Morgunblaðið - 21.09.2008, Side 12

Morgunblaðið - 21.09.2008, Side 12
12 SUNNUDAGUR 21. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ breyta þessu, þannig að umbunað verði fyrir afköst og getu. Einnig hef- ur spilað inn í yfirmannavæðinguna þannig er það þó ekki alltaf enn í dag. Ríkislögreglustjóri hefur ekki beint boðvald yfir lögreglustjórum, þvert á það sem margir halda, og hann fær aðeins lögregluvald samkvæmt ráð- herraumboði takmarkaðan tíma í senn. Og komið hafa upp árekstrar, þar sem lögreglulið hafa talið sig full- fær um að stýra aðgerðum, en engu að síður hefur valdið verið tekið af þeim og fært sérsveitinni, svo sem við komu vítisengla til landsins í vetur. Innan sérsveitarinnar eru áhyggj- ur af því að „framþróun“ hennar gengi ekki eins vel ef hún væri innan almennrar lögreglu og hætt væri við að hún „týndist“ í öðrum verkefnum. „Við þurfum að æfa og vera tilbúnir þegar til útkalls kemur.“ Kristín Völundardóttir, lögreglu- stjóri á Ísafirði, vill sérsveitina áfram undir ríkislögreglustjóra og segir það hafa gefist vel, en Jóhann segir að þar sé hún vannýtt. „Þetta eru ein- hverjir bestu og metnaðarfyllstu lög- reglumenn sem við eigum og það er mikilvægt að virkja þá sem best,“ segir Jóhann. „En þeim leiðist á köfl- um, enda fá þeir ekki það aksjón sem þeir vilja – veðhlaupahestur á ekki að vera frjáls úti í haga!“ Mikil yfirbygging er uppsafnaður vandi innan lögreglunnar. Mótast það af því að launahækkanir hafa löngum verið bundnar stöðuhækkunum og fullyrt er að margir „hafi hrakist inn í hús, sem langar út á götuna“. Lög- reglustjórafélagið og Landssamband lögreglumanna hafa lýst áhuga á að að í sameiningum embætta hafa orðið til tvöföld sett af yfirmönnum. Þá eru dæmi um að samkeppnin sé slík um lögreglumenn að þeir gangi beint inn í yfirmannastöður, nýútskrifaðir úr Lögregluskólanum. Ef rannsókn- arlögreglumenn eru taldir með, þá er svo komið að tveir stjórnendur eru á hvern óbreyttan lögreglumann. „Með því að færa löggæsluverkefni frá ríkislögreglustjóra til lögreglulið- anna skapast hagræðingarmögu- leikar og tækifæri til að taka til í yf- irmannalagi lögreglunnar,“ segir Stefán. „Það tekur nokkur ár að ná slíkum breytingum í gegn hjá ríkinu og því þarf að byrja sem fyrst.“ Og lögreglumaður sem rætt var við tekur undir þetta: „Einn félagi minn sagði að fjölmargir yfirmenn löbbuðu um gangana, vissu ekkert hvað þeir ættu af sér að gera, og væru með blöð í höndunum, svo það liti út fyrir að þeir væru að vinna. Þeir hengja jakk- ana á stólana og fara svo út úr húsi. Það er kominn tími á sársaukafullar ákvarðanir. Ef það á að spara, þá eiga menn að byrja á sjálfum sér.“ Árangur mælikvarðinn? Kvartað er undan ójafnri skiptingu lögreglumanna um landið. Ójafnt sé gefið og stokka þurfi spilin. Ef fjöldi þeirra er skoðaður miðað við höfða- tölu skera Selfoss og Akureyri sig úr með fæsta lögreglumenn. Sagt er að þeim hafi verið refsað sem ekki keyrðu fram úr fjárlögum. En svo eru þeir sem segja það gamaldags að mæla árangur lög- gæslu eftir fjölda lögreglumanna. Á það er bent að þrátt fyrir barlóminn, hafi markverður árangur náðst í starfi lögreglunnar. Tilkynntum inn- brotum hafi fækkað um 17,7% á þessu ári frá meðaltali síðustu tveggja ára og umferðarslysum um 45%. Sú spurning vaknar hvort lög- gæslu sé í nokkru ábótavant? „Auðvitað á lögreglan ekki ein heiðurinn af þessum árangri,“ segir Stefán. „Öryggi hefur verið bætt í gatnakerfinu, bílar eru öruggari og hærri sektir, hraðamyndavélar og akstursbann ungmenna hefur dregið úr hraðakstri. Loks spilar inn í sú hugmyndafræði lögreglumanna að einbeita sér að slysastöðum, þannig að markmiðið er ekki að taka sem flesta heldur þá sem skapa mesta hættu. En þetta er viðkvæmt, inn- brotatíðnin er svo lág að aðeins þarf einn hópur að koma til landsins, sem brýst inn í 30 hús á einum mánuði, og þá erum við komin með innbrota- hrinu eða faraldur.“ Hann bendir á að löndum hafi fjölgað á EES-svæðinu, sem þýði meira flæði bæði góðra og slæmra borgara. „Ef við bregðumst ekki við af fullri hörku missum við tökin. Við erum ekki samanburðarhæf við Ósló þegar horft er til fjárveitinga til lög- reglu. Þar tekur gildi ný vændis- löggjöf um áramótin, sem bannar vændiskaup eins og gert er í Svíþjóð, en götuvændi kvenna frá Nígeru hef- ur verið stórt vandamál í Ósló. Og við höfum heyrt frá norsku lögreglunni að nú segi þær: „Jæja, við förum þá bara til Reykjavíkur!“ Höfuðborgarsvæðið 298 196.161 658 16.084 341,0 9.252.473 Suðurnes og sýslum. 76* 20.415 269 36.796 88,6 8.478.468 Akranes 7 6.345 906 17.107 13,4 8.100.157 Borgarnes 9 5.195 577 21.709 9,7 11.626.466 Snæfellsnes 10 3.912 391 24.080 10,0 9.420.145 Vestfirðir 21 7.309 348 28.097 23,4 8.776.129 Blönduós 7 3.128 447 26.715 8,0 10.445.713 Sauðárkrókur 9 4.231 470 19.570 8,8 9.408.997 Akureyri 35 23.833 681 13.326 38,7 8.206.934 Húsavík 9 4.964 552 20.921 9,7 10.706.566 Seyðisfjörður 10 6.002 600 17.852 11,0 9.740.570 Eskifjörður 15 7.899 527 20.340 15,4 10.432.725 Hvolsvöllur 7 4.413 630 21.751 8,8 10.907.604 Vestmannaeyjar 12 4.040 337 25.012 21,1 8.351.241 Selfoss 23 15.025 653 14.156 27,1 7.848.565 Samtals 548 312.872 571 22.945 625,7 Ríkislögreglustjóri 89 93,7 14.053.124 Lögregluskólinn 9 10,5 16.135.975 Samtals 646 484 729,9 Staðtölur um löggæsluembættin Lögreglustjóra- Starfandi Íbúa- Fjöldi Kostn. pr. Fjöldi Kostn. pr. embætti lögreglum. fjöldi íbúa pr. íbúa í kr. ársverka ársverk faglærðir ** lögreglum. 2007 í kr. * Þar af starfa 36 lögreglumenn eingöngu við verkefni í flugstöð Leifs Eiríkssonar og nýtast ekki í þjónustu við almenna borgara í sveitarfélögunum. ** Tölur um íbúafjölda eru reiknaðar úr grunngögnum frá Hagstofu Íslands og miðast við 1. desember 2007 vegna gagna um árið 2008. Haraldur: „Hugsunin er sú að opna nýja möguleika í stjórnun, rekstri og verkefnatilfærslu.“ Jóhann: „Þess vegna verður að hafa umdæmisstjórnun [lögreglunnar] í vatnsþéttum hólfum.“ Stefán: „Þá er eins hægt að sameina embætti ríkislög- reglustjóra og lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu.“ Morgunblaðið/Júlíus Morgunblaðið/Júlíus Morgunblaðið/Júlíus erum í miðjum storminum, en ég er viss um að við gerðum það eina rétta. Það breyttist ekki mikið í Kaupmannahöfn, þar sem lög- regluliðið var fjölmennt, en nú eru umdæmin úti á landi nógu stór til að annast rannsóknir og takast á við metnaðarfull verkefni, meðal annars glímuna við skipulagða glæpastarf- semi.“ Aldrei nógu margir – Eru lögreglumennirnir nógu margir? „Aldrei nógu margir! Hvað er nóg? Við höfum 2.500 lögreglu- menn, en ef við fengjum þúsund í viðbót gætum við framkvæmt meira. Þá gætum við fylgst betur með hrað- akstri, mannsali, eiturlyfja- viðskiptum – öllum þessum kimum mannlífsins þar sem fólk hringir ekki og lætur vita. Fólk klagar ekki hvað annað fyrir hraðakstur og fólk sem kaupir af eiturlyfjasölum kvart- ar ekki við lögregluna. Lögreglan verður að komast að því með því að senda einhvern út af örkinni. En al- mennt talað, þá finnst stjórn- Alls eru 10.500 lögreglumenn í Dan- mörku, þar af 2.500 á höfuðborg- arsvæðinu, þar sem búa 680 þúsund manns. Lögreglan í Kaupmanna- höfn hefur einnig eftirlit með flug- vellinum, þar sem 20 milljónir eiga leið um á ári. Mikil endurskipulagning átti sér stað á starfsemi lögreglunnar 1. jan- úar 2007, en þá var lögreglu- umdæmum fækkað úr 54 í 12 og rík- islögreglustjóri settur yfir umdæmin, en þar vinna 200 til 250 manns. Ríkislögreglustjóri sinnir einungis stjórnsýslu, sér um mark- miðssetningu og fjárveitingar til umdæmanna, og undir honum er einnig alþjóðadeild og lögregluskól- inn. Þá stýrir hann greiningu á al- þjóðlegri glæpastarfsemi, svo sem á glæpagengjum eins og Hells Angels, sem eru erlend að uppruna. Tíðir skotbardagar „Þau hafa átt í tíðum skotbardög- um og á síðustu tveim vikum voru sautján skotárásir á götum úti, þannig að mikilvægt er að þekkja vel til þessarar starfsemi,“ segir Mo- gens Kjaergaard Möller, aðstoð- arlögreglustjóri í Kaupmannahöfn. „Í þeirri glímu er mikilvægt að stjórn aðgerða og ábyrgð á þeim sé alltaf í umdæmi viðkomandi lög- reglustjóra. Það á líka við um sér- sveitina þegar hún tekur þátt í að- gerðum, þó að hún heyri annars til öryggislögreglunnar.“ – Hversu margir eru í sérsveit- inni? „Við gefum það ekki upp. En þeir eru nógu margir,“ segir hann og brosir. „Við höfum þurft að grípa til varúðarráðstafana gegn hryðju- verkum eftir skopteikningarnar af Múhameð og aðeins eru liðnir nokkrir dagar síðan við fengum upplýsingar um að Danmörk væri skotmark hryðjuverkamanna. Þeg- ar hafa komið upp fjögur eða fimm mál í Danmörku, þar sem fólk hefur verið sett í fangelsi fyrir að skipu- leggja hryðjuverk og það hafði náin tengsl við Afganistan og Pakistan. Þannig að í þessu felst mikil áskor- un.“ Möller segir að mikið hafi verið skrifað um endurskipulagningu lög- reglunnar í Danmörku og hafi hún sætt harðri gagnrýni fjölmiðla og stjórnmálamanna. „Ég er þeirrar skoðunar að sú gagnrýni sé ekki sanngjörn. En slíkar grundvall- arbreytingar valda alltaf ólgu meðal starfsmanna. Nú hafa þeir fjarlægst yfirstjórnina, hitta ekki lög- reglustjórann á hverjum degi, hafa jafnvel þurft að færa sig um set, og tryggðin er ekki sú sama og áður. Fólk horfir alltaf fyrst á sína hags- muni, hvort sem það er blaðamaður, starfsmaður einkafyrirtækis eða lögreglumaður. Og það má ekki gleyma því að fólk úti á landi hugsar hlýtt til gömlu daganna þegar það hafði eigin lögreglu. En ég segi að þetta sé ekki sanngjörn gagnrýni. Í gömlu góðu lögreglunni gættu margir lögreglumenn fyrst og fremst lampanna á skrifborðinu. Þeir sátu bakvið glugga og horfðu á lampana. En þar voru glæpamenn- irnir ekki. Þeir voru á meðal fólksins hinumegin við glerið. Og þar á lög- reglan líka að vera. Þess vegna þarf fjölmenn lögreglulið, þar sem nýt- ingin er hagkvæmari og betri. Við málamönnum og almenningi að fleiri ættu að vera í dönsku lögregl- unni, en það er samkeppni um ungt fólk. Það er ekki hægt að taka 500 til 600 manns inn í lögregluna í einni hendingu og við verðum að bjóða upp á fjölbreytta vinnu, sem hentar einnig skrifstofufólki.“ Varðmenn lampanna Kaupmannahöfn Endurskipulagn- ing veldur alltaf ólgu meðal starfs- manna, að sögn Mogens Kjaergaard Möller aðstoðarlögreglustjóra. Morgunblaðið/Júlíus

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.