Morgunblaðið - 21.09.2008, Blaðsíða 34
34 SUNNUDAGUR 21. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
AUÐBREKKA -
KÓPAVOGUR
Til sölu vel staðsett 297,3
fm atvinnuhúsnæði á
jarðhæð. Getur hentað
fyrir margsskonar starf-
semi. Góðar innkeyrsludyr
auk sér inngöngu í mót-
töku. Tilboða er óskað.
Afhending samkv. nánari
samkomulagi.
Nánari uppl. á skrifst FM, sími 550 3000.
Til leigu heil hæð í Skipholti
(Ath! vsk. laust húsnæði)
Til leigu og afhendingar strax 650 m² mjög snyrtilegt skrifstofuhúsnæði á 3. hæð í lyftuhúsi
með fallegu útsýni að Esjunni. Frábær staðsetning miðsvæðis í Reykjavík með nægum
bílastæðum og góðum umferðatengingum í allar áttir. Húsnæðið er fullinnréttað og nýtist
sem ein heild, en einnig er auðvelt að skipta því í ofangreindar einingar, eða einhverja
blöndu af þeim. Kældur tölvuskápur til staðar og tölvulagnir í stokkum.
Ljósleiðari er inn í húsið. Dúkur á gólfum. Niðurtekin loft að hluta. Svalir.
Aðgangsstýrð sameign. Teikningar á skrifstofu. Leiga kr. 1.695/m².
Nánari upplýsingar veitir Guðlaugur 896-0747.
Sími 511 2900
Mb
l
10
49
05
5
Möguleg nýting (skipting);
Rými 0: 650 m² (samtals)
Rými 1: 390 m²
Rými 2: 202 m²
Rými 3: 58 m²
GUNNAR Birg-
isson vill eyða tor-
tryggni í Kópavogi,
svo að sátt geti náðst í
skipulagsmálum bæj-
arins. Sem dæmi um
framlag bæjaryfir-
valda í þessum efnum
er ekki úr vegi að rifja
upp þá stórsýningu
sem þau gengust fyrir
á Kársnesi nú í sumar. Sýning þessi
var í boði bæjarskipulags Kópavogs
og sýndi svo ekki varð um villst
hvernig breyta má þessu ljóta
Kársnesi í fallegt og notalegt íbúa-
hverfi með grænum svæðum.
Hókus–pókus
Öllum var boðið en almúginn á
Kársnesi var sérstaklega hvattur til
að mæta. Ég, sauðheimskur Kárs-
nesbúi, mætti að sjálfsögðu ásamt
minni eiginkonu. Þetta var of gott
tækifæri til að sleppa. Frítt inn,
kaffi, kleinur og rútuferð og allt í
boði bæjarins. Þetta var frábær
sýning. Starfsmenn bæjarins höfðu
greinilega setið sveittir við undir-
búning í allan vetur. Þegar kemur
að töfrabrögðum og sjónhverf-
ingum verður maður að vera vel
undirbúinn. Ekkert er skamm-
arlegra en að vera gripinn við að
troða spilum upp í ermina eða kan-
ínum í hatta ef maður er töframað-
ur. Mér varð hugsað til baka þegar
ég sem barn horfði með aðdáun á
sirkus Billys Smarts á gamlárs-
kvöldum. Mikið óskaði ég þess að
vera á staðnum, í stað þess að sitja
heima með nefið klesst upp að sjón-
varpsskjánum. Þeir voru klárir í
sirkusnum, þeir gátu bókstaflega
allt, en óhætt er að segja að starfs-
menn bæjarins voru þeim engir eft-
irbátar. Öll trikkin úr bókinni notuð
til þess að sannfæra áhorfandann
um að svart væri hvítt og hvítt væri
svart.
Meira verður minna
Í skipulagsmálum Kársnessins
sáu þeir í stuttu máli fyrir sér fjóra
kosti. Kostur A er
núllkostur, gerum ekki
neitt. Kostur A+: bæt-
um við örlitlu atvinnu-
húsnæði og í kosti B
og C: bætum við ör-
litlu íbúðarhúsnæði og
tökum í burt atvinnu-
húsnæði. Kostur B var
sá sem bæjarstarfs-
menn sögðust vera
hrifnastir af, svona til
að byrja með, en í
framtíðinni mætti
jafnvel taka þetta alla
leið og fara í kost C með ökubrú til
Reykjavíkur. En, bíðum nú við.
Eitt augnablik greip mig hræðsla. Í
fyrra, þegar allt ætlaði um koll að
keyra, ætluðu þeir að bæta við tæp-
lega 600 íbúðum umfram það, sem
þá var þegar samþykkt af nýju
íbúðarhúsnæði. Núna ætla þeir að
bæta við rúmlega 700 íbúðum í
kosti B og tæplega 900 íbúðum í
kosti C, en segjast samt vera að
koma til móts við íbúa með því að
draga úr þeirri þéttingu sem stefnt
hefur verið að. Sem betur fer stóð
hræðslan stutt. Þessir menn vita
hvað þeir eru að gera. Þeir kunna
að reikna og teikna og hafa áratuga
langa reynslu af skipulagsmálum
hér í Kópavogi, við góðan orðstír og
í sátt og samlyndi við íbúa. Hvað er
ég sauðheimskur Kársnesbúinn að
hafa áhyggjur af þessu? Hvað með
það þótt mér finnist 700 og 900 vera
meira en 600? Svona er ég allt of oft
að velta mér upp úr einhverju, sem
ég hvorki veit né skil. Sannleik-
urinn er vitaskuld sá að 700 og 900
eru lægri tölur en 600, að minnsta
kosti hér í hinum friðsæla Kópa-
vogi.
Gamalt fólk og ófrjóir
háskólastúdentar
Á hinni nýju, grænu Kársnestá
verður gott að búa. Þar verður allt
fullt af gömlu fólki og ófrjóum há-
skólastúdentum, ef marka má
framtíðarsýn bæjarins. Lítið verð-
ur um hávaðasöm börn, því á svo-
kölluðum þéttingarsvæðum munu
bara búa 2,2 íbúar í hverri íbúð en
ekki 2,7 eins og annars staðar á
nesinu. Samkvæmt þessu má því
aðeins fimmta hvert par eiga barn,
en reyndar bara eitt til þess að
rugla ekki þessa hárnákvæmu út-
reikninga. Kosturinn við gamla
fólkið og ófrjóu háskólastúdentana
er líka sá, að þetta fólk virðist
ferðast lítið um á bílum og í þau fáu
skipti sem það er akandi fer það
samkvæmt umferðarspá bæjarins
alltaf nesið sunnanvert, væntanlega
til að trufla ekki skapstygga fólkið
sem býr við Kársnesbraut. Á
morgnana þegar skólabjallan glym-
ur setjast háskólastúdentarnir á
hjólhestana sína og þeysa yfir nýju,
fínu göngubrúna sem verður komin
þvert yfir Fossvoginn. Ef gott er
veður og gamla fólkið hefur fengið
leið á öllum grænu svæðunum á
Kársnesinu getur það rölt sér yfir
brúna með nesti og sest að snæð-
ingi í Öskjuhlíðinni. Já, það er snið-
ugt að geta nýtt sér útivistarsvæðin
hinum megin við Fossvoginn – og
það alveg frítt í boði Reykjavík-
urbúa.
Mikið er gott að þurfa ekki að
burðast um með of mikið vit. Mér
líður vel að vera sauðheimskur. Það
er kostur að geta einfaldlega ekki
velt erfiðum hlutum fyrir sér og
vera laus undan sífelldum áhyggj-
um af framtíðinni. Þurfa ekkert að
spá í það hvor talan sé hærri 600
eða 900. Ég sef vært sem barn, vit-
andi að hinir harðduglegu starfs-
menn bæjarins eru nótt sem nýtan
dag að takast á við þessa flóknu
hluti. Reikna út hluti sem ég gæti
aldrei reiknað, skiljandi tölur sem
ég get aldrei skilið. Starfandi fyrir
mig, í mína þágu, vitandi mun betur
en ég, hvað sé mér og mínum líkum
fyrir bestu.
Það er gott að
ljúga í Kópavogi
Indriði Björnsson
skrifar um skipu-
lagsmál á Kársnesi
» Sannleikurinn er
vitaskuld sá að 700
og 900 eru lægri tölur
en 600, að minnsta kosti
hér í hinum friðsæla
Kópavogi.
Indriði Björnsson
Höfundur er tölvunarfræðingur og
sauðheimskur Kársnesbúi.
SÍMENNTUN er
regnhlífarhugtak yfir
námskeið og lengri
námsleiðir sem standa
fullorðnum ein-
staklingum til boða.
Oft eru þessi námskeið
starfstengd þar sem
markmiðið er að þjálfa
hæfni sem er mikilvæg
í starfi. Símenntun
nær einnig yfir öll þau
tómstunda-, tungu-
mála- og sjálfsstyrk-
ingarnámskeið sem í
boði eru fyrir full-
orðna. Mörg stétt-
arfélög eru með sér-
staka sjóði sem gera
félagsmönnum kleift
að sækja símennt-
unarnámskeið og
hvetja félögin þá til
þess.
Samfélag okkar þróast hratt og
oft er erfitt að fylgjast með öllum
breytingum sem eiga sér stað í
störfum okkar. Þing Evrópusam-
bandsins mælir með eftirfarandi
átta færniiatriðum (key competen-
ces) sem æskilegt er að hafa til hlið-
sjónar þegar hugað er að símennt-
un:
Samskipti á móðurmálinu
Samskipti á erlendum tungu-
málum
Stærðfræðikunnátta og grund-
vallarþekking í vísindum og
tækni
Færni í stafrænni tækni, upp-
lýsinga- og samskiptatækni
Að læra að læra
Félagsleg færni og borgaravit-
und
Skilningur á frumkvöðlastarfi
og að sýna frumkvæði
Menningarvitund og tjáning
Til þess að takast á við öra
starfsþróun í atvinnulífinu er mik-
ilvægt að stuðla að aukinni símennt-
un þar sem þessi færni
er þjálfuð. Eitt af
þessum atriðum er að
læra að læra. Þetta
virðist í fyrstu stinga
svolítið í stúf við hina
færniþættina. Hins
vegar er þessi færni
eflaust einna mik-
ilvægust. Að læra að
læra þýðir í raun að
vakna til vitundar um
að á meðan við lifum
erum við stöðugt að
læra. Það er einnig
ábending um hve mik-
ilvægt það er að leita
leiða til að læra meira
og að geta skipulagt
nám okkar. Símennt-
unarmiðstöðvar hafa
þetta að leiðarljósi og
reyna að koma til móts
við einstaklinga og at-
vinnulíf með því að
bjóða upp á alls kyns
leiðir til þess að að-
stoða fólk við að læra
að læra.
Í síbreytilegu starfsumhverfi og
samfélagi er mikilvægt að tileinka
sér kosti þess að læra. Opinn hugur
og örlítið þor er oft það eina sem til
þarf. Bæði einstaklingar og atvinnu-
rekendur þurfa þess vegna að vera
vakandi fyrir mikilvægi símennt-
unar og hvar hún stendur til boða.
Þann 21.-28. september er vika sí-
menntunar haldin. Markmið viku sí-
menntunar að þessu sinni er að
vekja áhuga fólks sem ekki hefur
notið mikillar formlegrar mennt-
unar á tækifærum til þess að efla
sig með símenntun.
Í viku símenntunar mun Fram-
vegis, miðstöð um símenntun, bjóða
upp á örnámskeið og kynningar á
námsleiðum sem vinnustaðir geta
pantað þeim að kostnaðarlausu. Yf-
irlit yfir það sem í boði er má finna
á heimasíðunni www.framvegis.is.
Að læra að læra
Sólveig Lilja Snæ-
björnsdóttir skrifar
um menntamál
Sólveig Lilja
Snæbjörnsdóttir
» Að læra að
læra þýðir í
raun að vakna
til vitundar um
að á meðan við
lifum erum við
stöðugt að
læra.
Höfundur er verkefnastjóri hjá
Framvegis, miðstöð um símenntun.
MORGUNBLAÐIÐ birtir alla út-
gáfudaga aðsendar umræðugreinar
frá lesendum. Blaðið áskilur sér rétt
til að hafna greinum, stytta texta í
samráði við höfunda og ákveða
hvort grein birtist í umræðunni, í
bréfum til blaðsins eða á vefnum
mbl.is. Blaðið birtir ekki greinar,
sem eru skrifaðar fyrst og fremst til
að kynna starfsemi einstakra stofn-
ana, fyrirtækja eða samtaka eða til
að kynna viðburði, svo sem fundi og
ráðstefnur.
Innsendikerfið
Þeir sem þurfa að senda Morgun-
blaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðs-
ins. Formið er undir liðnum „Senda
inn efni“ ofarlega á forsíðu mbl.is.
Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Ekki er lengur tekið við greinum
sem sendar eru í tölvupósti.
Í fyrsta skipti sem formið er notað
þarf notandinn að nýskrá sig inn í
kerfið, en næst þegar kerfið er not-
að er nóg að slá inn netfang og lyk-
ilorð og er þá notandasvæðið virkt.
Ekki er hægt að senda inn lengri
grein en sem nemur þeirri hámarks-
lengd sem gefin er upp fyrir hvern
efnisþátt en boðið er upp á birtingu
lengri greina á vefnum.
Nánari upplýsingar gefur starfsfólk
greinadeildar.
Móttaka aðsendra greina