Morgunblaðið - 01.10.2008, Síða 13

Morgunblaðið - 01.10.2008, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 2008 13 FRÉTTIR Eftir Agnesi Bragadóttur agnes@mbl.is LOKAÐ var fyrir viðskipti þriggja sjóða Glitnis í gær, Sjóði 9, sem er peningamark- aðssjóður sem stýrir um 230 milljörðum króna, Sjóði 1 og Sjóði 9 evrusjóði bankans. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins úr Glitni var þessi ákvörðun tekin í gærmorgun, vegna þess að í kjölfar hruns á hlutabréfum Glitnis var staðan sú að ekki voru fullnægj- andi veð lengur fyrir hendi í öllum sjóðunum fyrir þeim skuldabréfum sem sjóðirnir, eink- um Sjóður 9 hafa keypt af fyrirtækjum. Þannig skulduðu Stoðir sjóðnum allnokkra milljarða króna. Í tilkynningu frá Glitni Sjóðum sagði m.a. í gær: „Til að vernda hagsmuni eigenda hlut- deildarskírteina í Sjóði 9, Sjóði 1 og Sjóði 9 EUR og tryggja verðmæti eigna verða þessir sjóðir lokaðir í dag, þriðjudaginn 30. sept- ember.“ Bankinn hefur heimild til þess að stöðva viðskipti þessara sjóða, þegar svo mikill órói er á mörkuðum, eins og nú er. Viss óvissa er með sjóðina, vegna þess að í ákveðnum til- vikum skortir á að fullnægjandi ábyrgðir séu fyrir hendi. Forsvarsmenn Glitnis höfðu stefnt að því að opna fyrir viðskipti sjóðanna sem allra fyrst, en örugglega fyrir helgi. Meginkapp var lagt á að tryggja að höfuðstóll eigendanna rýrnaði ekki. Morgunblaðið hefur heimildir fyrir því að meðal skuldabréfa sem liggja inni í Sjóði 9 sé skuldabréf upp á 10 milljarða króna frá Baugi. Fullyrt var við Morgunblaðið í gær að nægar ábyrgðir væru að baki skuldabréfum Baugs í sjóðunum en öðru máli gegndi með skuldabréf frá Stoðum. Unnið væri að því af fullum krafti að greiða úr þessum málum og höfuðkapp lagt á að tryggja hag eigenda sjóðanna sem best. Morgunblaðið hefur heimildir fyrir því að ýmsir sparifjáreigendur, sem hafa fremur kosið að leggja sparifé sitt í peningamark- aðssjóði en á hefðbundnar sparisjóðsbækur, vegna þeirrar góðu ávöxtunar sem slíkir sjóð- ir hafa skilað á undanförnum árum, séu nú mjög uggandi um sinn hag. Ekki liggur fyrir á þessari stundu hvort eigendur hlutdeild- arskírteina í ofangreindum sjóðum verða fyr- ir fjárhagslegu tjóni, eða hversu miklu, ef um tjón verður að ræða á annað borð. Í tilkynningu frá Glitni sem barst í gær- kvöldi segir að bankinn hafi ákveðið að opna fyrir viðskipti með sjóðina. Í sjóðunum eru nú engin skuldabréf á Stoðir hf. Í tilkynning- unni segir að við endurmat á Sjóði 9 liggi fyr- ir að ávöxtun sjóðsins hafi lækkað um 7%. Þar segir jafnframt að ákvörðun um að loka fyrir kaup og sölu sjóðanna hafi verið nauðsynleg til að tryggja rétta verðmyndun á eignum viðskiptavina og jafnframt að skapa svigrúm og tíma til að koma eignum í verð. Glitnir harmar jafnframt þá erfiðleika sem þetta hafði í för með sér fyrir viðskiptavini bankans. Óljóst hvort og hversu mikið tap verður á sjóðum Glitnis  Eigendur hlutdeildarskírteina í sjóðum Glitnis uggandi um sinn hag  Opnað verður fyrir viðskipti í sjóðunum í dag  Höfuðkapp var lagt á að vernda höfuðstól eigenda Morgunblaðið/Kristinn Glitnir Lokað var fyrir viðskipti þriggja sjóða Glitnis til þess að vernda hagsmuni eigenda hlutdeildarskírteina. Opnað verður fyrir viðskiptin að nýju í dag. Glitnir harmar þá erfiðleika sem þetta hafði í för með sér fyrir viðskiptavini bankans.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.