Morgunblaðið - 20.09.2008, Qupperneq 6
6 LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Sigtrygg Sigtryggsson
sisi@mbl.is
GÍSLA Gíslasyni hafnarstjóra Faxaflóahafna
hefur verið falið að gera tillögu að breyttri og
víðtækari nýtingu verbúðanna við Reykjavík-
urhöfn, þar sem m.a. verði heimiluð þjónusta og
verslun. Er vinna við tillögugerðina þegar hafin.
Verbúðirnar sem um ræðir eru á tveimur
stöðum við höfnina. Í fyrsta lagi í grænu hús-
unum við Geirsgötu og hins vegar í húsalengju á
Grandagarði. Starfsemi í verbúðunum við Geirs-
götu hefur breyst hægt og bítandi frá því að hún
var alfarið aðsetur fyrir smábátaútgerð. Þar er
m.a. að finna tvo veitingastaði, sushi-stað og
hinn þekkta veitingastað Sægreifann. Þá hefur
Sjóstangaveiðifélag Reykjavíkur komið sér upp
aðstöðu í verbúðunum.
Að sögn Gísla Gíslasonar er hugmyndin að
nyrstu verbúðirnar við Grandagarð verði áfram
notaðar í þágu smábátaútgerða, sem þurfi að
hafa aðstöðu við höfnina. Ætlunin sé að breyta
starfseminni í syðri hluta verbúðanna. Þarna
mætti opna fyrir annars konar starfsemi, svo
sem létta verslun eða þjónustu, veitingahús og
menningarstarfsemi. Nú þegar sé vísir að slíkri
starfsemi á svæðinu. Gísli segir engum vafa und-
irorpið, að það myndi hleypa lífi í Grandann að
breyta notkun verbúðanna. Nokkurn tíma tekur
að hrinda þessum breytingum í framkvæmd.
Meðal annars þarf að breyta deiliskipulagi svæð-
isins.
Aukið líf færist í verbúðir við höfnina
Hafnarstjóra falið að koma með tillögur að breyttri og víðtækari nýtingu en hingað til
Stefnt er að veitingastarfsemi og margvíslegri þjónustu á Grandagarði í framtíðinni
Í HNOTSKURN
»Gömlu verbúðinar viðGeirsgötu hafa verið að
vakna til lífsins, m.a. með til-
komu veitingastaða.
»Hugmyndin er að takahluta verbúðanna á
Grandagarði undir léttari
starfsemi, svo sem veit-
ingastaði, þjónustu og menn-
ingarstarfsemi.
»Á Grandagarði er nú þeg-ar fyrir hendi starfsemi
sem hefur dregið að sér gesti.
Má þar nefna Sjóminjasafnið
og hinn sívinsæla veit-
ingastað Kaffivagninn.
Morgunblaðið/G.Rúnar
Nýtt hlutverk Ný starfsemi verður í verbúðunum á Grandagarði ef áætlanir ganga eftir.
FRÉTTASKÝRING
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
VIKAN sem leið var ein sú versta
í lóðamálum í Hafnarfirði í langan
tíma. Tveimur til fimm lóðum var
skilað upp á hvern einasta dag, að
sögn Lilju Ólafsdóttur, fulltrúa í
fasteignaskráningu hjá Hafnar-
fjarðarbæ. Mest ber á því að ein-
býlishúsalóðum sé skilað, en einn-
ig eru dæmi um lóðir fyrir parhús,
atvinnuhúsnæði og hesthús.
Sömu lóð úthlutað þrisvar
Flestar eru lóðirnar á svæðinu
Vellir 7, en 1. apríl sl. var 129 par-
og einbýlishúsalóðum úthlutað
þar. Einhverjum þeirra verður lík-
lega úthlutað í þriðja skiptið á
næstunni. Eftirspurn er að sögn
ennþá nokkur og stefna bæjarins
að halda áfram að bjóða þær á
meðan svo er. Þetta er dýrt fyrir
bæjarfélagið. Vinna við úthlutun
og afsöl, auk þess sem end-
urgreiða þarf lóðirnar til þeirra
sem skila. Samningar eru bundnir
byggingavísitölu eða vísitölu
neysluverðs, svo bæjarfélagið
borgar meira til baka en það fékk.
Á fleiri stöðum rignir lóðunum
inn. Tæplega 140 hefur verið skil-
að í Smalaholti, Hnoðraholti,
Rjúpnahæð og Vatnsendahlíð í
Kópavogi, af tæplega 530 sem út-
hlutað hefur verið frá áramótum.
Um 20 hefur verið endurúthlutað,
að sögn Þórs Jónssonar, upplýs-
ingafulltrúa. Bæjarráð brást á
þriðjudag við með lækkun yf-
irtökugjalds, auknum stað-
greiðsluafslætti og lækkun vaxta á
skuldabréfum í Vatnsendahlíð.
Hingað til hefur 50 lóðum verið
skilað í Úlfarsárdal og á Reynis-
vatnsás, en 10 lóðum hefur verið
endurúthlutað, að sögn Jóhanns
Levís Logasonar, lögfræðings hjá
framkvæmda- og eignasviði borg-
arinnar. Næst verður úthlutað, og
endurúthlutað, í Úlfarsárdal eftir
um sex vikur.
Fjórum lóðum hefur verið skilað
í Hveragerði það sem af er ári.
Einnig hefur fyrstu úthlutun lóða í
svonefndu Kambalandi verið
seinkað um eitt ár.
Hægir á uppbyggingunni
Í Mosfellsbæ eru Leirvogstunga
og Helgafellsland í uppbyggingu á
vegum einkaaðila. Bjarni Guð-
mundsson hjá Leirvogstungu segir
lítið um að lóðasölur gangi til baka
vegna fjárskorts, þess séu þrjú
dæmi. Annars gengur uppbygging
hverfisins vel að hans sögn, vissu-
lega hefur hægt mikið á en hann
furðar sig þó á hversu mikið er í
gangi. Hannes Sigurgeirsson,
framkvæmdastjóri Helgafells seg-
ir mikinn áhuga á lóðum en salan
lætur þó á sér standa. Ekki eru
dæmi um samninga sem ganga til
baka hjá honum. Hann segir verk-
taka sem byggir fjölbýlishús á
svæðinu hafa selt íbúðir ágætlega
að undanförnu.
Morgunblaðið/Kristinn
Lóðir Nýja hverfið á Reynisvatnsási má bíða þess enn um sinn að verða fullgert, gróið og heimilislegt. Margt fólk skilar nú lóðum þar og á fleiri svæðum.
Tvær til fimm lóðir á dag
Ein versta vika í lóðamálum Hafnarfjarðar, mikil skil á lóðum valda kostnaði
50 lóðum hefur verið skilað í nýjum hverfum Reykjavíkur, en 140 í Kópavogi
FOKKER-flugvél Landhelg-
isgæslu Íslands bilaði í Syðri-
Straumsfirði á Grænlandi seint
að kvöldi sl. fimmtudags. Sam-
kvæmt upplýsingum frá Höskuldi
Ólafssyni, tæknistjóra Landhelg-
isgæslunnar, kom upp bilun í
mæli sem mælir afl annars hreyf-
ilsins en ekki er hægt að fljúga
án hans.
Að sögn Höskuldar var vara-
hluturinn, sem á þurfti að halda
til viðgerðar, til hérlendis og var
honum komið til Grænlands.
Höskuldur sagði viðgerðina
sjálfa ekki taka langan tíma.
Flugvélin lenti svo heilu og
höldnu á Reykjavíkurflugvelli um
kvöldmatarleytið í gærkvöldi.
Vélin var stödd á Grænlandi
vegna æfingar og ráðstefnu sem í
tóku þátt landhelgisgæslur allra
Norðurlandanna.
Fokker-flug-
vélin bilaði á
Grænlandi
Heim á leið Mælir í Fokker-flugvél
Landhelgisgæslunnar bilaði.
ADOLF Guð-
mundsson, fram-
kvæmdastjóri
Gullbergs á
Seyðisfirði, hef-
ur tilkynnt að
hann muni bjóða
sig fram til for-
manns Lands-
sambands ís-
lenskra
útvegsmanna á
næsta aðalfundi samtakanna sem
haldinn verður 30. og 31. október
nk. Þetta kemur fram á heimasíðu
LÍÚ en fyrir liggur að Björgólfur
Jóhannsson mun ekki gefa kost á
sér til endurkjörs.
Adolf er lögfræðingur að mennt.
Hann er stjórnarformaður frysti-
hússins Brimbergs ehf. á Seyð-
isfirði. Hann hefur frá 2003 verið
formaður Útvegsmannafélags
Austurlands og hefur hann átt sæti
í stjórn LÍÚ frá 2005.
Adolf í fram-
boði til LÍÚ
Adolf
Guðmundsson
Hvað eru margar íbúðir í bygg-
ingu í landinu núna?
Áætlað er að ónýttar nýjar íbúðir á
höfuðborgarsvæðinu séu um 2.400
talsins, en með úthlutuðum lóðum
og byggingum í smíðum sé talan
nær 5.900. 3.500 lóðir og hálf-
byggð hús eru því til á svæðinu, en
í júlí var áætlað að um 1.000 íbúðir
til viðbótar væru í byggingu annars
staðar á landinu. Talan gæti því
verið nálægt 4.500 íbúðum. Aldrei
hafa fleiri íbúðir risið samtímis en í
árslok 2007, þegar talið er að
6.200 nýjar íbúðir hafi verið í bygg-
ingu.
Hverjir skila lóðum sem þeir
hafa fengið úthlutaðar?
Flestir eru undir sömu sök seldir
hvað þetta varðar. Verktakar, fyr-
irtæki, fjölskyldur og einstaklingar
skila lóðum vegna fjárskorts. Einnig
hafa hestamenn skilað lóðum undir
ný hesthús, til að mynda í Hafn-
arfirði. Eftirspurn eftir lóðum er
víða farin að láta mjög undan síga.
S&S