Morgunblaðið - 09.09.2008, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. SEPTEMBER 2008 35
Aflagrandi 40 | Vinnustofur kl. 9-16.30,
Vatnsleikfimi í Vesturbæjarlaug kl.
10.45.
Árskógar 4 | Bað kl. 8.15, handa-
vinnustofa opin kl. 12.30 og smíðastofa/
útskurður, leikfimi kl. 9, boccia kl. 9.45.
Bólstaðarhlíð 43 | Hárgreiðsla, böðun,
handavinna, vefnaður, kaffi/dagblöð,
fótaaðgerð, matur, línudans, kaffi.
Dalbraut 18-20 | Vinnustofa í hand-
mennt, prjónakaffi kl. 9. Félagsvist kl.
14.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Skák
kl. 13. Opið hús 19. sept., félagsstarfið
verður kynnt.
Félagsheimilið Gjábakki | Leikfimi kl.
9.05 og 9.55, gler- og postulínsmálun
kl. 9.30, handavinnustofan opin, jóga kl.
10.50, matur og alkort kl. 13.30. Kl. 20,
Vilhjálmur Árnason prófessor flytur er-
indið „Reisn mannsins“..
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Vefn-
aður kl. 9, myndlistahópur og jóga kl.
9.30, ganga kl. 10, leikfimi kl. 11, hádeg-
isverður, jóga kl. 18.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ |
Karlaleikfimi kl. 13, boccia kl. 14.
Félagsstarf eldri borgara í Mos-
fellsbæ | Ganga kl. 11.30, farið frá Hlað-
hömrum.
Félagsstarf Gerðubergs | Vinnustofur
opnar kl. 9-16.30, m.a. glerskurður, leið-
sögn veitir Vigdís Hansen, létt ganga um
nágrennið kl. 10.30. Á morgun kl. 10 er
postulínsnámskeið, kennari Sigurbjörg
Sigurjónsd.
Hvassaleiti 56-58 | Lífsorkuleikfimi kl.
9, bútasaumur kl. 9. Námskeið í mynd-
list kl. 13.30. Helgistund kl. 14, sr. Ólafs
Jóhannssonar, söngstund á eftir. Böðun
fyrir hádegi, matur, hársnyrting.
Hæðargarður 31 | Enn er hægt að skrá
sig í ýmis námskeið. Sími 411-2790.
Íþróttafélagið Glóð | Vilhjálmur Árna-
son, heimspekingur og prófessor við HÍ,
flytur erindið „Reisn mannsins“ kl. 20, í
Gjábakka. Veitingar. Æfingar fyrir sýn-
ingar og hópdansar í Kópavogsskóla kl.
14.30-16.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Kaffi-
vísnaklúbbur kl. 9, boccia-kvennahópur
kl. 10.15, handverksstofa kl. 11, opið hús,
vist og brids kl. 13, kaffiveitingar.
Laugardalshópurinn Blik, eldri borg-
arar | Leikfimi eldri borgara í Íþróttahúsi
Ármanns-Þróttar kl. 12.
Norðurbrún 1 | Leikfimi og handavinna
hjá Halldóru kl. 13, hjúkrunarfræðingur
kl. 10. Postulínsnámskeið hjá Hafdísi 13.
Kynning á félagsstarfinu kl. 14.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja f. há-
degi, bútasaumur kl. 9, morgunstund,
kl. 9.30, leikfimi kl. 10, glerbræðsla,
glerskurður, upplestur kl. 12.30, handa-
vinnustofa kl. 13, félagsvist kl. 14, kaffi.
Kirkjustarf
Digraneskirkja | Guðsþjónusta 10.
sept. kl. 14. Prestur sr. Yrsa Þórð-
ardóttir, gamlir Fóstbræður leiða söng,
organisti Kjartan Sigurjónsson. Kaffi-
veitingar. Leikfimi ÍAK kl. 11.
Fella- og Hólakirkja | Kyrrðarstund kl.
12. Súpa og brauð eftir stundina. Kirkju-
starf eldri borgara kl. 13. Nokkrir úr
kirkjustarfinu segja frá sumarfríunum
sínum, kaffiveitingar. Helgistund í kirkju.
Umsjón Ragnhildur Ásgeirdóttir djákni.
Grafarvogskirkja | Opið hús fyrir eldri
borgara kl. 13.30. Helgistund, handa-
vinna, spilað, spjallað og kaffi.
Grensáskirkja | Foreldramorgunn kl.
10, kyrrðarstund kl. 12, helgistund. Á
eftir er málsverður.
Laugarneskirkja | Kvöldsöngur kl. 20
með Þorvaldi Halldórssyni og Gunnari
Gunnarssyni. Sóknarprestur flytur Guðs
orð og bæn. Tólf spora hópar ganga til
sinna verka kl. 20.30.
Óháði söfnuðurinn | Kynningarfundur
Alfa 1 kl. 19 hefst með kvöldverði. Geng-
ið inn að austanverðu.
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
ÉG
GEFST UPP
MAÐUR ÞARF EKKI AÐ
VERA AÐ GERA NEITT TIL
AÐ GEFAST UPP Á ÞVÍ,
ER ÞAÐ NOKKUÐ?
FRÍÐA
Á KÖTT
HÚN ER
AÐ KOMA...
LÍFIÐ ER
BÚIÐ...
ER ÞETTA KÖTTUR?!?
MAMMA
LÉT MIG SKO
ALDEILIS
HEYRA ÞAÐ!
ÉG ER MEÐ
HUGMYND
MEGUM VIÐ
KOMA ÚT
NÚNA?
ER
MAMMA ÞÍN
FARIN?
ER
ÖLLU
ÓHÆTT?
HÚN ER
AÐ KOMA
AFTUR UPP!
ÞARNA
ER HÚN!
EKKI FARA
UNDAN
KASSANUM!
USS
ÚFF
ÞÚ ERT
SNILLINGUR
ÉG
HEYRI EKKI
Í HENNI
HVAÐ
ER AÐ
GERAST?
UMBREYTIR
LAGAÐIR
ÞÚ LEKANN
Á SKIPINU?
NEI
ÉG HÉLT
AÐ ÞÚ
HEFÐIR
GERT ÞAÐ
ÞARF ÉG AÐ
NÁ Í BLAÐIÐ
Í DAG?
ÞAÐ ER SVO
SLÆMT
EFTIRBRAGÐ AF
PRENTSVERTUNNI
FÓLK SEGIR AÐ ÖLLUM
GYÐINGUM SEM FAGNA
PÁSKUNUM EIGI AÐ LÍÐA
EINS OG ÞEIR SJÁLFIR SÉU
ÞRÆLAR Í EGYPTALANDI
GETIÐ ÞIÐ ÍMYNDAÐ
YKKUR HVERNIG ÞAÐ
VÆRI EF VIÐ ÞYRFTUM
AÐ FARA ÚR LANDI
Í KVÖLD?
ÉG VÆRI Í VANDA
STADDUR. ÉG BORÐAÐI
SVO MIKIÐ AÐ ÉG
KÆMIST EKKI LANGT
VILTU
RÉTTA
MÉR
KÁLIÐ?
ERTU AÐ
SEGJA MÉR AÐ ÞÚ
VITIR EKKI HVER
HANN ER?
EN ÞÚ ERT KONAN
HANS! ÞÚ ÆTTIR
AÐ VITA ÞAÐ!
HANN ER EINS OG NJÓSNARI!
HANN BREYTIR UM NAFN REGLULEGA
EKKI EINU
SINNI ÉG VEIT
HVER HANN ER
Velvakandi
MAÐURINN á myndinni horfir hugsi á fólkið sem situr fyrir utan á kaffi-
húsi og nýtur septembersólarinnar. En nú fer þeim tækifærum að fækka að
geta borðað undir berum himni.
Morgunblaðið/Golli
Miðbæjarstemning
Við tindrandi
tónaseið
EFTIR sóldýrð og
mildi sumardaga er
sannarlega vert að
taka til hendi í öllu fé-
lagsstarfi eldri borgara
í Reykjavík og ná-
grenni og margt þegar
á fullu af stað farið s.s.
skák og brids og
Göngu Hrólfar gengnir
af stað svo eitthvað sé
nefnt, að ekki sé nú
minnst á sunnudags-
dansleikina.
Söngvaka og síðdeg-
isdans eru á næsta leiti
svo og bókmenntahópurinn utan efa
og þannig tekur hvað við af öðru til
unaðar og yndisauka.
Við sem höfum haft þá ánægju á
undangengnum vetrum að eiga með
ykkur svo mörgum gleðistundir í
svellandi söng ætlum nú að hefja
okkar samverustundir 10. sept-
ember og auðvitað upphefjum við
raustir okkar kl. 14 þann dag eins og
svo annan hvorn miðvikudag í allan
vetur. Hin góða þátttaka síðustu
vetra er okkur hvatning til að gjöra
enn betur, fá enn fleiri til þátttöku í
ferskri sönggleði þar sem hver
syngur með sínu nefi og þannig
myndum við sannan
samhljóm gleðinnar,
gleðjum okkur sjálf og
hvert annað um leið.
Gjöfular stundir góðs
félagsskapar eru gulli
betri, yngir hug og
hressir.
Í samráði við þau
Matthildi og Jón Frey
sem stjórnað hafa síð-
degisdansinum með
einstökum sóma und-
angengna vetur ætlum
við svo til gamans að
kalla til alla sem koma
vilja hinn 17. sept-
ember á söngvöku og
síðdegisdans um leið,
sjá hversu sú blanda reynist svona
einu sinni, en svo fer allt í sinn fasta
farveg sem áður, söngvakan 24.
sept., síðdegisdans 1.okt. og svo koll
af kolli. Við hlökkum til samfunda
við ykkur öll og vonum að hið sama
gildi um þau ykkar sem hafið átt
með okkur svo ánægjulega samveru
á liðinni tíð og nýtt fólk alltaf vel-
komið. Sjáumst sem flest 10. sept-
ember.
Sigurður Jónsson,
Helgi Seljan.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara