Morgunblaðið - 01.10.2008, Page 21

Morgunblaðið - 01.10.2008, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. OKTÓBER 2008 21 ir margvíslega þjónustu og stuðning við fjölskyldur og einstaklinga sem takast á við afleiðingar áfalla, mik- illar streitu, sjúkdóma eða van- rækslu. Skv. upplýsingum HAK benda rannsóknir til þess að heilbrigð og ástrík tilfinningatengsl verki líkt og bólusetning fyrir áföllum síðar meir. Reuters Fjölskyldulíf Mikil og vaxandi þörf er fyrir þjónustu og stuðning við fjölskyldur og einstaklinga. Guðlaug hafði starfað við gler- listina í 3 ár þegar Lárus ákvað að prófa þetta listform. Hann sagði í samtali við blaðamann að áhuginn hefði að mestu sprottið af forvitni. „Ég byrjaði að vinna sem aðstoð- armaður á verkstæði sem mamma hafði verið að vinna á, en einnig sem aðstoðarmaður hennar. Ég fór fljótt í að framleiða ýmsa smáhluti úr gleri. Það er mjög auðvelt að falla fyrir þessu efni.“ Lárus hóf störf við gler- blástur árið 2000 og hefur fyrst og fremst lært af meisturum. Í list sinni fæst hann við framleiðslu almennra nytjahluta með listrænu ívafi. Einnig er hluti verka hans skúlptúrar úr blásnu og steyptu gleri, málmi, bein- um og steinum og myndverk þar sem hann spilar saman glerlist og viði, steinum og málmi. Þá hefur hann fengist við innsetningar þar sem gler- listin er í aðalhlutverki og á að baki fjölda sýninga hér heima sem erlend- is. Lárus vill helst fara eins langt með glerið og hægt er, hafa þetta svolítið frjálst og temja glerið ekki of mikið. Hann segir jafnframt að það þurfi ótrúlega þrjósku í glerlistina. „Maður gengur á glerbrotum í 2 ár áður en maður sér einhvern árangur. Á Ítalíu eru menn kallaðir meistarar eftir 14 ár í listinni. Það tekur langan tíma að fá klapp á bakið. Svo veit maður aldr- ei hvernig hlutur kemur út úr vinnsluferlinu, verður hann heill eða ónýtur. Glerið er vandmeðfarið efni og hitastig ofnanna verður að vera hárrétt svo að allt gangi upp.“ Til þess þurfa ofnarnir í vinnustofunni að vera í gangi allan sólarhringinn og það kostar sitt. Hafa lært að tipla í kringum hvort annað Glerlistin krefst mikillar samvinnu mæðginanna. Suma hluti er ekki hægt að gera nema þau séu bæði að í einu og þá er eins gott að sam- komulagið sé gott. „Við höfum lært að tipla í kringum hvort annað,“ segir Lárus kíminn. Guðlaug bætir við að vissulega sé oft erfitt að vinna við þessar aðstæður með opið verkstæði. „Maður getur ekki dregið sig út úr samvinnunni ef viðskiptavinur kemur inn. Þetta veltur á því að hann hafi þolinmæði á meðan við klárum verk- ið.“ Þótt ýmis smávara hafi verið vin- sælust hjá Iceglass er vaxandi eft- irspurn eftir hönnun, verkum sem þarf að sérpanta. Þau nefna t.d. hús- búnað, eins og glös og karöflur í stíl, og eins pantaði Reykjanesbær hjá þeim Skessutár í stóru upplagi fyrir Ljósanótt, en verkin voru notuð til gjafa. Þó þau hafi aldrei séð skessut- ár voru heimatökin hæg enda skessa Herdísar Egilsdóttur nágranni mæðginanna í Iceglass. Skúlptúrinn heillandi Lárus Guðmundsson segir nauð- synlegt að ögra sér hönnunarlega við glerblásturinn. Hver með sinni lögun Allir munir sem mæðginin gera eru handgerðir og því enginn þeirra eins. Ǵlerfugl Smáhlutirnir hafa not- ið vinsælda hjá Iceglass. www.iceglass.is Þá hefur verið kynnt í fréttabréfihvenær fundir Kvæðamanna- félagsins Iðunnar verða haldnir fram að jólum. Fundarstaður er sá sami og áður, kvæðalagaæfingar fara fram á neðri hæðinni og almennir skemmtifundir á efri hæðinni í stóra salnum. Á kvæðalagaæfingum eru æfð og sungin kvæðalög. Og eru þau jafnan haldin á miðvikudags- kvöldum kl. 20. Fyrsta æfingin verður 1. október næstkomandi. Eins og venja er til verður skemmtifundur á föstudegi kl. 20 í sömu viku eða 3. október. Næsta kvæðalagaæfing verður 5. nóvember og þá skemmtifundur 7. nóvember. Og loks verður kvæða- lagaæfing 3. desember og jóla- fundur 5. desember, en þá eru jafnan kræsingar á borðum. Þegar Iðunni ber á góma er nauðsynlegt að birta vísu eftir hagyrðinginn fróma Jóa í Stapa: Ýmsir bera sorg og sút, svo mun tíðin ganga; karl hefur margan kreppt í hnút konuríkið stranga. Annars er vísa vikunnar á vísnavef Iðunnar, rimur.is, kveðja til Steindórs Andersens frá Magnúsi Jóel Jóhannssyni: Aldrei gæfan í þér dvín, enga fann ég slíka. Brosandi með brennivín, bauðst mér hákarl líka. Og þar er einnig að finna Bragfræði og háttatal eftir Sveinbjörn Beinteinsson allsherjargoða, sem er skyldu- lesning allra vísnaáhugamanna. Þar segir meðal annars: „Auðséð er, að bragregla er ekki trygging þess að kvæði sé mikils virði, en alltaf er leitt að sjá fagra hugsun í tötrum.“ Og hann yrkir ferskeytt: Fjöll í austri fagurblá freista dalabarnsins. Ungur fylgir æskuþrá upp til jökulhjarnsins. Og stikluvik: Aftur hljóma lögin ljúf, lengja tekur daginn. Vísu ritar höndin hrjúf. Hugur dvelst við rímnastúf. Að lokum braghent, þótt hættirnir sem hann nefnir til séu vitaskuld fleiri: Hrífa mig úr heimahögum hrjósturfjöllin, ég er orðinn eins og tröllin, uni lítt við byggðasköllin. VÍSNAHORNIÐ pebl@mbl.is Af Iðunni, Jóa í Stapa og allsherjargoða TÍSKA OG FÖRÐUN Stórglæsilegt sérblað um tísku og förðun fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 17. október. Meðal efnis er: • Andlitshúðin. • Líkamshúðin. • Brúnkukrem. • Ilmvötn. • Varalitir. • Förðun og snyrtivörur. • Hárið í vetur, hvað er í tísku. • Kventíska. • Karlmannatíska. • Fylgihlutir. • Skór. • Brjósthaldarar. • Aðhaldsnærföt. • Góð stílráð. Allar nánari upplýsingar veitir Katrín Theódórsdóttir í síma 569 1105 eða kata@mbl.is. Ásamt fullt af öðru spennandi efni og fróðleiksmolum. Auglýsendur! Pantið fyrir klukkan 16, mánudaginn 13. október.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.