Morgunblaðið - 20.09.2008, Side 44

Morgunblaðið - 20.09.2008, Side 44
SVARTHÖFÐI mætti með kónum sín- um í verslun BT í Skeifunni skömmu fyrir miðnætti í fyrrakvöld. Ástæðan var sérstök miðnæturopnun vegna út- gáfu á tölvuleikjunum Star Wars: The Force Unleashed og Warhammer Online. Fyrri leikurinn var fram- leiddur fyrir allar leikjatölvur, utan PC, en Warhammer Online fyrir PC- tölvur. Samkvæmt upplýsingum frá markaðsstjóra BT, Sigurgísla Mel- berg, bjó Svarthöfði til búninginn sjálfur og tók það verk nokkur ár. Svarthöfði tók ekki af sér grímuna í BT og veit því enginn hver var á ferð. Boðið var upp á flatbökur og gos og sérstök verðlaun veitt þeim sem mætti í flottasta búningnum. Það þarf vart að taka fram að Svarthöfði hirti verð- launin, enda með raddbox og geislasverð. Stjörnustríðsleikurinn nýi er jafnframt nýr kafli í Stjörnustríðsbálki framleiðandans og leikstjórans George Lucas, þ.e. kafli í tölvuleikjasögunni. Í honum er sögð saga af áður óþekktum lærisveini hins illa Svarthöfða sem ætlað er að ráða niðurlögum seinasta Jedi-riddarans. Um 5-600 leikir seldust og um 600 manns í versluninni þegar mest var. Warhammer Online er leikur í anda World of Warcraft, unninn upp úr samnefndum hlutverkaleik, Warham- mer 40000. helgisnaer@mbl.is 44 LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ www.myrin.is Alþjóðleg barnabókmenntahátíð í Norræna húsinu Laugardagur 20. september kl. 14:00 Max Dager, forstjóri Norræna hússins, setur hátíðina. Verðlaun verða veitt fyrir bestu sögurnar í bókinni At og aðrar sögur. Rithöfundar lesa úr verkum sínum: • Guðmundur Brynjólfsson • Kim Fupz Aakeson • Pat Hancock • Iðunn Steinsdóttir • Nina Blazon • Ritva Toivola • Kristín Helga Gunnarsdóttir Sunnudagur 21. september kl. 14:00 Rithöfundar lesa úr verkum sínum: • Louis Jensen • Gerður Kristný • Rimantas Černiauskas • Ingunn Aamodt • Jón Hjartarson • Ulf Nilsson • Kristín Steinsdóttir Draugagangur og sprell um helgina í Norræna húsinu. Allir hjartanlega velkomnir á meðan húsrúm leyfir. Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Munið Mastercard ferðaávísunina Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara. Nú bjóðum við síðustu sætin í sólina á Kanaríeyjum 26. nóvember í 23 eða 24 nætur á frábæru sértilboði. Bjóðum frábær sértilboð á Roque Nublo, Dorotea, Parquesol og Liberty, nokkrum af allra vinsælustu gististöðum okkar á Kanarí. Gríptu tækifærið og njóttu lífsins á þessum vinsæla áfangastað við góðan aðbúnað. Verð kr. 89.990 Netverð á mann, m.v. 2-4 í íbúð/smáhýsi á Parquesol eða Dorotea 26. nóv. í 23 eða 24 nætur. Gisting á Liberty, Parque Cristobal og Roque Nublo kostar kr. 5.000 aukalega. M b l1 04 14 4 Frábær ferð - 23 eða 24 nætur Kanarí 26. nóvember frá kr. 89.990 Ótrúleg sértilboð! · Dorotea · Liberty · Roque Nublo · Parquesol · o.fl. Frábær staðsetning! Morgunblaðið/Golli Hinn illi Mátturinn var mikill í BT-búðinni. Storm- sveitarmenn á hnjánum við hlið meistara síns. Morgunblaðið/Golli Brandur og baka Leðurfrakkaklæddur tölvuleikjaspilari grípur sér pítsusneið, með gos og geislasverð í hinni. Margt Viðskiptavinir voru um 600 þegar mest var í BT á miðnæturopnun. Hættulegur Eins gott að koma vel fram við mann með geislasverð. Svarthöfði í Skeifunni Gríman af Stormsveitarmaður með sólgleraugu um miðnæturbil.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.