðar ásamt fleirum í kaffinefnd skólans og sáum um að eitthvað væri til í svanginn. Þau kynni urðu að vin- áttu okkar í milli er hefur varað æ síðan. Garðar var mikill vinnur vina sinna og hafði stundum samband til að vita hvernig ég og börnin mín hefðum það. Við Garðar gerðum ýmislegt saman svo sem að fara í bíó, á kaffihús, leikhús, en það sem merkilegast var var að honum tókst að plata mig á Kammermúsíkklúbb- inn og opna eyru mín fyrir þeirri tón- list. Garðar var mikið snyrtimenni og bar íbúð hans því glöggt merki þar sem allt var hreint og fágað. Með þessum fátæklegu orðum langar mig að þakka Garðari fyrir allt. Fjölskyldu hans votta ég mína dýpstu samúð. Bryndís Bragadóttir. ✝ Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og mágur, GUÐNI SIGURJÓNSSON, Rauðagerði 28, Reykjavík, lést á gjörgæsludeild Landspítalans föstudaginn 5. september. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju föstudaginn 12. september kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlega afþökkuð en þeim sem vildu minnast hans er bent á Björgunarsveitina OK, reikningur nr. 1103 - 26 - 9342, kt. 530679-1449. Elínborg Kristinsdóttir, Hildur Guðnadóttir, Arnar Guðnason, Hafdís Hafsteinsdóttir, Sigurjón Guðnason, Inga Hildur Þórðardóttir, Ragnheiður, Þórhildur, Ágúst, Magnús Bjarki, Arndís Ósk, Guðni Freyr, Kristinn Snær og Viktor Hrannar, Magnús Kristinsson. MOSAIK Hamarshöfða 4 - 110 Reykjavík sími 587 1960 - www.mosaik.is Legsteinar og fylgihlutir Vönduð vinna og frágangur Yfir 40 ára reynsla Sendum myndalista

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.