Morgunblaðið - 21.09.2008, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 21.09.2008, Blaðsíða 22
22 SUNNUDAGUR 21. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ Í HNOTSKURN » Sveinbjörn Egilsson (1791-1852)Fyrsti rektor Menntaskólans í Reykjavík (Lærða skólans); einnig skáld og þýðandi – þýddi m.a. kviður Hómers, tók saman orðabók yfir íslenzkt skáldamál og þýddi Snorra Eddu og Íslendingasögur á latínu. » Benedikt (Sveinbjarnarson) Gröndal (1826-1907)Nam náttúrufræði og bókmenntir við Hafnarháskóla og lauk meistaraprófi í norrænum fræðum fyrstur Íslendinga. Hann var snilldar teiknari, ljóðskáld og samdi leikrit og sögur; þ.á m. Helj- arslóðarorrustu og skrifaði endurminningar; Dægradvöl. » Einar Benediktsson (1864-1940)Skáld, ritstjóri, lögfræðingur, embættismaður og athafnamaður og umsvifamikill á þeim sviðum öllum. Bezt lifir hann nú með þjóðinni í ljóðum sínum og þýðingum. » Ragnar Ásgeirsson (1895-1974 )Garðyrkjuráðunautur Búnaðarfélags Íslands. Ritaði margt um garðyrkju, einnig æskuminningar og safnaði þjóðlegum fróðleik; Skrudda I-III. Orti og safnaði myndlist. Á síðustu starfsárum sínum lagði hann lið stofnun byggðasafna víða um land. » Úlfur Ragnarsson (1923-2008)Læknir og starfaði sem héraðslæknir víða um land, einnig á Kleppsspítala, Heilsuhæli NLFÍ í Hveragerði og á Kristnesspítala. Hann nam m.a. kínverskar nálastungulækningar. Málaði myndir og orti. » Ragnar Önundarson (1952)Viðskiptafræðingur, bankastjóri og framkvæmdastjóri banka og kortafélags. Hefur á síðustu árum ritað greinar í Morgunblaðið um efnahags- og bankamál. Ragnar setur Heljarslóð-arorrustu á borðið, svonatil þess að andinn komiyfir okkur, við gefum okkur að Benedikt Gröndal hafi skrifað þá sögu á þessu púlti. Og líka Odysseifs-kvæði og Ilíons- kvæði, sem Sveinbjörn Egilsson þýddi, en Benedikt sonur hans lauk þýðingu seinna kvæðisins eftir að hann féll frá. Vísast hafa þeir glímt við Hómer á þessu púlti. Þegar Ragnar hefur sett Dýraríki Íslands með teikningum Benedikts Grön- dals á borðið líka, telur hann nóg gert og tekur til máls: „Þegar ég var í menntaskóla, kringum 1970, sýndi afi minn; Ragnar Ásgeirsson, mér þetta skrifpúlt og sagði mér sögu þess. Hann hafði keypt það ásamt fleiri hlutum úr búi Einars Benedikts- sonar, þegar hann fór í Herdís- arvík. Afi var kunningi skáldsins og Hlínar Johnson sem flutti með hon- um. Afi sagði að Einar hefði fyrst og fremst haldið púltinu til haga af því sem hann vissi að hafði verið skrif- að á því, Einar fékk púltið úr búi Benedikts Gröndals, sem hafði fengið það frá föður sínum; Svein- birni Egilssyni.“ Þarf að varðveita og gera upp „Afi sagði við mig: þetta þarf að varðveita og gera upp. Þannig gaf hann til kynna væntingar sínar varðandi framtíð púltsins og má segja að ég sé nú loksins að upp- fylla þær. Milli okkar afa hafði Úlf- ur Ragnarsson læknir, móðurbróðir minn, púltið undir höndum. Þeir afi voru báðir hagyrðingar og gerðu jafnvel alvarleg ljóð. Sig- valdi Kaldalóns samdi lög við tvö ljóð afa og Sigfús Halldórsson gerði lög við nokkur ljóð Úlfs.“ – Heldurðu að púltið hafi inspí- rerað frænda þinn og afa? „Nei. Það er engin ástæða til þess að búa það til. Þeir voru löngu byrjaðir að yrkja þegar púltið kom til þeirra. Áhugi þeirra, eins og Einars Benediktssonar, beindist fyrst og fremst að sögu púltsins. En ég hygg að bæði Sveinbjörn og Benedikt hafi notað púltið í dag- legum ritstörfum sínum.“ Púltið er úr massífri eik, greini- lega vinnupúlt. Í því eru rúmgóðar hirzlur og skrifborðið sjálft er gott pláss. Ragnar hefur geymt púltið síð- ustu árin á Eyrarbakka; hjá Hall- dóri Gunnlaugssyni. „Hann er lista- maður og þegar hann er með þá húfuna, kallar hann sig Forna. Ann- ars er hann lærður smiður og nam húsgagnaforvörzlu í Versölum. Halldór er minn ráðgjafi í þessu öllu. Nú er móðir mín, Eva Ragn- arsdóttir, 86 ára og farin að kalla eftir aðgerðum í sambandi við púlt- ið og eftir tilvísun Þjóðminjasafns- ins er það nú komið í hendurnar á Gunnari Bjarnasyni.“ Kallar eftir viðbrögðum Og Ragnar segir mér sögu af langömmu sinni og Benedikt Grön- dal: „Amma móður minnar; Jensína Björg Matthíasdóttir, kom til Bene- dikts Gröndals þegar hann lá bana- leguna og spurði hann hvernig hann hefði það. „Ég get ekki gengið. Ég get ekki setið og ég get ekki andað. En annars líður mér ágætlega,“ svaraði skáldið. Hann gat allavega haft húmorinn uppi!“ Þegar ég spyr Ragnar um fram- tíð púltsins segir hann: „Ég kalla eftir viðbrögðum við því hvar fólki finnst púltið eiga heima, þegar Gunnar hefur lokið við að hressa upp á það. Sveinbjörn Egilsson kom víða við; hann bjó á Bessastöðum, var rektor Lærða skólans og líklega hefur hann auk alls annars samið Heims um ból á þessu púlti. Kirkjan og Þjóðmenn- ingarhús gætu því gert tilkall til þess eins og Bessastaðir og Menntaskólinn í Reykjavík.“ – Hvað um Gröndalshús? „Já, svo er það. En það er ein- hver óvissa með það. Við sjáum til, en ég sendi ekki púltið út í ein- hverja óvissu. Öllu máli skiptir að koma því í vist, þar sem það er velkomið og því verður sýndur sá sómi, sem það á skilið.“ freysteinn@mbl.is Þar voru dýr verk skrifuð Skrifpúlt Sveinbjarnar Egilssonar er komið í viðgerð og Ragnar Ön- undarson veltir því fyr- ir sér í samtali við Freystein Jóhannsson, hvert það eigi að fara að henni lokinni. Morgunblaðið/G.Rúnar Dýrgripur Ragnar Önundarson við skrifpúlt Sveinbjarnar Egilssonar. Sveinbjörn Egilsson Úlfur Ragnarsson Benedikt Gröndal Einar Benediktsson Ragnar ÁsgeirssonSkógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Munið Mastercard ferðaávísunina Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara. Heimsferðir bjóða frábært sértilboð á síðustu sætunum til Búda- pest 23. október. Búdapest er ein fegursta borg Evrópu og haust- ið er einstakur tími til að heimsækja borgina. Fararstjórar Heims- ferða gjörþekkja borgina og kynna þér sögu hennar og heillandi menningu. Fjölbreytt gisting í boði. Búdapest býður einstakt mannlíf, menningu og skemmtun að ógleymdri getrisni Ungverja auk frábærra veitinga- og skemmtistaða. Tryggðu þér sæti! Þetta eru síðustu lausu sætin til Búdapest í haust! Verð kr. 34.990 Netverð á mann. Flugsæti báðar leiðir með sköttum. Verð kr. 59.990 - helgarferð Netverð á mann, m.v. 2 í herbergi í 3 nætur á Hotel Mercure Duna *** með morgun- mat. Sértilboð 23. okt. Helgarferð á einstökum tíma! Búdapest 23. október frá kr. 34.990 Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.