Morgunblaðið - 20.09.2008, Page 1
L A U G A R D A G U R 2 0. S E P T E M B E R 2 0 0 8
STOFNAÐ 1913
257. tölublað
96. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
Leikhúsin
í landinu >> 43
DAGLEGTLÍF
Á NORRÆNUM
NAUMHYGGJUNÓTUM
ÍÞRÓTTIR
Blaðauki um hand-
knattleik kvenna
LESBÓK
„Ég veit að ég er á jarðsprengju-
svæði þegar ég er að skrifa fyrir
þetta fólk en mér finnst það líka
yfirþyrmandi heiður,“ segir Krist-
ín Helga Gunnarsdóttir rithöf-
undur.
Kristín Helga er á
jarðsprengjusvæði
Gunnar Stefánsson útvarpsmaður
gagnrýnir Þröst Helgason, Kol-
brúnu Bergþórsdóttur og fleiri fyr-
ir að tala illa um leiðinlegar bækur.
Hann kallar þá sem gera það í skjóli
nafnleyndar hugleysingja.
Huglausir höfundar
um leiðinlega klassík
Brian Eno og David Byrne hafa
tekið upp fyrra samstarf og sent
frá sér plötu á netinu, Everything
That Happens Will Happen Today.
Hún er frábrugðin fyrri verkum
þeirra.
Brian Eno og David
Byrne saman á ný
FLYTJENDUM óperanna vinsælu, Cavalleria Rusticana og Pagliacci, var
fagnað hraustlega að lokinni frumsýningu í Íslensku óperunni í gærkvöldi.
Að sögn óperugesta voru hljómsveit, kór og söngvarar hyllt með langvar-
andi lófataki og húrrahrópum eftir flutninginn. Augljóst var að fólk var
sérstaklega þakklátt fyrir að fá að sjá og heyra Kristján Jóhannsson á sviði
Óperunnar. Hér hlýða Kristján og Sólrún Bragadóttir á lófatakið.
Söngvarar hylltir í Íslensku óperunni
Morgunblaðið/Frikki
Ögmundur
Jónasson, for-
maður þingflokks
VG, vill skoða
þann möguleika
að ríkið styðji sjó-
flutninga við
landið. Búið sé að
fjárfesta í höfn-
um víða um land
og færðar hafi
verið sönnur á að
þungaflutningar á vegum séu óhag-
kvæmari og dýrari en flutningar á
sjó.
Hann bendir einnig á að verð á
áburði hafi tvöfaldast á skömmum
tíma og sé enn að hækka. Hann spyr
hvort ekki eigi að endurreisa áburð-
arverksmiðju hér á landi. » 20
Verður Áburðarverk-
smiðjan endurreist?
Ögmundur
Jónasson
Miklar hækkanir urðu á vísitöl-
um fjármálamarkaða víða um
heim í gær. Vestanhafs tóku
markaðir kipp eftir að tilkynnt
var um aðgerðir stjórnvalda til að
mæta fjármálakreppunni og smit-
aði sú hækkun út frá sér.
Úrvalsvísitala Kauphallarinnar
hækkaði um 5,23% í gær og
stendur nú í 4.055,84 stigum.
Gengi krónunnar styrktist
jafnframt um 2,15% í gær og var
lokagildi gengisvísitölunnar
172,2 stig. » 17
Hækkanir á mörkuðum
AP TIL stendur að auglýsa stöðu lög-
reglustjórans á Suðurnesjum í apríl
næstkomandi. Þá lýkur fimm ára
skipunartíma Jóhanns R. Benedikts-
sonar sem gegnt hefur embætti lög-
reglustjóra.
Eftir því sem næst verður komist
hefur ekki áður verið auglýst laus
staða forstöðumanns ríkisstofnunar
vilji forstöðumaðurinn á annað borð
sinna starfinu áfram.
„Ég get staðfest að mánudaginn 1.
september var mér afhent formlega bréf frá dóms-
málaráðherra þar sem mér var tilkynnt að staða mín
yrði auglýst laus til umsóknar,“ sagði Jóhann í gær. „Að
öðru leyti mun ég ekki tjá mig um þetta mál að svo
stöddu.“
Forsaga málsins er sú að dómsmálaráðherra gerði at-
hugasemdir við að rekstur embættisins hefði farið fram
úr fjárheimildum. Rekstraráætlun fyrir embættið árið
2008 var lögð fram í febrúar sl., en þar var gert ráð fyrir
210 milljóna viðbótarfjárveitingum. Ráðuneytið féllst
ekki á forsendur rekstraráætlunarinnar og 4. mars fékk
embættið sex daga til að koma með nýja áætlun.
Enginn botn fékkst í málið, þrátt fyrir fund Jóhanns
og Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra með starfs-
mönnum. Og níu dögum síðar lagði dómsmálaráðherra
til breytingar á skipan löggæslu-, öryggis- og tollgæslu-
mála á Suðurnesjum. Í framhaldi af því óskaði Jóhann
eftir viðræðum um starfslok við settan dómsmálaráð-
herra en skilaði ekki inn uppsögn. Ekki náðist samstaða
í stjórnarflokkunum í vor um tillögur dómsmálaráð-
herra.
Jóhann var skipaður sýslumaður á Keflavíkurflugvelli
árið 1999 og síðan gerður að lögreglustjóra á Suð-
urnesjum árið 2007. Samkvæmt heimildum hyggst hann
ekki sækja um starfið þegar það verður auglýst.
Skipt um lögreglustjóra
Jóhanni R. Benediktssyni tilkynnt í bréfi frá dómsmálaráðherra að staða
hans verði auglýst í apríl á næsta ári Jóhann tjáir sig ekki að svo stöddu
Jóhann R.
Benediktsson
Eftir Pétur Blöndal
pebl@mbl.is
Aðfaranótt föstudags ól kona
barn um borð í einni af farþegaþot-
um Latcharter, dótturfélags Ice-
landair Group. Farþegaþotan er
leigð til Virgin Nigeria og var í
áætlunarflugi frá Lagos til Gatwick
í London. Kona um borð var komin
það langt á leið að hún mátti ekki
fljúga, samkvæmt reglum flug-
félagsins, en sem betur fer gekk
fæðingin vel og fæddi hún svein-
barn. „Svo heppilega vildi til að
tveir læknar og ljósmóðir voru far-
þegar um borð,“ segir Garðar For-
berg, forstjóri Latcharter. „Hversu
líklegt er það!?“ bætir hann við og
hlær. pebl@mbl.is
Fæðing í farþegaþotu
BJÖRN Bjarna-
son dóms-
málaráðherra
segir að verið sé
að auglýsa stöðu
sýslumannsins á
Suðurnesjun og í
því tilliti sé farið
eftir lögum og
reglum um að til-
kynna verði fyr-
irætlunina með 6 mánaða fyrirvara.
Spurður hvort þetta sé óvenjulegt,
segir hann að spyrjandi verði að
kanna það. orsi@mbl.is
Unnið eftir lög-
um og reglum
Björn Bjarnason