Morgunblaðið - 20.09.2008, Síða 46

Morgunblaðið - 20.09.2008, Síða 46
46 LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ SÝND SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI Þú færð 5 % endurgreitt í BorgarbíóSími 462 3500 Þú færð 5 % endurgreitt í Háskólabíó Sími 551 9000Þú færð 5 % e n d u r g r e i t t í Regnboganum ÓDÝRT Í BÍÓ Í REGNBO GANUM Step Brothers kl. 3:30 - 5:45 - 8 - 10:15 B.i. 12 ára Tropic Thunder kl. 3 - 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 12 ára Make it happen kl. 8 - 10:20 LEYFÐ Skrapp út kl. 4 - 6 - 8 - 10 B.i. 12 ára Grísirnir þrír kl. 4 - 6 LEYFÐ -Kvikmyndir.is - Mannlíf 650k r. 650kr. 650 KR. - ALLAR MYNDIR - ALLAR SÝNINGAR - Í ALLT SUMAR SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú borga Pineapple Express kl 3 - 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 16 ára Brideshead Revisited kl 3 - 6 - 9 B.i. 12 ára Mirrors kl 10:30 B.i. 16 ára Sveitabrúðkaup kl. 5:45 - 8 - 10:15 LEYFÐ Mamma Mia kl. 3 - 5:30 - 8 LEYFÐ Grísirnir 3 kl. 4 LEYFÐ - Ó.H.T., RÁS 2 - 24 STUNDIR „SVEITABRÚÐKAUP ER SNOTUR MYND OG SKEMMTILEG,TEKUR SIG EKKI HÁTÍÐLEGA OG ER AUÐVELT AÐ NJÓTA.” - B.S., FBL ,,ENGINN [ÆTTI] AÐ GERA ÞAU MISTÖK AÐ MISSA AF SVEITABRÚÐKAUPI.” - Þ.Þ., D.V. - S.V., MBL eeee - Ó.H.T, Rás 2 eee - L.I.B, Topp5.is/FBL 650kr. SÝND Í HÁSKÓLABÍÓISÝND Í BORGARBÍÓI Pineapple Express kl. 8 - 10 B.i.16ára Journey To The Center Of The Earth kl. 4 - 6 - 8 ATH. EKKI SÝND Í 3D LEYFÐ Step Brothers kl. 10 B.i.12ára Mamma Mia kl. 6 LEYFÐ Grísirnir 3 kl. 4 LEYFÐ ATH. EKKI SÝND Í 3D Í BORGARBÍÓI EIN FLOTTASTA ÆVITÝRAMYND ÁRSINS MEÐ ÍSLENSKU LEIKKONUNNI ANÍTU BRIEM Í EINU AF AÐALHLUTVERKUNUM. SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI -S.V., MBL -T.S.K., 24 STUNDIR-V.J.V.,TOPP5.IS/FBL Langstærsta mynd ársins 2008 Yfir100.000 manns! ÞÓTT LÍFIÐ BREYTIST... ÞURFA DRAUMARNIR EKKI AÐ BREYTAST HÖRKU-DANSMYND MEÐ HINNI SJÓÐHEITU MARY ELIZABETH WINSTEAD -L.I.B.TOPP5.IS/FBL -DV-S.V., MBL FRÁ BEN STILLER KEMUR EIN KLIKKAÐASTA GRÍNMYND ÁRSINS!650k r. - H.J., MBL -T.S.K., 24 STUNDIR - L.I.B.,TOPP5.IS/FBL. -Þ.Þ., D.V. Troddu þessu í pípuna og reyktu það! Mögnuð mynd byggð á samnefndr bók eftir Evelyn Waugh um forboðna ást. ÖLLUM FREISTINGUM FYLGJA AFLEIÐINGAR * Gildir á allar sýningar merktar með rauðu TILBOÐ Í BÍÓ Barna- og unglingabækur streyma út ámarkaðinn þessa dagana og virðastraunar með fyrstu bókum sem koma út, eins og mörg fyrri haust. Ekki er laust við að það læðist að manni grunur um að markaðurinn sé ekki næstum því nógu stór til þess að bera alla þessa út- gáfu. Á síðasta ári jókst útgáfa barnabóka allnokkuð, sérstaklega á þýddum barnabók- um. Samkvæmt tölum sem fengust hjá Félagi íslenskra bókaútgefenda voru gefnar út 83 frumsamdar barnabækur á síðasta ári en árið 2006 voru þær 51 og tíu árum fyrr 1997 voru þær sömuleiðis 51. Undanfarin ár hefur út- gáfa frumsaminna barnabóka þó haldist nokkuð stöðug og má vera að síðasta ár hafi verið undantekning. Þýddum barnabókum hefur hins vegar fjölgað mikið. Í fyrra komu út 182 bækur, árið 2006 155, árið 2005 132 og árið 1997 aðeins 68. Margar þessara þýddu barnabóka eru ekki merkilegar. Stundum er lítt vandað til texta og mynda. Kannski er skýringin sú að þetta séu ómagar á bókaútgáfunni. Að minnsta kosti mætti vanda betur til þessarar útgáfu.    Meðal þeirra bóka sem eru að koma útþessa dagana má nefna Skrímslapest sem er fjórða bók Áslaugar Jónsdóttur, Kalle Güettler og Rakel Helmsdal um stóra skrímslið og litla skrímslið. Ævintýrið um Pétur og úlfinn eftir Sergei Prokofief er komið út á bók þar sem myndvinnsla og hönnun er í höndum Kristínar Maríu Ingi- marsdóttur. At og aðrar sögur heitir safn sextán draugasafna sem gefið er út í tilefni af Barnabókahátíðinni Draugur úti í mýri sem stendur yfir einmitt nú. Sögurnar eru af- rakstur smásagnasamkeppni sem Forlagið og hátíðin efndu til en meðal höfunda eru Guðmundur Brynjólfsson, sem hlaut fyrstu verðlaun, Kristín Helga Gunnarsdóttir, Iðunn Steinsdóttir, Stefán Máni og Brynhildur Þór- arinsdóttir. Mun fleiri eru þó þýddu barnabækurnar. Tvær nýjar bækur eru komnar út um Skúla skelfi, tvær bækur Jonni & Co eftir sænska rithöfundinn Ulf Nilsson eru komnar út og fyrir yngstu börnin eru komnar út tvær bæk- ur með yfirskriftinni Í næturgarði. Fyrir fróðleiksfúsa krakka eru svo komnar út bækurnar Örlög guðanna: Sögur úr nor- rænni goðafræði eftir Ingunni Ásdísardóttur og Kristínu Rögnu Gunnarsdóttur og ensk orðabók sem er sérstaklega sniðin að þörfum 8-12 ára barna.    Í Lesbók í dag er rætt við Kristínu HelguGunnarsdóttur rithöfund sem hlaut fyrir stuttu vestnorrænu barnabókaverðlaunin fyrir bók sína Draugaslóð. Kristín Helga setur fram áhugaverðar skoðanir á þeim greinarmun sem vanalega er gerður á barnabókmenntum og bókmenntum fyrir fullorðna. Hún leggur til að slíkur greinarmunur verði aflagður og frekar talað um barna- og fjölskyldubókmenntir. „Með því að kalla þessa bókmenntagrein barna- og fjölskyldubækur en ekki barna- og unglingabækur þá drögum við alla til ábyrgð- ar á heimilinu. Þá eru þetta bækur sem fjöl- skyldan á að lesa, ekki bara barnið.“ Kristín Helga leggur líka mikla áherslu á að lesið sé fyrir börn og að bækur séu sýni- legar á heimilum, eðlilegur hluti af heim- ilislífinu. Sennilega verður aldrei of mikil áhersla lögð á lestur með börnum og lestr- arhvatningu á heimilum. Enn sem komið er er bókin ein af meginupplýsingaveitum sam- tímans. Læsi er líka nauðsynlegt til þess að geta notað netið. Og með læsi er ekki bara átt við að börn geti stafað sig fram úr texta held- ur að þau meðtaki efni hans og það helst með gagnrýnum hætti. Það er því ekki síður mik- ilvægt að bækur séu til umræðu á heimilum. Höfum það í huga. throstur@mbl.is Ómagar bókaútgáfunnar? Litlu skrímslin þurfa að lesa Síða úr bókinni Skrímslapest, um stórt og lítið skrímsli. AF LISTUM Þröstur Helgason

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.