Morgunblaðið - 20.09.2008, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 2008 41
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
KANNSKI HEFUR
LÍSA RÉTT FYRIR SÉR.
KANNSKI ÆTTI ÉG
AÐ ÞRÍFA HÚSIÐ...
OG KANNSKI SEGJA
HÆNUR „MÚÚ“
VIÐ ERUM
PIPARSVEINAR,
ELSKAN
ÞETTA HLJÓMAR
EKKI MJÖG VEL...KÆRI PENNAVINUR,
ÞAÐ ER LANGT
SÍÐAN ÉG SKRIFAÐI
ÞÉR SÍÐAST.
ÉG HEFÐI SKRIFAÐ ÞÉR FYRR
EN ÉG VAR BARA ALVEG
BÚINN AÐ GLEYMA ÞÉR
SOLLA SAGÐI EKKI ORÐ.
EINHVER HLÝTUR AÐ
HAFA NÁÐ TIL HENNAR
Á UNDAN MÉR. ÉG ÞEKKI
SOLLU OG ÞAÐ ER EKKI
AUÐVELT AÐ ÞAGGA
NIÐUR Í HENNI
ÉG ÞURFTI DRYKK
OG VÍSBENDINGU.
ÉG VISSI HVAR
ANNAÐ ÞEIRRA
VAR AÐ FINNA
ÞÚ HEFUR
FARIÐ NÓGU
OFT AÐ FÁ
ÞÉR AÐ
DREKKA.
KLÁRAÐU
PRÓFIÐ ÞITT
ALLT Í EINU
GREIP FANTUR Í MIG
OG DRÓ MIG INN Í
HÚSASUND, ÞAR SEM
HANN BREYTTI
BAKINU Á MÉR
Í HARMÓNÍKU
ÞÚ FERÐ
EKKI FET,
FÉLAGI
HÚN ER AÐ ÞRÍFA
GORMANA ÚR RÚMINU
ÉG HELD AÐ
HELGU LEIÐIST
ÉG HELD AÐ ÞÚ HAFIR
FARIÐ FRAM HJÁ
STOPPISTÖÐINNI MINNI
KANNSKI ER EINK-
UNNIN HANS KALLA
SVONA LÁG VEGNA ÞESS
AÐ ÉG VINN OF MIKIÐ
KANNSKI ÆTTI ÉG AÐ
VINNA MINNA... KANNSKI
ÆTTI ÉG AÐ FÁ HANDA
HONUM EINKAKENNARA
EN EF ÉG
VINN EKKI ÞÁ
HÖFUM VIÐ EKKI
EFNI Á EINKA-
KENNARA
SVONA
ER
LÍFIÐ
HENNI VAR KASTAÐ
AÐ HÖFÐINU Á MÉR
GLÆPAKÓNGURINN,
KORDOK, HELDUR DÖRU
DORSET, KONU KÓNGULÓAR-
MANNSINS, Í GÍSLINGU...
OG LAUSNARGJALDIÐ ER
KÓNGULÓARMAÐURINN!
ÞESSI SPÓLA VAR SEND
TIL MÍN PERSÓNULEGA
Velvakandi
BUSAR hafa þurft að leika ýmsar listir undir stjórn fjórðubekkinga, t.d. að
sýna dans- og söngatriði í kvosinni, farið í þrautakeppni þar sem m.a.
þurfti að hreinsa tyggjó af stéttinni við Hóla, gera armbeygjur og þrífa bíla
fjórðubekkinga. Síðan voru busarnir dregnir í dilka og nýliðunum tilkynnt
að þeir væru ekki lengur busar heldur nýnemar og boðnir velkomnir í skól-
ann – stóð þá „businn“ uppi á fimleikakistu og var hrint niður af henni, aft-
urábak – en nokkrir vaskir sveinar sáu um að grípa viðkomandi og sjá til
þess að engum yrði meint af. Að lokum var farið í göngu um bæinn og end-
að á því að ganga upp menntaveginn svokallaða, göngustíg frá Samkomu-
húsinu upp að Menntaskóla.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Busasvígsla í MA
Fyrirspurn til nátt-
úruverndarsinna
AF HVERJU beita
náttúruverndarsinnar
sér aldrei gegn notkun
eins mesta mengunar-
valds Íslands, nagla-
dekkjanna? Nú á tím-
um komast flestir allra
sinna ferða án þeirra,
með ýmsum tegundum
nýrra vetrarhjólbarða.
Þeir sem telja sig ekki
komast af án nagla
ættu að borga þær gíf-
urlegu skemmdir sem
þeir valda á gatna- og
vegakerfi landsins. Það
er um 40 tonn af krabbameinsvald-
andi tjöruefnum, svifrykið sem tætt-
ist upp úr malbikinu árlega, og kost-
ar 100 miljónir í viðgerðakostnað á
götum og vegum. Í dag eru nagla-
dekk bönnuð í allflestum löndum þar
sem þau voru áður notuð.
Ragnheiður.
Marklaust hjal
um Strætó
Þrátt fyrir samgönguviku og sam-
göngublóm hafa strætisvagna-
samgöngur ekki batnað.
Kolbrún Halldórsdóttir, alþing-
ismaður, skrifar ágæta grein í 24
stundir 18. júlí sl. sem hún nefnir
Marklaust hjal ráðamanna um sam-
göngur. Þar segir: „Það er grund-
vallarkrafa að almennings-
samgöngur verði stórefldar, og að
fólki verði auðveldað að taka Strætó
með öllum tiltækum ráðum.“
Til þess að taka strætó þurfa
vagnar að vera fyrir hendi og gott
aðgengi að þeim.
Með nýju leiðakerfi var vesturbær
Rekjavíkur næstum friðaður fyrir
strætisvögnum og eins er um fleiri
hverfi.
Það þarf að fá þéttara net vagna í
úthverfin, líkt og áður var. Fólk fer
ekki langar leiðir í vondum veðrum
að leita uppi vagna á hraðbrautum,
ef um aðra kosti er að
ræða.
Forgangsreinar fyr-
ir Strætó er engin
töfralausn. Strætó í
kappakstri við einka-
bílinn á hraðbrautum
leysir ekki vandann.
Það virðist gleymast að
það skiptir máli hvaða
leið vagnarnir fara og
hvernig leiðakerfið er.
Er það kannski orðið
aukaatriði?
Á meðan ráðamenn
viðurkenna ekki, að
þetta leiðakerfi óbreytt
getur ekki þjónað fólki
sem vildi annars taka
Strætó, þá verður engin breyting.
Þá halda yfirlýsingar þessa fólks
áfram að vera marklaust hjal.
Þuríður Guðmundsdóttir.
Hvar er forsetafrúin?
VIÐ eigum forseta, en hafið þið tek-
ið eftir því að forsetafrúna virðist oft
vanta á myndir þegar greint er frá
viðburðum sem þau eru viðstödd eða
þegar hjónin koma fram opinber-
lega. Það virðist vera eins og Dorrit
Moussaieff falli hálfpartinn í skugg-
an af forsetanum þrátt fyrir að hún
fylgi manni sínum Ólafi í langflestar
ferðir sem hann fer. Fólki þykir
vænt um Dorrit forsetafrú og mér
finnst að hún mætti gjarnan vera
meira í sviðsljósinu. Hún á erindi til
okkar líka og ætti að sýna jafna virð-
ingu og gera henni jafn hátt undir
höfði og Ólafi. Alla vega þarf að taka
það fram að hún hafi verið viðstödd
þó hana vanti á mynd. Við erum stolt
af Dorrit og hún er góð fyrirmynd,
myndarleg og sterk kona sem mætti
njóta sín betur. Forsetahjónin eru
okkar höfuð og við viljum sjá meira
af þeim.
Anna Petersen.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
Félagsstarf
Bólstaðarhlíð 43 | Haustlitaferð 30.
september kl. 12.30 í Heiðmörk - Nesja-
vellir - Ljósifoss - Grímsnes. Stað-
arleiðsögn í Nesjavallavirkjun og kaffi-
hlaðborð í Hótel Nesbúð. Verð kr. 2.700.
Skráning í síma 535-2760.
Dalbraut 18-20 | Framsögn á þriðjudög-
um kl. 14. Kennari Guðný Helgadóttir.
Félag eldri borgara í Kópavogi | Fé-
lagsvist í Gullsmára og Gjábakka. Sjá
nánar á www.febk.is Félagsfundur FEBK
verður í Gjábakka kl. 14. Stefnir Helga-
son ræðir um húsnæðismál aldraðra.
Ragna Gunnarsdóttir flytur gamanmál
og Guðni Stefánsson leikur á harm-
onikku. Veitingar í boði félagsins.
Félag eldri borgara Kópavogi, ferða-
nefnd | Haustlitaferð FEBK verður 25.
september. Brottför frá Gullsmára kl. 13
og Gjábakka kl. 13.15. Ekið um Heiðmörk
- Mosfellsdal - Hakið á Þingvöllum -
Bolabás - meðfram Þingvallavatni -
Þrastarskógur. Kaffihlaðborð að Hótel
Hlíð Ölfusi og dansað á eftir. Skráning í
félagsmiðstöðvunum.
Félagsheimilið Gjábakki | Krummakaffi
kl. 9 og Hana-nú ganga kl. 10.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Haust-
fagnaður 23. sept. kl. 14.
Félagsstarf Gerðubergs | Hátíð-
arsamkoma kl. 14, í íþróttahúsinu v/
Austurberg. Hanna Birna Kristjánsd.
flytur ávarp og afhendir heiðursvið-
urkenningar, dagskrá í tali og tónum.
Húsið opnað kl. 13.30, með því að Þor-
valdur Jónsson leikur á harmonikku.
Hraunbær 105 | Fyrirlestur kl. 14, um
,Áhrif CO2 á umhverfið okkar“, í Toyota
Kópavogi. Uppl. og skráning á skrifstofu
fyrir 24. sept. eða í síma 411-2730.
Hæðargarður 31 | Kynning á samstarfi
við World Class í Laugum þriðjud. 23.
sept. kl. 13.30. Óafur Snorri Rafnsson
íþróttafr. og þjálfari kynnir. Taichihópur
Guðnýjar Helgadóttur á þriðjud. og fös-
tud. kl. 9. Tölvuleiðbeiningar mánud. og
miðvikud. kl. 13-15. sími 411-2790.