Morgunblaðið - 09.09.2008, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. SEPTEMBER 2008 43
Cusco (eða Qusqu) er hinforna höfuðborg Tawant-insuyu-ríkisins, sem menn
kalla almennt Inka-konungdæmið
(inka þýðir kóngur á Quechua og
því köllum við það vísir konunga-
konungsríkið). Þar þreifst forn og
frumstæð menning sem leið undir
lok að mestu er Spánverjar lögðu
Perú undir sig á sextándu öld. Eitt
af því sem þeir lögðu mikla áherslu
á var að útrýma öllu því sem ekki
féll vel að kenningakerfi kaþólsku
kirkjunnar og þá helst af öllu allri
menningu og list sem ekki var
rammkaþólsk.
Til að tryggja að innfæddir vissuhvernig ætti að bera sig að við
listsköpun fluttu Spánverjar til
Perú listmálara sem kenndu fagið
og til varð skóli í málaralist sem
kallaður hefur verið Cuzqueña-
skólinn; fjarvíddarlausar myndir í
sterkum jarðlitum (rautt, brúnt og
gult) og jafnan mjög gullskreyttar.
Einnig er áberandi í myndum frá
þeim tíma að fyrirmyndirnar (Jesú
og hans hyski, nánustu ættmenni
og dýrlingar) eru eins og ofurstíl-
færðar myndir af blúnduskreyttu
spænsku fyrirfólki.
Inn á sumar myndirnar læddustsvo perúsk minni, alpaca og
lamadýr, naggrísir (étnir á þeim
slóðum og afbragðsfæða) og jafnvel
stöku Jesúbarn sem var með indí-
ánasvip (dökkan hörundslit og stór-
an brjóstkassa).
Eftirmyndir ef þessum myndumeru til sölu á götum úti í Cusco
og atgangurinn oft harður þegar
reynt er að þröngva myndum inn á
ferðamenn. Hugsanlega eru ein-
hverjar þeirra málaðar af kínversk-
um börnum (eins og flest það gling-
ur sem selt er ferðamönnum hér á
landi), en líklegt þykir mér að fá-
tækir listamenn í Cusco taki sér
fyrir hendur að mála slíkar myndir
þegar hungrið sverfur að. Það
sýndist mér í það minnsta í heim-
sókn í nútímalistasafnið í Cusco fyr-
ir stuttu.
Nútímalistasafnið í Cusco er ígríðarlega fallegu húsi sem
reist var á dögum spænskrar land-
stjórnar í Perú. Húsið er í eigu
borgarstjórnar Cusco og notað í
starf hennar, einskonar ráðhús
sýndist mér, enda heitir það Pala-
cio Municipal. Safnið sjálft er
reyndar ekki nema í tveimur sölum
eða í það minnsta voru ekki nema
tveir salir opnir er ég kom þar, en í
öðrum salnum var sýning á ljós-
myndum frá fáförnum stöðum í
Perú; myndir með takmarkað list-
rænt gildi, en að vissu leyti for-
vitnilegar fyrir ferðamenn.
Í aðalsalnum voru svo til sýnishelstu gripir úr eigu nútíma-
listasafnsins og að vissu leyti áfall
að sjá það sem þar var til sýnis. Sitt-
hvað af því hefði nefnilega eins get-
að verið til sölu á Plazoleta del
Regocijo framan við safnið – dæmi-
gert túristagums.
Eitt af því sem áberandi var viðmálverkin, ekki öll reyndar en
býsna mörg, var að handverkið á
þeim var gott, mjög gott reyndar,
fínleg vinna vel unnin – líkt og með
allar myndirnar sem seldar eru á
torgum Cusco. Margar myndanna
voru líka vel útfærðar, en þær voru
handverk, ekki list, snertu mann
ekki, gervilist.
Í stuttu samtali við starfsmann ástaðnum komst ég að því að
safnið er ekki ýkja gamalt, stofnað
af núverandi borgarstjóra borg-
arinnar sem hafi viljað vekja at-
hygli manna á því að þótt menning
Cuscverja eigi sér langa sögu
(borgin var stofnuð fyrir um þús-
und árum) séu listamenn enn að
skapa. Í því ljósi er ekki rétt að
dæma safnið hart; kannski á það
bara eftir að byggja upp kost sem
eitthvað kveður að, myndir sem
varið er í. Kannski verða þá ein-
hvern tímann til sölu eftirmyndir af
þeim verkum á torgum Cusco.
Skreytin list eða skreytilist
AF LISTUM
Árni Matthíassson
» Sitthvað af því hefðinefnilega eins getað
verið til sölu á Plazoleta
del Regocijo framan við
safnið – dæmigert túr-
istagums.
Cuy Síðasta kvöldmáltíðin að hætti cuscversks listamanns þar sem naggrís er í matinn.
Barbados
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
3
53
62
Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Aðeins 10 herbergi í boði á þessu verði!
Verð kr. 159.900
Netverð á mann, m.v. gistingu í
tvíbýli á Sandy Bay Beach Club
*** með allt innifalið í 10 nætur.
Ath. aðeins örfá herbergi í boði á
þessu sérstaka tilboðsverði.
11 nátta ferð 8. nóvember
kr. 10.000 aukalega.
Heimsferðir bjóða nú frábært tilboð á 10 og 11 nátta
ferðum til til einnar helstu ferðamannaparadísar heimsins,
Barbados í Karíbahafinu. Í boði er sértilboð á gistingu
á Sandy Bay Beach Club ***. Barbados hefur allt að
bjóða ferðamönnum. Hvítar, pálmavaxnar og víðfeðmar
draumastrendur, 25 gráðu heitan og kristaltæran sjó
og meðalhitastig rétt um 30 gráður allan ársins hring.
Hreinlega einstök umgjörð fyrir fríið! Gríptu þetta einstaka
tækifæri og bókaðu ferð til Barbados á frábærum kjörum.
Fjölbreytt gisting í boði.
Sandy Bay Beach Club
Vinalegt og vel staðsett hótel við fallega strönd.
Í grenndinni er fjöldi veitingastaða, kaffihúsa, bara
og verslana og stutt í hringiðu skemmtanalífsins
í St. Lawrence Gap. Á hótelinu eru 130 herbergi
með loftkælingu, gervihnattasjónvarpi,
útvarpi, síma, te-/kaffivél, kæli, öryggishólfi
(leiga), straujárni, strauborði og hárþurrku.
Vert er að benda á að herbergin eru lítil og
ekki með svölum. Á hótelinu er m.a. góður
sundlaugargarður, tveir veitingastaðir, strandbar
og margt fleira.
Allt innifalið
Á hótelinu er „allt innifalið“, þ.e. morgun-,
hádegis- og kvöldverður, innlendir drykkir bæði
áfengir og óáfengir, fjölbreytt vatnasport (án
mótors) o.fl., o.fl.
Frægast
a
eyja Kar
íba-
hafsins
ÓTRÚLEGT SÉRTILBO
29. okt. og 8. nóv.
10 eða 11 nætur
frá kr.159.900
– með allt innifalið
LAGIÐ „Big Jumps“ af nýútkom-
inni plötu Emilíönu Torrini, Me and
Armini, var lag dagsins á vefsíðu
dagblaðsins Times, Times Online, í
gær. Í umfjöllun segir að Emilíana
sé yndi í engilsformi frá Íslandi.
Menn eigi að kannast við röddina úr
aðallagi annarrar kvikmyndarinnar
um Hringadróttinssögu, sem sýnd
var fyrir sex árum, en Emilíana hafi
ekki náð þeim vinsældum enn sem
hún eigi skilið. Það muni ef til vill
breytast með útgáfu nýju plötunnar.
Í umfjöllun segir að „Big Jumps“
sé notalegt lag, hressilegt og að því
er virðist tileinkað því lífsmottói að
láta kylfu ráða kasti, m.a. í ásta-
málum og að trúa á sjálfan sig.
Eimilíana sé þó of svöl til að
þröngva boðskapnum upp á hlust-
endur, of mikil rólyndismanneskja
til þess. Það lofti um lagið og það sé
vissulega fallegt. Þá er bent á að hún
hafi samið lagið „Slow“ með Kylie
Minogue árið 2003. „Já, í alvöru!“ er
bætt við til undirstrikunar.
Fögur orð
um fallegt lag
Engillinn Emilíana Torrini.
myspace.com/emilianatorrini
LEIKSTJÓRINN Steven Spiel-
berg og kvikmyndafyrirtækin
Dreamworks, Viacom og Universal
Pictures hafa verið kærð fyrir
meintan stuld á söguþræði kvik-
myndar Alfreds Hitchcock, Rear
Window, og að hafa notað hann í
handriti myndarinnar Disturbia.
Með því hafi verið brotið á höfund-
arrétti.
Spielberg leikstýrði þó ekki
myndinni heldur er hann einn fram-
leiðenda og þ.a.l. einn hinna ákærðu.
Handrit Rear Window, frá árinu
1954, var unnið eftir smásögunni
Murder from a Fixed Viewpoint eft-
ir Cornell Woolrich. Hitchcock og
aðalleikari myndarinnar, James
Stewart, fengu rétt til að vinna
handrit úr smásögunni árið 1953. Í
kærunni gegn Spielberg og félögum
segir að þeir hefðu átt að gera slíkt
hið sama.
Sheldon Abend Revocable sjóð-
urinn, sem hefur umsjón með dán-
arbúi Sheldons nokkurs Abend sem
keypti höfundarréttinn að sögu Cor-
nell árið 1971, höfðaði málið.
Kærður fyrir höfundarréttarbrot
Úr Disturbia Fylgst með nágrönn-
unum. Shia LeBeouf og Sarah Roemer.
Rear Window Horft út um bakglugg-
ann. James Stewart og Grace Kelly.