Morgunblaðið - 24.11.2008, Síða 6
6 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. NÓVEMBER 2008
Áfallið og stórfjölskyldan
Grand Hótel – þriðjudaginn 25. nóvember
frá kl. 18:30–20:00
1. Fjölskylduhjúkrun
Sigrún Þóroddsdóttir hjúkrunarfræðingur krabbameinsteymis
Barnaspítala Hringsins.
2. Áfallið og stórfjölskyldan
Vigfús Bjarni Albertsson prestur á LSH.
3. Kaffiveitingar
4. Frá sjónarhóli afa
Gunnar Tómasson afi krabbameinssjúks drengs
lýsir sinni reynslu.
5. Umræður
Fundarstjóri: Gunnar Ragnarsson,
formaður Styrktarfélags
krabbameinssjúkra barna.
Allir velkomnir
FRÉTTASKÝRING
Eftir Þórð Snæ Júlíusson
thordur@mbl.is
FORSTÖÐUMAÐUR verðbréfamiðlunar hjá Virð-
ingu hf. er grunaður um stórfelld auðgunarbrot og brot á
lögum um peningaþvætti. Hann er meðal annars grun-
aður um að hafa millifært mörg hundruð milljónir króna
frá Virðingu inn á bankareikning samverkamanna sinna
og um að hafa misnotað trúnaðarupplýsingar til að eiga
viðskipti sem teljast óeðlileg miðað við stöðu mannsins.
Hinn grunaði staddur í Dubai
Efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra gerði húsleit
hjá Virðingu snemma á föstudag. Alls fóru tólf manns á
vegum deildarinnar inn í fyrirtækið og lögðu hald á ýmis
gögn sem talin eru geta varpað skýrara ljósi á málið.
Rannsóknin beinist ekki að Virðingu heldur meintum
brotum forstöðumannsins. Hann er staddur í Dubai sem
stendur og hefur enn ekki verið handtekinn né yfirheyrð-
ur. Maðurinn er væntanlegur til landsins í dag. Tveir
aðrir menn voru handteknir og yfirheyrðir á föstudag
vegna málsins. Annar er bróðir forstöðumannsins og
starfar hjá stóru íslensku fjárfestingafélagi. Hinn er al-
mennur starfsmaður hjá opinberu fyrirtæki.
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins á rannsóknin
upptök sín í ábendingu um brot á lögum um peninga-
þvætti. Sú ábending vísaði leiðina að einkahlutafélagi
sem mennirnir þrír tengdust. Rannsóknin beinist nú að
grunsamlegum millifærslum forstöðumannsins á hundr-
uðum milljóna króna af fjármunum sem voru í vörslu
Virðingar inn á persónulega bankareikninga samverka-
manns hans. Sá er almennur starfsmaður hjá opinberu
fyrirtæki og gat ekki skýrt hvernig hann hafði komist yf-
ir mörg hundruð milljónir króna.
Hluti upphæðanna var síðan færður til baka á per-
sónulegan bankareikning forstöðumannsins. Auk þess er
hann grunaður um að hafa misnotað trúnaðarupplýs-
ingar sem hann bjó yfir vegna stöðu sinnar til að eiga
óeðlileg gjaldeyrisviðskipti.
Hann seldi líka gjaldeyri skömmu áður en Virðing
gerði slíkt og keypti svo aftur skömmu síðar þegar gengi
gjaldmiðlanna hafði lækkað aftur. Með því nýtti hann sér
innherjaupplýsingar um hvenær Virðing hygðist selja
gjaldeyri og hafði af fjárhagslegan ávinning. Peninga-
þvættishluti rannsóknarinnar beinist að þeim aðferðum
sem mennirnir notuðu til að koma þessum ávinningi und-
an.
Risavaxnar millifærslur
Forstöðumaður verðbréfamiðlunar hjá Virðingu grunaður um auðgunarbrot og
peningaþvætti Talinn hafa millifært hundruð milljóna Tveir aðrir handteknir
Í HNOTSKURN
» Tólf lögreglumenngerðu húsleit á skrifstofu
Virðingar á föstudags-
morgun.
» Forstöðumaður hjá fyr-irtækinu er grunaður um
að hafa millifært hundruð
milljóna án heimildar og
nýtt trúnaðarupplýsingar til
að hagnast.
» Maðurinn er talinn hafaátt tvo samverkamenn.
Annar þeirra vinnur hjá
stóru fjárfestingafélagi.
Hann er bróðir forstöðu-
mannsins.
» Yfirvöld og Virðing hf.leggja áherslu á að rann-
sóknin tengist ekki fyrirtæk-
inu sjálfu heldur meintum
brotum starfsmanns þess.
Eftir Önund Pál Ragnarsson
og Guðmund Sv. Hermannsson
EÐLILEGT og jafnvel óhjákvæmi-
legt er að gera breytingar við stjórn-
völinn, eftir þær hremmingar sem
þjóðin hefur gengið í gegnum. Þetta
var meðal þess sem Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir, formaður Samfylking-
arinnar, sagði á flokksstjórnarfundi í
Garðabæ á laugardag.
Hún sagði kröfuna um kosningar
enduróma í Samfylkingunni enda
ætti flokkurinn sér rætur í ríkri lýð-
ræðishefð og skellti því ekki skolla-
eyrum við umræðunni. Þess vegna
væri eðlilegt að í þessum nýja flokki
endurómaði þessi krafa.
Hvorki af né á með kosningar
Jafnframt sagði Ingibjörg Sólrún
að kosningar nú myndu henta Sam-
fylkingunni vel að mörgu leyti.
Flokkurinn hefði margsinnis bent á
það sem fór aflaga í efnahagsstjórn
síðustu kjörtímabila. Hættuna á því
að þenja út fjármálakerfið án bak-
stuðnings í Evrópusambandinu og
evrunni. Þá hefði flokkurinn góðan
stuðning í samfélaginu, sem kæmi
fram í könnunum. „En við getum
ekki látið það eitt stjórna okkur þeg-
ar við tökum afstöðu,“ sagði hún. „Í
mínum huga er forgangsröðin á
svona tímum einföld: Fyrst kemur
fólkið og svo flokkurinn.“
Hún sagði að enginn hefði hag af
því, aðrir en andstæðingar flokksins,
að hefja umræðu um kosningar fyrr
en ákvarðanir yrðu teknar. Þá yrði
umræðan um kosningar líka að taka
mið af því með hverjum Samfylk-
ingin vilji vinna, hvernig Evrópumál-
unum verði best komið og hvernig
flokkurinn ætli að fá stuðning við að-
ildarumsókn til Evrópusambandsins
í gegn. „Er það ekki mikilvægasta
málið?“ sagði hún.
Almennt voru á fundinum mjög
skiptar skoðanir um hvort kjósa ætti
í bráð. Hátt í 40 manns fluttu ræður
og höfðu á því ýmsar skoðanir. Andr-
és Jónsson, fyrrverandi formaður
Sambands ungra jafnaðarmanna,
ritaði á vefsíðu sína eftir fundinn, að
þingmenn hefðu hvíslað því að hon-
um eftir ræðu Ingibjargar, að hugs-
anlega vildi formaðurinn kosningar,
en gæti bara ekki sagt það hreint út
fyrr en eftir áramót.
Hin ótrúlegu ummæli Davíðs
Ingibjörg kom líka inn á milli-
ríkjadeiluna við Breta. Hún kvað al-
gjöra óvissu um ástæður þess að
hryðjuverkalögum var beitt gegn Ís-
landi, þar sem ekkert hrun hefði
blasað við bresku samfélagi vegna
Icesave-reikninganna. Einmitt þetta
gæfi færi á málsókn gegn Bretum.
Hins vegar væri framkoma Davíðs
Oddsonar seðlabankastjóra ótrúleg í
því máli. „Að maður í þessari stöðu
segist einn vita um ástæðurnar en
vilji ekki segja þjóðinni frá því.“ Þær
upplýsingar gætu leitt til þess að Ís-
lendingar endurskoði málsókn-
arforsendur sínar gagnvart Bretum.
Eðlilegt að breyta til við
stjórnvölinn eftir áfallið
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Mannamót Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Kristján L. Möller og Rannveig Guðmundsdóttir ræðast við.
Hagsmunir Samfylkingar stjórni ekki umræðu um kosningar
RÍKISSTJÓRNIN nýtur stuðnings
31,6 prósenta landsmanna sam-
kvæmt könnun sem Fréttablaðið
birti í gær. 68,4 prósent kváðust ekki
styðja stjórnina.
Sjálfstæðismenn eru dyggustu
stuðningsmenn ríkisstjórnarinnar
og styðja 88,2 prósent þeirra hana en
50,4 prósent Samfylkingarfólks. Þá
styðja 8,3 prósent framsóknarmanna
stjórnina og 3,8 prósent stuðnings-
manna Vinstrihreyfingarinnar
græns framboðs.
Samfylkingin stærsti
stjórnmálaflokkurinn
Samkvæmt könnuninni er Sam-
fylkingin stærsti stjórnmálaflokkur-
inn á Íslandi, með 33,6 prósenta
fylgi. 27,8 prósent styðja VG og 24,8
prósent styðja Sjálfstæðisflokkinn.
Fylgi Framsóknarflokks mælist 6,3
prósent, fylgi Frjálslynda flokksins
er 4,3 prósent og 3,3 prósent sögðust
myndu kjósa annað.
Hringt var í 800 manns á vegum
Frétttablaðsins og skiptust svarend-
ur jafnt eftir kyni og hlutfallslega
eftir búsetu.
Tæpur þriðj-
ungur styður
ríkisstjórnina
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
HÓPUR fólks sem tapaði fjármunum
í peningabréfasjóði Landsbankans
gagnrýnir uppgjör sjóðsins og sættir
sig ekki við yfir 31% tap á eign sinni.
Kristín Helga Káradóttir er talsmað-
ur hópsins, en í síðustu viku fengu
fulltrúar hans fund með yfirmanni
eignastýringar Landsbankans, Stef-
áni H. Stefánssyni, áður stjórnarfor-
manni peningabréfasjóðsins, og
Hannesi Hafstein lögfræðingi.
„Við vildum fá svör, m.a. um það
hvernig sjóðurinn hefði fjárfest. Það
kom fram hjá Stefáni að 33% sjóðsins
voru skuldabréf í Kaupþingi sem fór
líka á hausinn. Skömmu fyrir gjald-
þrot virðast bankarnir hafa verið í e.k.
„ástarþríhyrningi“ og fjárfest hver í
öðrum, sem vart telst skynsamleg
fjárfestingarstefna á óvissutímum.
Þeir viðurkenndu það á fundinum að
hún hefði verið óskynsamleg.“
Peningabréfahópurinn hyggst gefa
stjórnvöldum tiltekinn frest til að
ákveða hvort komið verði til móts við
kröfur hans. „Við erum ekki að biðja
um að fá inneign okkar greidda á
morgun. Við viljum einungis að við
okkur verði rætt um mögulegar úr-
bætur. Við gætum t.d. sætt okkur við
að fá mismuninn greiddan inn á verð-
tryggðan reikning sem yrði laus eftir
nokkur ár. Aðrir möguleikar til úr-
bóta gætu falist í skuldajöfnun,
skattaafslætti, eða því að fólk fengi
hlutabréf í nýju bönkunum.“
Kristín Helga segir að hópurinn
hafi undir höndum gögn sem sýni að á
örfáum dögum fyrir gjaldþrotið hafi
70 milljarðar, eða um 40%, streymt út
úr sjóðnum. „Af þeim 172 milljörðum
sem voru í sjóðnum 1. október voru
aðeins 102 milljarðar eftir 17. október
og engar hreyfingar voru eftir 3. októ-
ber. Við viljum að rannsakað verði
hvort innherjar hafi verið í þeim hópi
sem innleysti bréfin sín þessa daga.
Við munum boða til almenns fundar
þeirra sem töpuðu fé í sjóðnum, og
fara dómstólaleiðina til að ná fram
okkar rétti ef með þarf. Við ætlum
ekki að sætta okkur við þetta.“
Sættum okkur
ekki við þetta
Í HNOTSKURN
» Meðlimir hópsins eru núum 100 og fjölgar hratt.
» Hópurinn vill að tap sjóðs-ins verði rannsakað.