Morgunblaðið - 01.10.2008, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 2008 13
FRÉTTIR
Eftir Agnesi Bragadóttur
agnes@mbl.is
LOKAÐ var fyrir viðskipti þriggja sjóða
Glitnis í gær, Sjóði 9, sem er peningamark-
aðssjóður sem stýrir um 230 milljörðum
króna, Sjóði 1 og Sjóði 9 evrusjóði bankans.
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins úr
Glitni var þessi ákvörðun tekin í gærmorgun,
vegna þess að í kjölfar hruns á hlutabréfum
Glitnis var staðan sú að ekki voru fullnægj-
andi veð lengur fyrir hendi í öllum sjóðunum
fyrir þeim skuldabréfum sem sjóðirnir, eink-
um Sjóður 9 hafa keypt af fyrirtækjum.
Þannig skulduðu Stoðir sjóðnum allnokkra
milljarða króna.
Í tilkynningu frá Glitni Sjóðum sagði m.a. í
gær: „Til að vernda hagsmuni eigenda hlut-
deildarskírteina í Sjóði 9, Sjóði 1 og Sjóði 9
EUR og tryggja verðmæti eigna verða þessir
sjóðir lokaðir í dag, þriðjudaginn 30. sept-
ember.“
Bankinn hefur heimild til þess að stöðva
viðskipti þessara sjóða, þegar svo mikill órói
er á mörkuðum, eins og nú er. Viss óvissa er
með sjóðina, vegna þess að í ákveðnum til-
vikum skortir á að fullnægjandi ábyrgðir séu
fyrir hendi. Forsvarsmenn Glitnis höfðu
stefnt að því að opna fyrir viðskipti sjóðanna
sem allra fyrst, en örugglega fyrir helgi.
Meginkapp var lagt á að tryggja að höfuðstóll
eigendanna rýrnaði ekki.
Morgunblaðið hefur heimildir fyrir því að
meðal skuldabréfa sem liggja inni í Sjóði 9 sé
skuldabréf upp á 10 milljarða króna frá
Baugi. Fullyrt var við Morgunblaðið í gær að
nægar ábyrgðir væru að baki skuldabréfum
Baugs í sjóðunum en öðru máli gegndi með
skuldabréf frá Stoðum. Unnið væri að því af
fullum krafti að greiða úr þessum málum og
höfuðkapp lagt á að tryggja hag eigenda
sjóðanna sem best.
Morgunblaðið hefur heimildir fyrir því að
ýmsir sparifjáreigendur, sem hafa fremur
kosið að leggja sparifé sitt í peningamark-
aðssjóði en á hefðbundnar sparisjóðsbækur,
vegna þeirrar góðu ávöxtunar sem slíkir sjóð-
ir hafa skilað á undanförnum árum, séu nú
mjög uggandi um sinn hag. Ekki liggur fyrir
á þessari stundu hvort eigendur hlutdeild-
arskírteina í ofangreindum sjóðum verða fyr-
ir fjárhagslegu tjóni, eða hversu miklu, ef um
tjón verður að ræða á annað borð.
Í tilkynningu frá Glitni sem barst í gær-
kvöldi segir að bankinn hafi ákveðið að opna
fyrir viðskipti með sjóðina. Í sjóðunum eru
nú engin skuldabréf á Stoðir hf. Í tilkynning-
unni segir að við endurmat á Sjóði 9 liggi fyr-
ir að ávöxtun sjóðsins hafi lækkað um 7%.
Þar segir jafnframt að ákvörðun um að
loka fyrir kaup og sölu sjóðanna hafi verið
nauðsynleg til að tryggja rétta verðmyndun á
eignum viðskiptavina og jafnframt að skapa
svigrúm og tíma til að koma eignum í verð.
Glitnir harmar jafnframt þá erfiðleika sem
þetta hafði í för með sér fyrir viðskiptavini
bankans.
Óljóst hvort og hversu mikið
tap verður á sjóðum Glitnis
Eigendur hlutdeildarskírteina í sjóðum Glitnis uggandi um sinn hag Opnað verður
fyrir viðskipti í sjóðunum í dag Höfuðkapp var lagt á að vernda höfuðstól eigenda
Morgunblaðið/Kristinn
Glitnir Lokað var fyrir viðskipti þriggja sjóða Glitnis til þess að vernda hagsmuni eigenda hlutdeildarskírteina. Opnað verður fyrir viðskiptin að
nýju í dag. Glitnir harmar þá erfiðleika sem þetta hafði í för með sér fyrir viðskiptavini bankans.