Morgunblaðið - 17.11.2008, Side 28

Morgunblaðið - 17.11.2008, Side 28
28 Minningar MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. NÓVEMBER 2008 ✝ GuðmundurKarlsson fædd- ist í Reykjavík 18. maí 1946. Hann lést þann 11. nóvember sl. Hann var sonur hjónanna Karls Ágústs Torfasonar, f. 1922, d. 1991 og Guðbjargar Ásthild- ar Guðmunds- dóttur, f. 1928, d. 2008. Hann var elst- ur í röð 5 systkina, þau eru: Margrét Guðrún f. 1948, gift Indriða Krist- inssyni, f. 1949. Torfi Karl, f. 1952, kvæntur Margréti Þráins- dóttur, f. 1953. Þorbjörg, f. 1956, gift Hreggviði Sigurðssyni, f. 1953 og Ágústa Sigríður, f. 1957, gift Jóni Guðmundssyni, f. 1950. Guðmundur giftist árið 1968 Jóhönnu Sæunni Stefánsdóttur, þau skildu. Þau áttu 3 börn: 1) Ásthildi Þórdísi, f. 1966, gift Jóni Þorsteini Friðrikssyni, f. 1965, þau eiga 2 börn, Friðrik, f. 1988 og Jón Stefán, f. 1996 2) Stefán, f. 1971, í sambúð með Guðrúnu Ólöfu Hrafnsdóttur, f. 1971, þau eiga 2 börn: Elvar Ágúst, f. 2000 og Stefán Andra, f. 2006. 3) Karl Ágúst, f. 1976, kvæntur Agnesi Ástvaldsdóttur, f. 1976, þau eiga 2 börn: Elmu Lind, f. 2004 og Kristófer Mána, f. 2006. Guðmundur nam málaraiðn í Iðnskól- anum í Reykjavík, starfaði á leik- myndadeild Ríkissjónvarpsins og síðan sem sjálfstætt starfandi málarameistari. Hann var mikill áhugamaður um tónlist og spilaði m.a í hljómsveitinni Toxic. Árið 1991 greindist Guðmundur með MS-sjúkdóminn. Síðastliðin ár bjó hann á Sjálfsbjargarheimilinu Há- túni 12. Og síðustu 3 æviár sín bjó hann á hjúkrunardeild heimilisins eftir að heilsu hans hrakaði. Útför Guðmundar fer fram frá Kópavogskirkju í dag kl. 13. Í dag er til moldar borinn mágur minn, Guðmundur Karlsson mál- arameistari, betur þekktur sem Gvendur „Pepsi“. Það er með miklum söknuði sem ég kveð þennan mæta mann. Við áttum margar góðar stundir saman og brölluðum margt á okkar yngri árum, hann var alltaf hress og glaður og þekktur fyrir sína léttu lund og alltaf var glatt á hjalla þar sem hann var staddur. Gummi var alltaf fyrsti maður til að taka upp hanskann fyrir aðra og aðstoða þá sem þurftu á hjálp að halda hver svo sem það var. Það fór þó þannig að MS-sjúkdómurinn náði taki á honum en hann lét samt aldrei bug- ast af því og var ætíð öðrum góð fyrirmynd í baráttu sinni við hann. Sjúkdómurinn náði þó hægt og bít- andi að taka sinn toll af líkamlegum og andlegum styrk og þurfti hann að ferðast um í hjólastól undir það síðasta, hann gafst samt ekki upp og bar hann með mikilli reisn. Ég vil þakka allar þær góðu stundir sem við áttum saman gegn- um árin og kveð hann með söknuði. Ég votta börnum hans, tengda- börnum og barnabörnum mína dýpstu samúð. Með þessum fátæklegu orðum kveð ég góðan mág. Blessuð sé minning þín. Hreggviður. Í dag kveðjum við elskulegan stóra bróður okkar, hann Gumma, og verður hans sárt saknað í okkar hópi. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Elsku bróðir, það er með söknuði og trega sem við kveðjum þig og þökkum þér fyrir samfylgdina. Minning þín mun lifa með okkur. Hvíl í friði. Margrét Guðrún, Torfi Karl, Þorbjörg og Ágústa Sigríður. Kveðja frá ÍK-strákum, ’71-árgangi Félagi okkar og heiðursmaðurinn Guðmundur Karlsson er fallinn frá. Gummi málari, eins og hann var oftast kallaður, var ein af þessum stoðum og styttum í íþrótta- og fé- lagsstarfi okkar – einn af „fótbolta- pöbbunum“ í Íþróttafélagi Kópa- vogs og síðar HK. Hann var ótrúlega ljúfur maður í alla staði, geðgóður og hnyttinn með eindæm- um. Hann var einstaklega góður og tryggur félagi, ávallt til staðar og átti drjúgan þátt í velgengni okkar í íþróttalífinu með áhuga sínum og hvatningu. Hann var einn af þess- um mönnum í lífinu sem meðvitað eða ómeðvitað reyna að leiða okkur í réttar áttir, vitandi það að íþrótta- starfið er vettvangur forvarna og uppbyggingar. Þótt við segjum sjálfir frá þá teljum við að ágæt- lega hafi tekist til! Fyrir þetta allt verðum við honum Gumma okkar ævinlega þakklátir. Gumma málara verður sárt sakn- að en minning um frábæran mann og þakklæti mun lifa í hjörtum okk- ar um ókomna tíð. Við vottum Stebba, fjölskyldu og aðstandendum okkar dýpstu sam- úð. Guð blessi ykkur öll. F.h. ÍK-stráka, Hugi Sævarsson. Kynni mín af Guðmundi hófust þegar ég varð stjórnarmaður í Íþróttafélagi Kópavogs, ÍK, 1990. Hann var þá búinn að vera allt í öllu í félaginu í mörg ár. Fyrst sem foreldri sem fylgdi strákunum sín- um eftir í leikjum og ferðalögum. Hann varð síðan stjórnarmaður í félaginu í mörg ár. Félagsmaður sem þótti vænt um félagið sitt, lagði sig fram í störfum fyrir það. Hann var sérstaklega hlýr og glað- legur maður. Mér þótti mjög vænt um það hvað hann tók vel á móti mér í stjórn félagsins. Við unnum saman í verkefnum fyrir stjórn þar sem verkefnin voru leyst með ánægju af hendi. ÍK sameinaðist HK árið 1992 og þá hætti hann störfum fyrir félagið en fylgdist alltaf með af áhuga meðan hann hafði heilsu til. Við minnumst hans sem góðs félaga sem skilaði miklu og góðu starfi til félagsins. Við sendum fjölskyldu hans okkar inni- legustu samúðarkveðju. F.h Handknattleiksfélags Kópavogs, Sigurjón Sigurðsson formaður. Guðmundur Karlsson Ekkert er verra en alvar- legur heilsubrestur sem eyðileggur lífið. Þú ert nú búinn að þjást árum saman af sjúkdómi sem ekki var hægt að lækna. En nú líður þér vel. Þú ert laus við þján- ingar, áhyggjur og einmana- leika. Þú varst mjög hæfi- leikaríkur á mörgum sviðum, yndislega hreinskilinn og drengur góður. Ég þakka þér einlæga vináttu og tryggð frá því við kynntumst sem unglingar í Kópavog- inum. Blessuð sé minning þín. Þín vinkona, Sigríður Brynjúlfsdóttir. HINSTA KVEÐJA Kristur minn ég kalla á þig, komdu að rúmi mínu. Gjörðu svo vel og geymdu mig, Guð, í skjóli þínu. (Höf. ók.) Elsku Unnur, Þá er þrautum þínum lokið. Þú ert komin til Jesú og hann hefur tekið á móti þér. Það er nú einu sinni svo að við fáum litlu um það ráðið hvaða örlög við hljótum við fæðingu. Þér var ætlað það líf að dvelja stærsta hluta ævi þinnar á Unnur Þórisdóttir ✝ Unnur Þór-isdóttir fæddist á Hnúki í Dalasýslu hinn 8. ágúst 1947. Hún lést á Landspít- alanum í Fossvogi laugardaginn 1. nóvember síðastlið- inn. Útför Unnar fór fram frá Lágafells- kirkju í Mosfellsbæ 13. nóv. sl. Skálatúni meðal hóps góðra vina, heimilis- og starfsmanna, sem hafa verið þér sem stór fjölskylda. Þar áttir þú þitt heimili á sambýlinu Fögruhlíð, lengst af með þeim Öddu, Dóra og Gústa. Síðar fluttir þú í Suðurhlíð og dvaldir þar síðustu æviárin eftir að heilsunni hrakaði. Herbergið þitt var allaf snyrtilegt og þú vildir hafa reglu á hlutunum. Allt átti að vera í réttri röð. Þú hlust- aðir mikið á tónlist, sögur og á sunnudagsmorgnum á útvarps- messuna ef ekki var farið í Lága- fellskirkju. Þú varst mjög trúuð og er mér mjög minnistæð ferð í bæinn að sækja mynd úr innrömmun. Þá komst þú auga á mynd af „Síðustu kvöldmáltíðinni“ eftir þekkta lista- konu og vildir eignast þá mynd, en myndin var bara of dýr og af- greiðslumaðurinn sagði að þú vær- ir smekkmanneskja. Við fórum hins vegar heim með aðra mynd af tveimur englum. Það kom hins- vegar í ljós að ung áttir þú mynd af „Síðustu kvöldmáltíðinni“ og var hafin leit að henni og hún fannst illa farin. En er þú sást myndina bentir þú á hana og sagð- ir: „Jesú, loksins, loksins, ertu kominn heim“. Strax þegar ég kom til að vinna hjá ykkur í Fögruhlíðinni tókst með okkur einstök vinátta sem hélt alla tíð. Ógleymanleg verður ætíð ferðin okkar á æskuslóðir þínar, þegar þú varðst fimmtug. Eftirvæntingin var mikil og allt fór eins og best verður á kosið. Veðrið var fallegt og kyrrt og dagsformið þitt gott. Erla systir þín beið með rjómapönnukökur og fleira góðgæti. Það var svo ynd- islegt að fá að fylgjast með hvað þú naust þín vel. Að leiðarlokum langar mig að þakka þér samfylgdina og megir þú hvíla í friði. Kæra Erla og fjölskylda, starfs- fólk og heimilismenn Skálatúns, ég bið góðan Guð að gefa ykkur styrk í sorginni. Bjarnveig Höskuldsdóttir. Elsku Gagga frænka, við viljum þakka þér samfylgdina, allar fjör- ugu og skemmtilegu samveru- stundirnar í gegnum árin. Það var oft fjör í Ránargötunni, þú með gítarinn og Dandi með nikkuna, þetta eru ógleymanlegar stundir í minningunni, aldrei slegið af og þótt fingur yrðu sárir og neglur brotnar var Siggi á Fosshóli tek- inn einu sinni enn. Edda og Jó- hann að æfa sig að tjútta í eldhús- inu. Allar stundirnar þegar afi sá um reksturinn á Alþýðuhúsinu og þú að vinna í buffinu, þá fékk maður að koma baka til og sjá æfingar hjá hljómsveit hússins með Óda Vald, Ingimari og þessum stjörn- um, ekki var það síðra fyrir gutt- ann að fá að kíkja fyrir hornið og sjá og heyra þegar hljómsveitir að sunnan komu að spila, þá var ekki slæmt að eiga þig að, frænka góð í eldhúsinu. Tónlist hefur alltaf ver- ið í miklu uppáhaldi hjá þér og gít- arinn ekki langt undan á góðum stundum. Þú varst alltaf svo fín og fallega klædd. Myndirnar af þér og frú Vigdísi forseta þegar hún afhenti þér fálkaorðuna. Þarna voru tvær stórbrotnar og miklar konur, við vorum ákaflega stolt af þér. Þú gast ekki hlaupið á sama Heiðrún Soffía Steingrímsdóttir ✝ Heiðrún SoffíaSteingríms- dóttir fæddist á bænum Myrkárdal í Hörgárdal 15. ágúst 1924. Hún lést á Hjúkrunarheimilinu Hlíð 18. október síð- astliðinn og fór út- för hennar fram frá Akureyrarkirkju 30. október. hraða og við hin en þú afrekaðir samt svo ótrúlega miklu, verkin þín standa eft- ir sem fallegur minn- isvarði um góða og frábæra konu. Alltaf stóð Þor- steinn eins og klettur við hlið þér tilbúinn að styðja þig. Það renna margar mynd- ir í gegnum hugann þessa daga, við mun- um láta ljósið þitt skína og taka Sigga á Fosshóli þér til heiðurs við gott tækifæri. Kæra frænka. Hafðu þökk fyrir samfylgdina, þetta ljóð segir allt sem í huga okkar býr. Á kertinu mínu ég kveiki í dag við krossmarkið helgi og friðar því tíminn mér virðist nú standa í stað en stöðugt þó fram honum miðar. Ég finn það og veit að við erum ei ein að almættið vakir oss yfir, því ljósið á kertinu lifir. Við flöktandi logana falla nú tár, það flýr enginn sorgina lengi. Hún braut allar vonir, hún braut allar þrár, hún brýtur þá viðkvæmu strengi, er blunda í hjarta og í brjósti hvers manns. Nú birtir, og friður er yfir, því ljósið á kertinu lifir. Sá einn þekkir gleðinnar gáska og fjör sem gist hefur þjáning og pínu. Sá einn getur sigrast á ótta og kvöl sem eygir í hugskoti sínu, að sorgina við getum virkjað til góðs, í vanmætti sem er oss yfir, ef ljósið á kertinu lifir. (Kristján Stefánsson frá Gilhaga.) Kveðja, Jóhann og Hulda. Dísa móðursystir mín er fallin frá aðeins þremur vikum eftir að við fögnuðum með henni á 90 ára afmæli hennar. Þar með er geng- in sú síðasta af systrunum 5, sem gjarnan voru kenndar við Tryggva- skála á Selfossi. Í mínum huga hefur Dísa alltaf verið sérstök. Hún var glæsileg kona, með stóran barnahóp og mikið að gera á heimilinu en alltaf var gleði ríkjandi í kringum hana. Dísa hafði unun af að syngja og á sumarkvöld- um þegar þau hjón Dísa og Grímur komu í heimsókn í sumarbústað mömmu og pabba var lagið tekið í góðra vina hópi og í mínum barns- huga voru allir textar sem nafnið Dísa var í, ortir til Dísu frænku minn- ar. Um miðja síðustu öld var ekki al- gengt að Íslendingar færu til útlanda en vegna starfa Gríms buðust Dísu tækifæri að fara og ánægjulegt var að heyra um allt það sem hún hafði upplifað á ferðum um Evrópu. Og ekki eyðilagði það að Dísa kom með gjafir handa okkur systrabörnum sínum þegar heim var komið. Það var nokkuð sem við kunnum að meta. En best minnist ég frænku minn- Bryndís G. Thorarensen ✝ Bryndís Guð-laugsdóttir Thorarensen fædd- ist í Vatnsnesi í Grímsnesi 22. sept- ember 1918. Hún lést á hjúkr- unarheimilinu Sunnuhlíð í Kópa- vogi 12. október síð- astliðinn og fór út- för hennar fram frá Fossvogskirkju 20. október. ar, eftir að hún var orð- in ekkja og samband okkar varð meira. Í fal- legu íbúðinni sinni í Vogatungu í Kópavogi leið henni vel, hún var umvafin af umhyggju barna sinna og fjöl- skyldum þeirra og á föstudagsmorgnum bað hún mig að hringja ekki til sín, því þá var alltaf hringt frá Nor- egi. Þó heilsu hennar væri að byrja að hraka var glæsileikinn og reisnin enn til staðar og allar stundir okkar gerði hún að gleðistundum. Hún var afar minnug, las mikið og hafði áhuga á öllu í kringum sig, þjóð- málum jafnt og fjölskyldumálum en skemmtilegast var að minnast gömlu daganna. Þá kom glampi í augun og hún naut þess að segja frá og ekki var verra þegar ég þekkti til fólksins. Hjá henni heyrði ég margar sögur úr Tryggvaskála og sagan hvernig afi Guðlaugur fór að vekja þær systur og starfsfólkið sitt á morgnana finnst mér alveg frábær. Afi var mikill söngmaður og var með orgelið sitt inni í litla sal í Tryggvaskála en inn af þeim sal voru herbergin sem þær sváfu í. Hann mætti á morgnana þeg- ar honum þótti tími til að vekja og hóf að spila og syngja. Þetta kallar mað- ur að slá tvær flugur í einu höggi. Nú er komið að leiðarlokum og þó ég hefði viljað fá að eiga Dísu mína lengur að, þá unni ég henni fyllilega að fá að fara til sinna. Það eru margir til að taka á móti. Börnunum hennar og fjölskyldum þeirra sendi ég samúðarkveðjur mín- ar. Guðríður Karlsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.