Morgunblaðið - 20.09.2008, Page 35

Morgunblaðið - 20.09.2008, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 2008 35 saman. Þú varst alltaf svo hress og kátur og góður afi. Kveðjum þig að sinni. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir.) Þínir langafastrákar, Aron Máni og Elí Kristinn. Kæri bróðir. Þá hefur þú verið kallaður yfir móð- una miklu, til ástvina okkar sem farnir eru. Langar mig að minnast þín með nokkrum orðum. Er við hittumst fyrst komst þú með Svenna bróður okkar á bátnum hans til Raufarhafnar frá Þórshöfn. Svenni bað mig um að fara með þig til að hitta systur okkar sem voru í síldarbragga á Borgum. Var það mér minnisstætt því að þá vissi ég ekki að við værum bræður, þar sem þú varst búsettur í Vestmannaeyjum og áttir þar fjölskyldu en ég á Rauf- arhöfn. Þú komst oft austur til Þórshafnar, þar áttir þú þína æsku, systkini og uppeldissystkini sem voru þér afar kær. Kynni okkar urðu svo meiri í seinni tíð eftir að þú fluttir til Reykja- víkur og ég á Suðurnesin, en þú komst oft í heimsókn til okkar með hana Ellu þína, sem nú hefur tekið á móti þér. Ég vil einnig minnast allra góðu stundanna með þér og Þóru vinkonu þinni, sem reyndist þér svo vel í alla staði og áttuð þið margar góðar stundir alveg fram til síðasta dags. Ég vil að lokum þakka þér tímann sem ég átti með þér, kæri bróðir, og bið ég góðan Guð að styrkja börnin þín, Þóru og aðra aðstandendur. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (Vald. Briem.) Bergþór og Hulda. Gunnar bróðir hefur kvatt þetta líf. Hann var elstur þriggja hálfbræðra minna sem nú allir eru látnir með stuttu millibili ásamt tveimur alsystk- inum Gerðu og Önnu, öll fyrir aldur fram. Ella og Gunnar bjuggu í Eyjum fram að gosi en fluttu eins og svo margir ekki aftur til baka. Þau eign- uðust þrjú börn sem öll eiga fjölskyld- ur. Gunnar var alltaf hress og kátur og var oft gaman hjá okkur Önnu, Pétri, Gunna og Ellu sem vorum hér í Eyj- um. Mér finnst ótrúlegt að þau séu öll farin svona ung frá okkur, þau eru vonandi öll í faðmi foreldra okkar. Gunnar kom oft til Eyja í heimsókn og síðustu ár með góðri sambýliskonu sinni Þóru og voru þau svo hress og gaman að fá þau að spjalla, hlæja og hafa gaman saman og þakka ég henni það sem hún gerði fyrir hann. Ég veit að Ella hefur tekið vel á móti þér ásamt Önnu, Pétri, Gerðu, Dagga og Svenna, pabba og mömmu. Elsku Klara, Elsa og Gunnar H., Þóra og fjölskyldur, ég votta ykkur innilega samúð og bið Guð að gæta ykkar. Þórdís og Richard. Kæri Gunnar, mig langar að minn- ast þín með nokkrum orðum. Þín sem varst okkur öllum svo góður og reynd- ist Magga mínum svo vel og varst hans besti vinur. Ég þakka þér allar góðu stundirnar sem við áttum sam- an. Yndislegu ferðina út í Flatey á Breiðafirði í sumar sem var svo vel heppnuð í góða veðrinu. Þakka ánægjulega ferð í kringum landið. Að síðustu þakka ég árin sem við áttum saman. Við Maggi söknum þín sárt. Blessuð sé minning þín. Samúðarkveðjur til barna og allra aðstandenda. Þóra Gunnarsdóttir. ✝ Ingunn MaríaHalldóra Guð- mundsdóttir fæddist í Bolungarvík 6. júlí 1923. Hún andaðist á öldrunardeild Heil- brigðisstofnunar Ísafjarðar 8. sept- ember síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Guðmundur Steinsson sjómaður, f. á Ósi í Bolung- arvík 16.10. 1875, fórst með vélbátnum Agli frá Bolung- arvík 7.11. 1923, og Jóna Sigríður Halldórsdóttir, f. 13.9. 1879, d. 28.12. 1956. Hálfsystkini Halldóru samfeðra voru Sigurvin, f. 1902, d. 1919, Sigríður Jóna, f. 1903, d. 1983, Steinn, f. 1904, d. 1991, Hannibal Jóhannes, f. 1907 d. 1984, Elín Kristjana, f. 1908, d. 1984, Guðlaug Guðrún, f. 1911, d. 1911, Guðmundur, f. 1913, d. 2006, og Arnór Gunnar, f. 1915, d. 1916. Hálfbróðir sammæðra var Halldór Ingimar Guðmundsson, f. 1905, d. 1909. Eftir að faðir Halldóru fórst fór hún ung í fóstur til Guðna Ein- arssonar og Bjarnveigar Guð- mundsdóttur á Seljalandi í Álfta- firði við Ísafjarðardjúp. Halldóra ólst upp með sonum þeirra hjóna Guðna og Bjarnveigar, þeim Guð- mundi, f. 1900, d. 1995, Arinbirni Guðmundi, f. 1906, d. 1983, Magn- úsi Sigurði, f. 1909, d. 1937, Bjarna Sigurgeiri, f. 1911, d. 1987, Magn- 1.3. 1994. 3) Jóhann Ingdór, f. 10.11. 1959. Maki Beata Joó, f. í Ungverja- landi 25.1. 1963. Börn: a) Hanna Lára, f. 20.11. 1994, Aron Ottó, f. 11.11. 1996, og Hilmar Adam, f. 15.7. 1998. 4). Guðbjörn Salmar, f. 16.11. 1962. Maki Ingibjörg Snorra- dóttir Hagalín, f. 4.8. 1962. Þau skildu. Börn Edda María, f. 26.8. 1982, Auðunn Bragi, f. 26.11. 1986, og Salmar Már, f. 3.5. 1994. Halldóra lauk námi við Hjúkr- unarskóla Íslands í maí 1950 og starfaði við Landspítalann frá 1. júní 1950 til 1. okt. sama ár er hún sneri aftur heim og hóf störf á Sjúkrahúsi Ísafjarðar þar sem hún vann allan sinn starfsaldur. Hall- dóra og Jóhann hófu sinn búskap í Grundargötunni og bjuggu það þar til þau keyptu Hafnarstræti 17 árið 1959. Þar bjuggu þau allan sinn bú- skap eftir það þar til hún festi kaup á íbúð á Hlíf 2. 2001 En þar bjó hún í 3 ár er heilsan fór að gefa sig og dvaldi hún á öldrunardeild þar til hún lést. Halldóra lét félagsstörf sig miklu varða og var félagi í kvenna- deild SVFÍ á Ísafirði í mörg ár og var gerð að heiðursfélaga þeirrar deildar 25. feb. 1994. Henni þótti ætíð vænt um vinnustaðinn sinn og var þeim góð er fengu að njóta að- hlynningar hennar. Hún var gerð að heiðursfélaga í Vestfjarðadeild Félags ísl. hjúkrunarfr. 12. maí 2004. Útför Halldóru verður gerð frá Ísafjarðarkirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. úsi Ásgeiri, f. 1914, d. 1999, og Guðna Páli, f. 1919, d. 1941. Halldóra giftist 31. des. 1957 Jóhanni Ei- ríkssyni fiskmats- manni frá Ísafirði, f. 23.1. 1912, d. 13.7. 1991. Hann var sonur Eiríks Brynjólfs Finnssonar verk- stjóra, f. 10.11. 1875, d. 9.11. 1956, og Krist- ínar Sigurlínu Ein- arsdóttur, f. 29.8. 1888, d. 16.5. 1968. Sonur Halldóru og Sigurðar J. Kristjánssonar, f. 1916, d. 1988, er Þráinn jarðfræðingur í Lerum í Sví- þjóð, f. 9.1. 1954, maki Pigitza Dou- ralé, f. í Grikklandi 12. ágúst 1955. Dóttir þeirra er Anna, f. 1.8. 1990. Börn Halldóru og Jóhanns eru: 1) Ei- ríkur Kristinn, f. 15.10. 1956. Maki Jóhanna Björg Aðalsteinsdóttir, f. 2.5. 1961. Fóstursonur þeirra er Sverrir Vídalín, f. 20.11. 1989. Börn Jóhann, f. 10.8. 1993. d. s.d., Að- alsteinn Eyjólfur, f. 10.8. 1993, d. 16.8. 1993, Arnfríður Björg, f. 10.8. 1993, d. 25.8. 1993, og Jóhann Að- alsteinn, f. andvana 15.1. 1997. 2) Svanhvít Guðrún, f. 21.9. 1957. Dótt- ir hennar og Arnars Guðmunds- sonar er Halldóra Jóhanna, f. 26.1. 1976. Sonur hennar og Lahay Fallay er Leon Jóhann, f. 22.7. 2007. Búsett í Noregi. Maki Ólafur Þór Gunn- laugsson, f. 12.1. 1955. Börn Ólafur Páll, f. 5.5. 1990, og Ingunn María, f. Halldóra Guðmundsdóttir er látin 85 ára að aldri. Þessi frétt kom ekki mjög á óvart þar sem Dóra hafði verið veik í nokk- urn tíma. Samt koma dánarfregnir alltaf á óvart. Þær hitta mann. Það brestur strengur. Það vakna minn- ingar. Hún var einn af síðustu þátt- unum í strengnum sem batt okkur í fjölskyldunni við Ísafjörð, fæðingar- stað minn. Halldóra Guðmundsdóttir var gift bróður mínum, Jóhanni Ei- ríkssyni, Hadda eins og hann var jafnan kallaður. Þau hjón, Haddi og Dóra eru nú bæði horfin og heimili þeirra Hafnarstræti 17 einnig, en það vék fyrir nýju og breyttu skipulagi. Þannig hefur margt breyst á Ísafirði, þó að Gamla búðin og Faktorshúsið í Neðsta, þar sem við systkinin fædd- umst og foreldrar okkar, Eiríkur Br. Finnsson og Kristín S. Einarsdóttir bjuggu, séu enn á sínum stað. Hafnarstræti 17 stóð á ströndinni við Pollinn og inn í Hafnarstrætið, en síðustu árin hafði ströndin verið færð út í Pollinn svo húsið var komið inn í bæ og vegur milli þess og sjávar. Þó ekki væri garðurinn stór var hann all- ur í blóma á sumrin því Dóra var mikil blómakona. Það var gott að koma í Hafnarstrætið og vel og hlýlega tekið á móti gestum. Það eru ekki mörg ár síðan ég kom til Dóru ásamt Öddu systur, sem býr í Ameríku og fjöl- skyldum og þvílíkar móttökur. Hún hýsti okkur eldra fólkið í nokkra daga og munaði ekki um það. Þar var veisla á hverjum degi, berjasulta, afrakstur berjaferðanna því aðalbláberin sem eru aðall Vestfjarða, voru nýtt, lax og silungur var fram borinn en þau hjón, Haddi og Dóra voru veiðimenn af Guðs náð þó veiðiferðum hafi fækkað eftir því sem árin færðust yfir. Og yl- urinn frá kamínunni í stofunni sem kveikt var upp í við hátíðleg tækifæri jók enn á hlýjuna. Hlýjuna og vænt- umþykjuna sem ætíð stafaði frá þeim hjónum. Maður fann hana milli lands- hluta og landa. Þau Haddi og Dóra voru samrýmd hjón og það var því mikill missir fyrir Dóru þegar Haddi dó fyrir 17 árum. Það var samt alltaf bjart og kátt yfir henni hvenær sem maður hitti hana. Hún bjó á Ísafirði og kom ekki mjög oft suður en hún var frændrækin og lét oftast í sér heyra þegar hún kom í bæinn. Ég og mín fjölskylda vottum börnum þeirra öllum og fjölskyldum þeirra samúð okkar. Einnig ber ég samúðarkveðjur frá Öddu systur og dætrum hennar, þeim Kristínu og Ar- lene og þeirra fjölskyldum. Einar H. Eiríksson og fjölskylda. Í flestum ef ekki öllum fjölskyldum eru sumir sterkari og dugmeiri en aðrir. Í Hafnarstræti 17 á Ísafirði leyndi sér ekki hver stjórnaði hlut- unum og dreif fjölskyldulífið áfram. Hún Halldóra var dugnaðarforkur og myndarhúsmóðir sem við sem tengd- umst henni nutum í ríkum mæli. Hún var kletturinn sem upp úr stóð og hvað mestur stuðningur var af þegar á reyndi. Það fengum við að reyna börn Iðunnar og Böðvars. Hún Dóra, eins og hún var ávallt kölluð, var konan hans Hadda frænda sem var elsti bróðir mömmu. Þau voru hamingjusöm, það leyndi sér ekki og nutu lífsins ágætlega í sinni sambúð. Haddi var okkur góður frændi og saman mynduðu þau sterkt fjölskyldulíf á heimili sínu með börn- um sínum fjórum. Hún var hjúkrunarkona og vann nánast alla sína starfstíð á Sjúkrahús- inu á Ísafirði. Þar eignaðist hún tryggar og góðar vinkonur sem héldu vel hópinn. Áttu þær góðar stundir utan venjubundins vinnutíma og bættust þá gjarnan eiginmenn við. Naut hún þess að vinna á sjúkrahús- inu og dró ekki af sér við vinnu þar fremur en heima. Eins og ég nefni hér að framan stóð hún sig afburða vel þegar kom að fjöl- skyldum okkar. Ávallt hafði hún fjöl- skylduboð á annan í jólum, sem aldrei gleymast. Ef eitthvert systkina Hadda kom vestur, en þau gistu gjarnan hjá þeim, var öllum hóað saman og borð svignuðu. Hún naut sín einkar vel í hlutverki gestgjafans. Hún var í essinu sínu! Dóra var hress að eðlisfari og söng- glöð. Hún hafði sterka rödd sem skar sig gjarnan úr hópnum og kunni að skemmta sér þegar við átti. Hin síðari ár voru henni erfið heilsufarslega. Henni leið ekki illa en missti samband við umheiminn ef þannig má að orði komast. Hún var myndarleg sem fyrr, hélt fullri reisn allt undir það síðasta. Þessi tími hefur verið sérstaklega erfiður börnum hennar og fjölskyldum. Nú þegar kveðjustund er runnin upp er mér ljúft og skylt að þakka fyrir mig. Það er bjart yfir minningu hennar Dóru. Frændum mínum, frænku og fjölskyldum votta ég inni- lega samúð. Eiríkur Böðvarsson. Mig langar að minnast samveru minnar með Dóru, en leiðir okkar lágu saman í tugi ára. Við áttum margar góðar stundir saman og margs er að minnast. Dóra gat verið föst fyrir og hafði oft ákveðnar skoðanir. Ég var ekki alltaf á sama máli og sagði hún mér eitt sinn að hún virti mig meira fyrir vikið, að svara henni stundum fullum hálsi. Sagði hún það vera nauðsynlegt og gátum við alltaf eftir það rætt okk- ar innstu hjartans mál og urðum nán- ar og bestu vinkonur. Börnunum mínum þótti alltaf gam- an að koma í heimsókn í Hafnarstræti 17 til Hadda afa og Dóru ömmu og horfa á bátana út um „franska gluggann“ eða umferðina um hina stofugluggana. Þegar Dórukaka var á boðstólum eða Skóbót var sælan mik- il. Dóra var einstakur gestgjafi og kunni listina að veita og veitti alltaf vel, stutt var í glettnina og oft tekið í spil. Hjá henni lærði ég margt, eins og að aldrei má yfirgefa samkvæmi nema vera búin að „fá í báða fætur“, oft var kallað „ekki fara haltur heim, fáðu meira“. Veiðiferðirnar voru margar, enda ein af uppáhalds iðjum Dóru að renna fyrir fisk. Hún var lengi með kartöflugarð og þar var mikill rabbarbari og kenndi hún mér að gera rabbarbarasaft, sem börnin elskuðu. Berjatínsla var annað áhuga- mál hennar og hvarf hún oft tímum saman í þeirri iðju og hætti ekki fyrr en allar hirslur voru fullar. Dóra var mikill söngfugl og fönd- urkona fram í fingurgóma. Nýtni var henni líka í blóð borin og lærðum við snemma hjá henni að endurvinna og nýta hlutina. Maður kom aldrei að tómum kofanum hjá Dóru, en nú hef- ur hún kvatt okkur og er farin til Hadda og veit ég að þar líður henni vel. Innilegar samúðarkveðjur til ykkar elsku Þráinn, Eiríkur, Jóhann, Svan- hvít, Salmar og fjölskyldur. Ég kveð fyrrverandi tengdamóður mína og ömmu barnanna minna með virðingu og þakklæti, hún var ljúf og góð vin- kona og ég óska henni góðrar ferðar til nýrra heimkynna. Ingibjörg Snorra. Á stuttum tíma hefur Fjórðungs- sjúkrahúsið á Ísafirði séð á eftir tveimur hjúkrunarfræðingum yfir móðuna miklu, sem áratugum saman störfuðu við spítalann af þeim dugn- aði, fórnfýsi og natni, sem var svo ein- kennandi fyrir hjúkrunarfræðinga af „gamla skólanum“ svokallaða. Er þá ekki verið að halla á yngri kollega, en vinnuaðstæður og tíðarandinn er vissulega öðruvísi í dag. Önnur þeirra, Ingibjörg Nordquist, lést 22. ágúst s.l. og í dag kveðjum við Halldóru Guð- mundsdóttur. Það er einkennilegt að vera sjálfur kominn í spor eins af starfsaldursforsetum spítalans og hafa í kringum sig sams konar ný- græðinga og ég var fyrir 27 árum, þegar ég kynntist þessum reyndu heiðurskonum fyrst í starfi. Lífshlaup- ið er stutt í svoleiðis samhengi. Ég á mynd af Dóru, þar sem hún heldur á mér nýfæddum á svölum gamla spít- alans, svo kynni okkar eru orðin löng. Dóra var vinnuþjarkur og gat ekki setið auðum höndum. Þess nutu skjól- stæðingar hennar og samstarfsmenn ríkulega á vinnustað og ekki síður fjöl- skylda hennar og gestir heima fyrir. Minning mín um hana er líka alltaf nátengd mat, bakkelsi, trakteringum, yfirmáta gestrisni og elskulegheitum. Maður dáðist að því hvað hún var lag- hent við allt viðhald heima fyrir, hvort sem það útheimti hamar, sög eða málningarpensil. Hún virtist ekki telja neitt sér ofviða og dáðist ég að þessum eiginleikum hennar. Finnst mér lík- legt, að heimilisfólkið hafi átt í erfið- leikum á stundum að fylgja henni eft- ir. En lærdómsríkt hefur án vafa verið að alast upp hjá svona kjarnakonu. Ég vil, að leiðarlokum, þakka Dóru fyrir samstarfið í gegnum árin og alla þá elsku og vinskap sem hún og Jó- hann heitinn Eiríksson, maður henn- ar, sýndu mér alla tíð. Ég votta börn- um þeirra og fjölskyldum samúð mína. Blessuð sé minning Halldóru Guð- mundsdóttur. Hörður Högnason. Halldóra Guðmundsdóttir ✝ Elskulegur faðir okkar, GUÐMUNDUR VALDIMARSSON, Efri-Brúnavöllum, Skeiðum, er látinn. Útför verður auglýst síðar. Áslaug Björt Guðmundardóttir, Guðfinna Auður Guðmundsdóttir og fjölskyldur. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, GUÐRÍÐUR PETERSEN, Hraunvangi 1, Hafnarfirði, lést á líknardeild Landakotsspítala fimmtudaginn 18. september. Elín Jóhannsdóttir, Tryggvi Ólafsson, Bryndís Petersen, Leifur Jónsson, Jóhann Petersen, Pétur Jakob Petersen, Auður Héðinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.