Morgunblaðið - 20.09.2008, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 20.09.2008, Qupperneq 4
4 LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR FRÉTTASKÝRING Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is TILRAUNIR eru hafnar hér á landi með ræktun repju til framleiðslu jurtaolíu í eldsneyti. Ef plantan lifir veturinn af verða akrarnir skærgulir í vor og næsta haust verður hægt að safna olíuríkum fræjum. Siglingastofnun Íslands stendur fyrir athugun á umhverfisvænum orkugjöfum fyrir íslensk skip, sam- kvæmt ákvæðum í samgönguáætlun. Jón Bernódusson, verkfræðingur á rannsókna- og þróunarsviði stofn- unarinnar, segir að byrjað hafi verið á því að keyra skipavél í Fjöltækni- skóla Íslands á innfluttri lífdísilolíu. Olían er framleidd úr repju sem ræktuð er víða um heim. Var því tek- ið upp samstarf við Landbúnaðarhá- skóla Íslands um tilraun til rækt- unar vetrarafbrigðis repju hér á landi. Lifir kálið af veturinn? Repju var sáð í júlí í akra á níu stöðum, vítt og breitt um landið. Á sömu stöðum var sáð fyrir nepju sem er harðgerðara afbrigði. Þóroddur Sveinsson, tilraunastjóri Landbún- aðarháskóla Íslands á Möðruvöllum í Eyjafirði, segir tilganginn að kanna skilyrði til ræktunar þessara teg- unda á mörgum stöðum og við sem fjölbreyttust skilyrði. Plantan kom fljótt upp í sumar og hefur vaxið ágætlega. Kálið á að standa í vetur. Telur Þóroddur að það sé mesti áhættuþátturinn, hvort plantan lifi af íslenska veturinn. Hann getur þó um litla tilraun sem gerð var í til- raunastöð Landbúnaðarháskólans á Korpu og gaf góða raun. Ef allt gengur að óskum fer plant- an að mynda blóm snemma í vor og þá verða akrarnir skærgulir. Blómin breytast í kúlur sem geyma og þroska olíurík fræin. Næsta haust verður fræjunum safnað með þreski- vél. Stöngullinn er skilinn eftir til að bæta jarðveginn. Jón Bernódusson segir að til þess að hægt að sé að nota jurtaolíuna í stað dísilolíu á óbreyttar dísilvélar þurfi að blanda hana með tréspíra og hreinsa með sóda. Það er verk- smiðjuframleiðsla. Rækta eldsneyti fyrir Herjólf Við framleiðsluna fellur til hrat, sem unnt er að köggla og nota í dýrafóður í stað fiskimjöls, og gly- serín sem notað er við snyrtivöru- framleiðslu. Hvert kíló af dísilolíu sem notað er á skip eða bíla býr til liðlega þrjú kíló af koltvísýringi. Með því að rækta eldsneytið innanlands mætti kolefn- isjafna alla orkunotkun skipaflotans en til þess þyrfti akra á stærð við Mýrdalssand. Einn af tilraunareit- unum er á Landeyjasandi og er hug- myndin að nota jurtina þar til upp- græðslu með öðrum tegundum. Heppnist tilraunin mætti rækta allt eldsneyti fyrir nýja Herjólf sem sigl- ir þaðan til Vestmannaeyja. Eldsneyti fyrir skipaflota landsmanna Kál Repjan er falleg en spurning hvort hún lifir veturinn af. Tilraunir gerðar með ræktun repju og nepju á níu stöðum á landinu Eftir Andra Karl andri@mbl.is SAMNINGANEFNDIR ríkisins og Læknafélags Íslands munu funda að nýju í Karphúsinu eftir hádegið í dag. Upp úr fundi slitnaði á sjötta tímanum í gærkvöldi en samkomu- lag náðist um að reyna aftur í dag. Birna Jónsdóttir, formaður Læknafélagsins, segir líklegt að í lok fundar í dag verði ljóst hvort Gunnar Ármannsson, formaður samninganefndar lækna, sagði við fréttavef Morgunblaðsins í gær að ríkið hefði ekkert nýtt haft fram að færa í viðræðum gærdagsins. „Ef við myndum skrifa undir það tilboð, sem nú stendur á borðum, myndu læknar byrja með lægri byrjunar- laun heldur en ljósmæður. Það seg- ir sig náttúrlega strax að það er eitthvað sem læknar geta alls ekki skrifað undir.“ samningar náist eða málin verði í algjörum hnút. „Við erum að reyna að semja og það er verið að vinna að því verkefni. Það er svona málið í hnotskurn,“ segir Birna Ekkert nýtt hjá ríkinu Birna vill ekki úttala sig um miðl- unartillögu ríkisins til ljósmæðra. „En ég hef það enn fyrir skoðun að við sættum okkur ekki við eitthvað lakara en ljósmæður fá.“ Sætta sig ekki við neitt lakara  Samninganefndir ríkisins og Læknafélags Íslands funda aftur í dag en viðræður sigldu í strand í gær  Læknar fengju lægri byrjunarlaun en ljósmæður samþykktu þeir tilboð samninganefndar ríkisins Birna Jónsdóttir Gunnar Ármannsson Í HNOTSKURN »Í miðlunartillögu ríkisinstil ljósmæðra er gert ráð fyrir 22,6% hækkun launa. »Samninganefndir ríkisinsog lækna náðu saman fyrr á árinu en samningur var felldur. SÍLD úr norsk-íslenska stofninum hefur verið fryst á nokkrum stöð- um austanlands undanfarna daga, á Þórshöfn, Vopnafirði og í Neskaup- stað. Skipin eru að veiðum skammt út af Austfjörðum. Þessa dagana er verið að frysta síld í frystihúsi Ísfélags Vest- mannaeyja á Þórshöfn. Er þetta í fyrsta skipti sem síld úr norsk- íslenska stofninum er fryst á Þórs- höfn og þrjú ár eru liðin frá því Ís- landssíld var fryst á staðnum. Rafn Jónsson rekstrarstjóri reiknaði með því að fryst yrðu 200 til 300 tonn úr því hráefni sem komið var. „Við reynum að gera sem mest úr þessu, ef síldin veiðist áfram hér fyrir utan,“ sagði Rafn. Íslensk síld er blönduð þeirri norsk-íslensku. Veiðar hafa gjarn- an hafist í byrjun október. Jón Már Jónsson hjá Síldarvinnslunni segir útlitið gott við upphaf vertíðar og vonast til að hægt verði að vinna síld fram undir jól. helgi@mbl.is Byrjað að frysta síld á Austfjörðum TVÆR rússneskar sprengjuflug- vélar af gerðinni TU-160 flugu í gegnum loftrými Íslands á fimmtu- dag á heimleið frá Venesúela, eftir að hafa tekið þátt í heræfingum á Karíbahafi. Urður Gunnarsdóttir, fjölmiðla- fulltrúi utanríkisráðuneytisins, seg- ir að vélarnar hafi tilkynnt komu sína fyrirfram. Rússavélar fóru í gegn Reuters Sprengjuvélar Rússar tilkynntu stjórnvöldum komu véla sinna. Fjármálaeft- irlitið samþykkti í gær umsókn Byrs sparisjóðs um breytingu sparisjóðsins í hlutafélag á grundvelli 73. gr. laga nr. 161/ 2002, um fjár- málafyrirtæki. Breytingin var jafn- framt samþykkt á fundi stofnfjár- eigenda hinn 27. ágúst síðastliðinn. Breyting á félagaformi Byrs spari- sjóðs hefur engin áhrif á starfsleyfi sparisjóðsins, að því er fram kemur í fréttatilkyningu frá Fjármálaeft- irlitinu. Byr breytist í hlutafélag Hvers konar jurt er repja? Hún er sumar- eða vetrareinær, há- vaxin káltegund með stólparót og öflugan stöngul. Blómin eru skærgul og eftir blómgun breytast þau í kúlu sem geymir og þroskar fræin. Blöð repjunnar eru stór, fjaðurstrengjótt og stakstæð á stönglinum. Hver er munurinn á afbrigðum? Hér á landi eru notuð tvö afbrigði, sumar- og vetrarrepja. Sumarrepjan sprettur hratt, verður allt að hálfur annar metri á hæð og fer að blómstra eftir rúma tvo mánuði. Vetrarrepjan sprettur mun hægar, liggur í dvala yfir veturinn og blómstrar að vori. Til hvers er hún notuð? Repja er notuð til að framleiða lífdí- silolíu víða í Evrópu og í Bandaríkj- unum. Jurtaolían er þá uppistaðan í eldsneytinu. Einnig er matarolía gerð úr henni. Hér á landi hefur repja eingöngu ver- ið ræktuð sem fóður fyrir mjólkurkýr og lömb, eins og sjá má víða í sveit- um þessa dagana. Er plantan beitt í heilu lagi – oft nefnd fóðurkál. S&S „ÞETTA hefur gengið ágætlega. Ég er núna í stríði við gæsina. Hún sækir mikið í þetta,“ segir Knútur Arnar Óskarsson, bóndi á Ósum á Vatnsnesi, sem tekur þátt í repjurannsókn Siglingastofnunar og Landbúnaðarháskól- ans. Myndin er frá Manitoba í Kanada þar sem repja er mikið ræktuð. Sáð var á níu stöðum í landinu, í hálfan hektara af vetrarrepju og hálfan hektara af vetrarrepju á hverjum stað. Knútur segir að plantan hafi komið upp þrettán dögum eftir að henni var sáð og ræktunin gengið vel. Fram- haldið fari svo eftir vetrinum. Knútur hefur fylgst af áhuga með umræðu um framleiðslu á lífdísilolíu og hafði strax áhuga á að taka þátt í ræktuninni. „Þetta er skemmtilegt verkefni og gott ef hægt er að gera eitthvað nýtt í landbúnaðinum,“ segir Knútur. Hann rekur ferðaþjónustu og fær oft bændur utan úr Evrópu í heimsókn. Af þeim samtölum ræður hann að ræktunin skili ekki miklum arði og telur að hún væri lítið stunduð án styrkja Evrópusambandsins. Ljósmynd/Corbis „Er í stríði við gæsina“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.