Morgunblaðið - 21.09.2008, Qupperneq 53

Morgunblaðið - 21.09.2008, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21. SEPTEMBER 2008 53 • Meðalstór prentsmiðja óskar eftir sameiningu við traust fyrirtæki með hagræðingu í huga. Ársvelta 170 mkr. EBITDA 30 mkr. • Þekkt, lítið hellulagninga- og jarðvinnufyrirtæki með 6 ára góða rekstrarsögu. Ársvelta 50 mkr. Tilvalið til sameiningar eða fyrir duglegan mann sem vill fara í eigin rekstur. • Markaðsstjóri-meðeigandi óskast að bílaumboði. • Leiðandi hestavöruverslun með mjög góða staðsetningu. Ársvelta 100 mkr. • Sérstæð verslun og þjónusta með merktar vörur. Hentugt fyrir grafíska hönnuði og hugmyndaríkt fólk. Góð framlegð. • Rótgróið ræstingafyrirtæki með fasta viðskiptavini og skriflega samninga. Ársvelta 120 mkr. EBITDA 25 mkr. • Innflutnings- og framleiðslufyrirtæki með góðum hagnaði óskar eftir sameiningu við vandaða trésmiðju sem sérhæfir sig í innréttingum. • Þekkt verslun með tískuvörur fyrir ungt fólk á mjög góðum stað. Ársvelta 70 mkr. Miðasala S. 545 2500 www.sinfonia.is ■ Föstudagur 26. september kl. 19.30 Eldur og ís - tónleikar utan raða Íslensk efnisskrá sem verður einnig flutt í tónleikaferð hljómsveitarinnar til Japan í október. Einstakt tækifæri til að hlýða á nokkur áheyrilegustu tónverk íslenskrar tónlistarsögu. Stjórnandi: Petri Sakari Einleikarar: Ari Þór Vilhjálmsson og Hallfríður Ólafsdóttir Jón Leifs: Þrjú óhlutræn málverk Jórunn Viðar: Eldur Hafliði Hallgrímsson: Poemi Þorkell Sigurbjörnsson: Columbine Áskell Másson: Rún Atli Heimir Sveinsson: Icerapp 2000 ■ Laugardagur 27. september kl. 17.00 Bandarískt brass - kristaltónleikar í Þjóðmenningarhúsinu Málmblásarasveit hljómsveitarinnar hefur leikinn í kammertónleikaröðinni Kristalnum með alkunnum glæsibrag. ■ Fimmtudagur 2. október kl. 19.30 Í austurvegi ■ Föstudagur 3. október kl. 21.00 Heyrðu mig nú - Gamelan STOÐIR ERU AÐALSTYRKTARAÐILI SINFÓNÍUHLJÓMSVEITAR ÍSLANDS Aðalkeppnisflokkur Al-þjóðlegu kvikmyndahátíð-arinnar í Reykjavík,RIFF, ber heitið Vitranir og liggur nú fyrir hvaða myndir verða sýndar í þeim flokki. Mynd- irnar í flokknum eru jafnan fyrsta eða önnur mynd leikstjóra og eru venjulega að hefja ferðalag sitt um heiminn á hátíðinni. Aðaldómnefnd hátíðarinnar mun velja bestu mynd- ina úr þessum flokki sem og al- þjóðlegu gagnrýnendasamtökin FI- PRESCI. Dómnefndina skipa leikkonan Arsinée Khanjian, leik- stjórinn Baltasar Kormákur, Katrin Ottarsdottir leikstjóri, Margrét Vil- hjálmsdóttir leikkona og Arto Halo- nen heimildarmyndasmiður. Baltas- ar er formaður dómnefndar. Vinningsmyndin hlýtur titilinn „Uppgötvun ársins“ og leikstjóri þeirrar myndar fær Gullna lundann að launum Kvikmyndir í Vitrunum Án vægðar – Fekete fehér Leikstjóri Elemér Ragalyi. Roskinn maður er myrtur og hinn ungi Dénes er grunaður um morðið. Ýmislegt bendir til þess að Dénes hafi framið glæpinn, hann er fangelsaður og réttað er yfir honum. Réttarhöldin taka óratíma þar sem vitni reynast flest óáreiðanleg og málið allt hið undarlegasta. Blindar ástir – Slepe lásky Leikstjóri Juraj Lehotsky. Fylgt er eftir tveimur pörum, blindri móður og táningsstúlku sem reynir að finna ástina á netinu. Hvernig finnur blindur maður ástina? Líta blindir öðruvísi á ástina en annað fólk? Eftir skóla – After School Leikstjóri Antonio Campos. Róbert stundar nám í dýrum bandarískum framhaldsskóla. Hann er háður net- inu og vill festa á filmu allt sem verð- ur á vegi hans. Þegar hann er að leika sér með myndavélina á göng- um skólans einn daginn verður hann vitni að því að tveir nemendur á lyfj- um deyja af ofneyslu. Róbert tekur þetta upp. Fljúgðu hærra – Otryv Leikstjóri Alexander Mindadze. Eftir að hafa misst eiginkonu sína í flugslysi reynir maður nokkur að grafast fyrir um raunverulegar ástæður slyssins. Hann neyðist til þess að brjótast í gegnum lygavefinn sem umlykur hann og gleymir um leið sorg sinni um hríð Fuglasöngur – El Cant Dels Occels Leikstjóri Albert Serra. Myndin er leikin jafnt á katalónsku sem og hebresku og í henni fylgjumst við með ferð vitringanna þriggja úr Biblíunni. Vegferð vitringanna er vörðuð háfleygum og skondnum samtölum, sem og viðkomu yfirnátt- úrlegra vera. Fyrir morgundaginn – Le Jour avant le lendemain Leikstjórar Marie-Heléne Cous- ineau & Madeline Ivalu. Myndin gerist um 1840 og fjallar um ættbálk inúíta sem hittast sumar eitt eftir langa einangrun. Sumarið er fagnaðartími og lífið virðist leika við þetta fólk en ekki er allt sem sýnist. Heima – Home Leikstjóri Ursula Meier. Náin fjöl- skylda býr langt frá bæjarmörkum og þeirri veruleikafirringu sem til- heyrir nútímanum og siðmenning- unni. Siðmenningin treður sér upp á fjölskylduna þegar þjóðvegur er lagður við hliðina á heimilinu. Kalt borð – Lønsj Leikstjóri Eva Sorhaug. Það er ekk- ert sældarlíf þegar allir aðrir eru að gera það gott. Christer lendir í Hitchcock-skum útistöðum við máva og þarf að þvo skyrtuna sína. Hann hendir skyrtunni í þvottavélina með leigupeningunum í og þarf að taka rafmagnið af fjölbýlishúsi til að bjarga peningunum úr þvotti. Þetta hefur ófyrirséð áhrif á aðra íbúa. Saga 52 – Istoria 52 Leikstjóri Alexis Alexiou. Jason hef- ur þjáðst af höfuðverk frá því í æsku og brugðist við með því að flýja inn í draumaheim. Þegar kærasta hans yfirgefur hann virðist hann ráð- þrota. Það er ekki alltaf ljóst hvar draumarnir byrja og enda í þessari mynd. Snjór – Snijeg Leikstjóri Aida Begic. Stríðshrjáð Bosnía árið 1997. Segir af litlum hópi fólks sem misst hefur fjölskyldur sínar og hefur skapað sér sinn eigin heim í einangrun. Senn tekur að snjóa og þá fer fólkið loksins að gera sér grein fyrir þeirri einangrun sem það býr við. Tulpan Leikstjóri Sergey Dvortsevoy. Eftir að Asa lýkur herþjónustu við rúss- neska flotann ferðast hann aftur til Hunger-steppunnar í Kasakstan og hefur hug á að gerast hirðingi en til þess þarf hann að kvænast. Eina von- in á eyðilegri steppunni er Tulpan, dóttir annars hirðingja, en hún kann ekki að meta Asa. Upprisa – A Zona Leikstjóri Sandro Aguilar. Sérhver persóna í myndinni þarf að taka á ástvinarmissi. Allir virðast lamaðir af harmi, ráfandi um í tilver- unni, sviptir því fólki sem skiptir þá mestu máli. Villtur tarfur – Valu Leikstjóri Umesh Kulkarni. Villti tarfurinn Valu gengur laus í ind- verska þorpinu Kusavde, og er kennt um allar hrakfarir og óhöpp sem eiga sér þar stað. Þegar kvikmynda- gerð- armaður hyggst taka upp heimild- armynd í þorpinu byrja þorpsbúar að hegða sér eins og kvikmyndastjörnur. Zift Leikstjóri Javor Gardev. Búlgörsk glæpamynd í anda gömlu rökk- urmyndanna en færð í nýstárlegan búning. Söguhetjan er glæpamaður nefndur Mölurinn, nýsloppinn úr fangelsi. Hann reynir að gera upp for- tíð sína á sólarhring. Fjölþjóðlegar Vitranir Frekari upplýsingar á riff.is. After School Róbert kvikmyndar tvo nema deyja af lyfjaneyslu. Fuglasöngur Fylgst er með ferð vitringanna þriggja úr Biblíunni og er hún vörðuð skondnum samtölum. Tulpan Rússneskur hermaður hefur hug á að gerast hirðingi..  Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Reykjavík hefst í vikunni  Fjórtán myndir eru í aðalkeppnisflokknum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.