Morgunblaðið - 20.09.2008, Síða 10
10 LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
VEÐUR
Davíð Oddsson seðlabankastjóriog fyrrverandi forsætisráð-
herra fór á kostum í ítarlegu viðtali í
Íslandi í dag á Stöð 2 í fyrrakvöld og
talaði mannamál. Hans tungutak er
þannig að allir skilja. Auðvitað sýn-
ist mönnum alltaf sitt hverjum, þeg-
ar Davíð á í hlut: hann var umdeild-
ur pólitíkus og hann er umdeildur
seðlabankastjóri.
Sumir elska aðhata Davíð,
aðrir elska að dá
hann. Hann er all-
tént ekki einn
þeirra, sem þurfa
að óttast það að
vera ekki í um-
ræðunni eða að
menn hafi ekki
skoðanir á honum.
Það var réttmæt ábending fráDavíð, að íslensku bankarnir
eru ekki verr staddir en aðrir bank-
ar og því hafi ekki verið réttmætt að
draga þá í sérstakan dilk.
Davíð hafði greinilega lúmsktgaman af því að sýna aðeins í
sér hinar gömlu, pólitísku tennur,
sem augljóslega eru hvergi nærri
bitlausar enn.
Hann hafði t.d. augljósa ánægju afþví að rifja upp að það voru
greinendur frá Merrill Lynch og
Lehmann sem töldu að íslensku
bankarnir stæðu afar illa. „Þessir
bankar eru þó horfnir af sjónarsvið-
inu, en íslensku bankarnir standa
enn,“ sagði Davíð.
Sömuleiðis virtist Davíð alls ekk-ert leiðast, þegar hann sagði:
„Við vissum að okkar kæru, nor-
rænu frændur og bræður höfðu
áhyggjur af okkur en við höfum líka
séð vandamál koma þar fyrir, sem
við auðvitað tökum nærri okkur.“
Er það svo?!
STAKSTEINAR
Davíð Oddsson
Davíð og mannamál
!
"
#$
%&'
(
)
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
!
:
3'45 ;4
;*<5= >?
*@./?<5= >?
,5A0@ ).?
" " " " " "
*$BC
!"#$ !
*!
$$B *!
#
$ % &
$ &
'
(&
)(
<2
<! <2
<! <2
#
'&% *
+ ,!(-
C$ -
"%
!
62
!"&
'
!"() *
B
%* %* &+
!
",- !
./ (00
(& 1 (
!( *
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
FRÉTTIR
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
HÆSTIRÉTTUR hefur ógilt ákvörðun Landspít-
ala um að flytja konu, hjúkrunarfræðing, úr starfi
af geðdeild 33-C við Hringbraut á deild 15 á
Kleppi. Kom ákvörðunin til vegna atviks sem átti
sér stað utan vinnutíma milli konunnar og annars
hjúkrunarfræðings, karlmanns, sem starfaði á
sömu deild spítalans. Spítalinn var einnig dæmdur
til að greiða konunni 800 þúsund krónur í miska-
bætur.
Í dómi Hæstaréttar kemur fram að konan hafi
ásamt manninum og öðrum hjúkrunarfræðingum
verið í samkvæmi hjá deildarstjóra 33-C kvöld eitt
í september árið 2006. Að samkvæmi loknu héldu
bæði heim til konunnar, en þeim ber ekki saman
um hvað fór þeim á milli.
Áreitti manninn ekki kynferðislega
Maðurinn bar að konan hefði gengið mjög nærri
honum við að reyna fá hann til kynmaka við sig.
Og hafi það jaðrað við kynferðislega áreitni. Kon-
an sagði fyrir dómi að saga mannsins væri að
mestu uppspuni og því færi víðs fjarri að hún hefði
áreitt hann kynferðislega.
Eftir atvikið kvartaði maðurinn við yfirmann
beggja og lýsti því yfir að hann gæti ekki unnið
með konunni. Það varð úr að konan var flutt til í
starfi óviljug. Hún sætti sig ekki við þau málalok
og kærði ákvörðunina.
Hæstiréttur lítur til þess að í skýrslutöku kom
fram að maðurinn hefði sjálfur verið tilbúinn að yf-
irgefa deildina og hefði viðrað það við yfirmann-
inn. Engin fagleg né málefnaleg ástæða hefði því
verið fyrir ákvörðun yfirmannsins.
Ákvörðun yfirmanns dæmd ógild
Hjúkrunarfræðingur á Landspítalanum var færður til í starfi án faglegrar ástæðu
PÓSTVITI, öryggistrampólín,
hlaupahjólastandari, regnvatns-
virkjun, dyrabjalla sem tekur við
skilaboðum og húfuhjálmur eru
meðal margra góðra hugmynda
sem lagðar voru fram í nýsköp-
unarkeppni grunnskólanna.
Alls bárust 3.632 hugmyndir frá
2.325 börnum og unglingum úr
grunnskólum landsins. Grunn-
skólar sem tóku þátt voru 65 tals-
ins. Þetta er 17 keppnisár keppn-
innar og hafa aldrei fleiri tekið
þátt. „Það er greinilegt að mikill
sköpunarkraftur, ímyndunarafl og
hugmyndaauðgi býr í ykkur börn-
unum sem munið stjórna landinu í
framtíðinni. Haldið áfram að leita
að lausnum til að bæta umhverfi
okkar, og koma þeim á framfæri,“
segir í fréttatilkynningu.
Mat á tillögum er byggt á
þriggja stiga matsferli þar sem
hagnýti, raunsæi, nýnæmi og
markaðshæfi voru lögð til grund-
vallar.
Nöfn þátttakenda er að finna á
vefsíðunni www.nkg.is. egol@mbl.is
Gaman Krakkarnir í vinnusmiðjunni fóru í óvissuferð og þar var gaman.
Dyrabjalla sem tekur
við skilaboðum
Nýsköpunarkeppni grunnskóla
Eftir Jón Pétur Jónsson
jonpetur@mbl.is
ÞAÐ VAR létt yfir samninganefnd
ljósmæðra er hún gekk inn í hús rík-
issáttasemjara um tvöleytið í gær,
enda ljóst að samkomulag hafði
náðst í kjaradeilu þeirra og ríkisins.
„Við erum sáttar við þetta. Þetta
er enginn fullnaðarsigur en stórt
skref,“ sagði Guðlaug Einarsdóttir,
formaður Ljósmæðrafélags Íslands,
þegar niðurstaðan hafði verið til-
kynnt með formlegum hætti í Karp-
húsinu. Hún bætti hins vegar við að
enn væru nokkur skref eftir. „Við
eigum svona 10% í land til þess að
vera jafnokar hinna, okkur sambæri-
legra stétta.“
22,6% hækkun
Núgildandi kjarasamningur ljós-
mæðra verður framlengdur frá og
með 1. ágúst sl. til 31. mars á næsta
ári. Skv. samkomulaginu hækka
grunnlaun ljósmæðra um 22,6%. Að
sögn Guðlaugar getur þetta því
hækkað laun meðalljósmóður á
bilinu 70-90 þúsund krónur á mán-
uði. Meðallaunin án vaktaálags voru
306.000 kr. „Þetta gildir til loka
mars, og þá mætum við aftur til
leiks,“ sagði Guðlaug.
Samþykkt var að leggja af svo-
nefndan vísindasjóð, en í hann hafa
vinnuveitendur greitt 1,5% af laun-
um. Hefur launataflan verið hækkuð
sem því nemur.
Verkföllum aflýst
Alls greiddi 191 ljósmóðir, eða
82,68 % félagsmanna, atkvæði um
tillöguna og 162 samþykktu hana, 22
höfnuðu og 7 skiluðu auðu.
Þar sem miðlunartillagan hefur
verið samþykkt verður hætt við öll
boðuð verkföll auk þess sem fé-
lagsdómsmálið mun falla niður.
Löng samningalota er að baki,
sem teygir anga sína aftur til apríl.
Að sögn Guðlaugar er samninga-
nefndin fegin að komast loks heim í
faðm fjölskyldunnar. „Fjögurra ára
gömul dóttir mín sagði við mig í
morgun [gær] að hana hefði dreymt
vinnuna mína. Þá er þetta farið að
hafa mikil áhrif á fjölskylduna líka,“
sagði hún.
Ásmundur Stefánsson ríkissátta-
semjari, sem lagði fram miðlunartil-
lögu aðeins í annað sinn á ferlinum á
þriðjudag, kvaðst hafa verið bjart-
sýnn á að miðlunartillagan yrði sam-
þykkt. „Ég var bjartsýnn á það
vegna þess að ég taldi að þetta væri
það sem mundi geta náð aðilum sam-
an, og það mat reyndist rétt,“ sagði
hann.
Gunnar Björnsson, formaður
samninganefndar ríkisins, vildi ekki
tjá sig um niðurstöðuna þegar Morg-
unblaðið leitaði viðbragða hans.
Ljósmæður og fjármálaráðherra samþykktu miðlunartillögu ríkissáttasemjara
„Enginn
fullnað-
arsigur“
Morgunblaðið/Kristinn
Vöffluskál Mikil gleði ríkti í Karphúsinu í gær þegar samningar á milli ríkisins og ljósmæðra var í höfn. Og eins og
lög gera ráð fyrir voru bakaðar vöfflur auk þess sem skálað var í freyðivíni í tilefni dagsins.