Morgunblaðið - 21.09.2008, Síða 48
48 SUNNUDAGUR 21. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
4 6 5
2 3 1 9
5 3 2 1
9 7 1 2
4 7 2 1
2 9 4 5
6 5 7 3
7 2 8 6
8 9 7
Þrautin felst í því að
fylla út í reitina þannig
að í hverjum 3x3-reit
birtist tölurnar 1-9. Það
verður að gerast þannig
að hver níu reita lína
bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9
og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Sudoku
4 5 7 6
8 5 2
7 1 6 5
8 6 9 7 4
9
5 7 9 8 2
8 6 1 9
2 8 7
1 4 8 2
3 6 8
9 3 2 1
9 2 3 7
2 4 6
1 6 4 8
5 4 8
7 8 2 9
6 4 3 7
2 8 3
9 6 4 5 3 2 1 8 7
5 1 2 9 7 8 6 4 3
3 7 8 1 6 4 9 5 2
2 9 5 8 4 1 3 7 6
1 8 6 7 9 3 5 2 4
4 3 7 2 5 6 8 1 9
6 2 9 4 1 5 7 3 8
8 5 3 6 2 7 4 9 1
7 4 1 3 8 9 2 6 5
8 4 1 6 7 9 3 5 2
3 6 9 4 5 2 8 7 1
5 7 2 8 1 3 4 6 9
9 5 7 3 2 4 1 8 6
6 1 8 7 9 5 2 4 3
2 3 4 1 8 6 7 9 5
7 9 3 2 6 8 5 1 4
1 2 6 5 4 7 9 3 8
4 8 5 9 3 1 6 2 7
5 6 9 2 1 8 3 4 7
2 8 4 3 7 6 1 5 9
7 1 3 4 9 5 2 8 6
6 3 5 1 2 7 8 9 4
1 2 8 9 6 4 7 3 5
9 4 7 5 8 3 6 1 2
8 5 2 6 3 9 4 7 1
4 7 1 8 5 2 9 6 3
3 9 6 7 4 1 5 2 8
dagbók
Í dag er sunnudagur 21. september,
265. dagur ársins 2008
Orð dagsins: Sækist eins og nýfædd
börn eftir hinni andlegu, ósviknu
mjólk, til þess að þér af henni getið
dafnað til hjálpræðis. (1Pt. 2, 2.)
Víkverji brá sér á málverkasýn-ingu Braga Ásgeirssonar á
Kjarvalsstöðum og skoðaði mynd-
irnar ásamt þriggja ára vini sínum. Í
allnokkrar myndanna hafði myndlist-
armaðurinn fest alls kyns hluti; litlar
dúkkur, snuð, víra, penna og fleira
smádót sem litli vinurinn hreifst af.
Hann gat ekki leynt hrifningu sinni á
myndunum, benti stöðugt og spurði:
„Hvað er þetta?“
x x x
Þegar komið var innar í salinnvoru annars konar myndir á
vegg. Ekkert dót var fest á þær. Litli
listaverkaunnandinn leit á mynd-
irnar og sagði nokkuð vonsvikinn:
„Ekkert dót, bara málning!“ Þar sem
litli vinurinn er uppfinningamaður í
eðli sínu sneri hann sér að því að
finna aðrar gersemar og fann þær á
gólfi salarins en þar er víða sér-
kennilega kringlótt gyllt mynstur.
„Gull!“ hrópaði vinurinn og lagðist í
gólfið og hóf frekari rannsóknir. Eft-
ir nokkra athugun tilkynnti hann að
langt fyrir neðan þessi göt væri fal-
inn fjársjóður. Víkverja fannst þetta
merkileg tíðindi en þau urðu enn
merkilegri því vinur hans sagði hon-
um að sjóræningjar vissu af þessum
fjársjóði og ætluðu sér að stela hon-
um. Þetta væri engan veginn gott,
sagði litli og knái vinurinn, það þyrfti
að bregðast við og næla í fjársjóðinn
á undan sjóræningjunum. Best væri
að fara um nóttina og verða á undan
þessum óþjóðalýð. Þar sem Víkverji
er ævintýragjarn samþykkti hann
umyrðalaust að fara í skjóli nætur
með vini sínum og heimta fjársjóðinn.
Svo kvaddi Víkverji þennan hug-
rakka unga vin sinn.
x x x
Ekkert varð þó úr fjársjóðsferð-inni því litli vinurinn lét ekkert
frekar í sér heyra, hefur sennilega
sofið yfir sig. Víkverji er hins vegar
stórhrifinn af skapandi hugsun þessa
litla og sérstaka vinar síns og hefur á
síðustu dögum oft orðið hugsað til
þessarar merkilegustu heimsóknar á
listasafn sem hann hefur upplifað.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 galsi, 4 harm-
ar, 7 lágfótan, 8 bjargbú-
um, 9 kraftur, 11 skelin,
13 sorg, 14 styrkir, 15
lögun, 17 bergmál, 20
ílát, 22 málreif, 23 hefð-
arkona, 24 hirða um, 25
hæsi.
Lóðrétt | 1 skvampa, 2
kvarta, 3 sívinnandi, 4
málmur, 5 refsa, 6 víð-
um, 10 lýðs, 12 læri, 13
skar, 15 gaffals, 16 gler-
ið, 18 fuglum, 19 byggja,
20 ilma, 21 léleg skrift.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 liðleskja, 8 skjór, 9 lúpur, 10 fit, 11 merja, 13
asnar, 15 fjörs, 18 slæpt, 21 kyn, 22 eldur, 23 aflar, 24
hranalegt.
Lóðrétt: 2 iljar, 3 larfa, 4 selta, 5 Japan, 6 ásum, 7 grær,
12 jór, 14 sál, 15 frek, 16 öldur, 17 skran, 18 snarl, 19
ærleg, 20 tíra.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. d4 cxd4 4.
Rxd4 a6 5. Bd3 Bc5 6. Rb3 Be7 7.
O–O d6 8. Dg4 g6 9. Dg3 Rc6 10.
a4 h5 11. Ra3 h4 12. De3 Rf6 13.
Bd2 e5 14. f4 Rg4 15. De2 exf4 16.
Bxf4 h3 17. Rc4 hxg2 18. Dxg2
Rge5 19. Bxe5 dxe5 20. Df2 Be6 21.
Kh1 Bh4 22. Dg1 De7 23. Rb6 Hd8
24. Rd5
Staðan kom upp í landsliðsflokki
Skákþings Íslands sem lauk fyrir
skömmu í húsakynnum Taflfélags
Reykjavíkur í Faxafeni 12. Tífaldur
Íslandsmeistari í skák, stórmeist-
arinn Hannes Hlífar Stefánsson
(2566), hafði svart gegn Magnúsi
Erni Úlfarssyni (2403). 24… Hxd5!
og hvítur gafst upp enda verður
stórfellt liðstap ekki umflúið.
Svartur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Vínarbragði forðað.
Norður
♠8
♥ÁG10
♦ÁK432
♣10843
Vestur Austur
♠ÁG10742 ♠D963
♥832 ♥KD965
♦G8 ♦D96
♣G9 ♣7
Suður
♠K5
♥74
♦1075
♣ÁKD652
Suður spilar 5♣.
Þrjú grönd í suður er besti samning-
urinn, en þangað rataði hvorugt NS–
parið í úrslitaleik bikarkeppninnar. Á
öðru borðinu varð norður sagnhafi í 3G
eftir hjartameldingar AV. Útspil í
spaða hafði glatt vestur, en liturinn
hafði aldrei verið nefndur á nafn og
austur kom því út með hjarta.
Á hinu borðinu endaði Sverrir Ár-
mannsson í 5♣ gegn Ragnari Magn-
ússyni og Páli Valdimarssyni. Ragnar
kom út með ♥2 í sögðum lit Páls.
Sverrir setti tíuna, Páll drap og spilaði
spaða til makkers. Þá innkomu notaði
Ragnar til að spila aftur hjarta og
Sverrir tók besta kostinn með því að
svína. Einn niður. Þessi vörn er nauð-
synleg, því annars er hægt að þvinga
austur í rauðu litunum: Taka ♦ÁK og
nota ♦10 heima sem þvingunarspil og
♥G í borði. Vínarbragð.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Þú hefur einhverju áríðandi að
miðla til fólksins þíns. Ekki verða hissa ef
þú stressast smávegis. Þegar rétta augn-
blikið kemur renna skilaboðin upp úr þér.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú munt verða mjög upptekinn við
að gera eitthvað sem þú hefur aldrei gert
áður. Hvirfilvindur ræðst inn í líf þitt.
Hvíldu þig, borðaðu vel og vertu tilbúinn.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Að taka fá lán lætur þig líta vel
út í augum bankanna. Það sama á við um
vinargreiða. Þegar þeir bjóða fram hjálp
sem þú þiggur ekki hækkarðu í áliti.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Í dag eiga sér stað stutt og listræn
augnablik tenginga sem aldrei verða end-
urtekin. Þú getur hins vegar alltaf kallað
fegurð þeirra fram í hugann.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þegar þú hlustar á hjartað segir það
þér að eyða meiri tíma í hversdagsverkin.
Að klæða sig, elda eða deila einhverju
með ástvinum er tækifæri til að skína.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Gefðu sjálfum þér frí frá því að
pæla í hvað aðrir eru að gera. Einbeittu
þér að eigin gjörðum. Það er þreytandi að
sífellt gruna fólk um hitt og þetta.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þér finnst þú loksins reiðubúinn til að
tjá þarfir þínar og pælingar fyrir maka
þínum. Vertu heiðarlegur og bein-
skeyttur um mál sem hefur vegið þungt á
þér.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þú þráir réttlæti fyrir alla.
Hæfileiki þinn til að sjá vandamál frá
báðum hliðum mun koma ástvinum þínum
mjög vel. Gefðu þeim allt sem þú hefur að
gefa.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þú hefur tíma til að gera akk-
úrat það sem þú vilt, en bara með því að
sleppa einhverju sem einhver annar vill.
Sá sem stendur með þér skilur þig.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Hláturinn hleðst upp innra með
þér og þarf að komast út. Þér finnst ekki
erfitt að koma auga á skondnu hliðar
heimsins – en vilt njóta þess með öðrum.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þú dregst að himneskum hug-
myndum og ert sífellt að þroskast and-
lega. Þú vilt gefa þig æðra mætti á vald
og færð svar í gegnum íhugun eða bæn.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú ert opinn fyrir nýjum hugs-
unarhætti og skalt ekki vera með hverj-
um sem er. Þú ert áhrifagjarn og of varn-
arlaus gagnvart heimskulegum ráðum.
Stjörnuspá
Holiday Mathis
21. september 1918
Fyrsta konan fékk öku-
skírteini hér á landi. Það var
Áslaug Þorláksdóttir Johnson.
Þá voru áttatíu karlar komnir
með ökuréttindi.
21. september 1919
Reykjanesviti skemmdist mik-
ið í jarðskjálfta. Vitinn
„sprakk yfir þvert og ljós-
tækin færðust úr lagi,“ að
sögn Morgunblaðsins.
21. september 1951
Súðin sigldi gegnum Súes-
skurð, fyrst skipa undir ís-
lenskum fána. Skipið var á leið
frá Íslandi til Hong Kong, en
þangað hafði það verið selt.
21. september 1963
Eiríkur Kristófersson skip-
herra var sæmdur æðstu orðu
sem Bretar veita erlendum
mönnum. Orðan var meðal
annars veitt fyrir björgun
breskra sjómanna, en á fjöru-
tíu ára ferli sínum sem stýri-
maður og skipherra hjá Land-
helgisgæslunni átti Eiríkur
þátt í björgun 640 skipa. Hann
varð þjóðþekktur í þorska-
stríðinu 1958-1961.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
JÓN Birgir Pétursson, rithöfundur og fyrrverandi
blaðamaður, segist vera orðinn þreyttur á hefð-
bundnum boðum og ætlar hann því í tilefni dags-
ins að fara með eiginkonu sinni, Fjólu Arndórs-
dóttur, börnum þeirra sex og 10 barnabörnum, í
Borgarfjörð. „Við ætlum að fara að skoða Deild-
artunguhver sem var í eigu móðursystur minnar,“
en sá er vatnsmesti hver landsins.
„Svo ætlum við að fara að Reykholti. Þar er
Óskar Guðmundsson rithöfundur og ætlar hann að
segja okkur frá Snorra Sturlusyni og sýna okkur
Reykholtið,“ segir Jón Birgir en að því loknu ætl-
ar Steinar Berg Ísleifsson að fara með fjölskylduna í göngutúr og
sýna henni ummerki eftir tröllin sem reikuðu um Borgarfjörð í gamla
daga. „Svo ætlum við að fara í góðan kvöldverð hjá Steinari og Ingi-
björgu [Pálsdóttur, konu Steinars] í Fossatúni og eiga gott kvöld.“
Jón Birgir hefur starfað sem fréttastjóri á Vísi og Dagblaðinu og
rekið sitt eigið fjölmiðlafyrirtæki. Sem blaðamaður hefur Jón Birgir
þurft að ferðast víða. „Ég hef átt afmælisdaga úti um allan heim, í
Danmörku, Svíþjóð, Bandaríkjum og víðar. Það er svona með blaða-
menn, þeir eru úti um allt,“ segir hann.
Þessa dagana stendur hann í ströngu við að skrifa sögu björg-
unarsveita á Íslandi. „Þetta er gríðarlega mikið verk,“ segir Jón Birg-
ir en hann setur stefnuna á tvær þykkar bækur. | ylfa@mbl.is
Jón Birgir Pétursson rithöfundur sjötugur
Skoðar ummerki trölla
Lausn síðustu Sudoki.Frumstig Miðstig Efstastig
;)
Nýbakaðir foreldrar?
Sendið mynd af nýja ríkisborgaranum
ásamt upplýsingum um fæðingarstað
og stund, þyngd, lengd
og nöfn foreldra, á netfangið
barn@mbl.is
Jón Jason
Ólafsson, Hæð-
argarði 35,
Reykjavík, er
níræður í dag.
Hann tekur á
móti gestum frá
kl. 15 til 17 í
dag í þjónustu-
miðstöðinni
Hæðargarði 31.
90 ára