Morgunblaðið - 24.11.2008, Side 8
8 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. NÓVEMBER 2008
FRÉTTASKÝRING
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
MISTÖK hjá innheimtumiðstöð
sekta og sakarkostnaðar og óvarleg
vinnubrögð lögreglu voru undanfari
þess að gert var áhlaup á lögreglu-
stöðina á Hverfisgötu á laugardag.
Annars vegar fékk Haukur Hilm-
arsson aðgerðasinni enga boðun í af-
plánun, vegna mannlegra mistaka
hjá innheimtumiðstöðinni. Það kom
fram í fréttatilkynningu þaðan í
gær. Boðun á að senda skv. 71. gr.
laga um fullnustu refsinga. Hún var
ekki send.
Það skýrir að hluta til hörð við-
brögð aðstandenda Hauks. Þeim
sýndist ákvörðun lögreglu vera geð-
þóttaákvörðun.
Verulega illa tímasett handtaka
Í öðru lagi tók lögregla ekki mið
af stemningu í samfélaginu, þegar
hún handtók þekktan mótmælanda
daginn fyrir skipulögð mótmæli. Sú
ákvörðun hefur vakið hörð viðbrögð
og margir sagt hana hafa annar-
legan tilgang. Hörður Torfason mót-
mælandi segist m.a. setja stórt
spurningarmerki við þessa hand-
töku.
Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á
höfuðborgarsvæðinu, neitar því ekki
að handtakan hafi verið illa tíma-
sett. „Ég get alveg tekið undir að
þetta hefði mátt vera með öðrum
hætti. Hins vegar var þessi maður
ekki undir neinu sérstöku eftirliti
hjá okkur. Þess vegna fór bara með
hann eins og alla aðra sem eru eft-
irlýstir. Þetta fór ekki í neina sér-
meðferð upp á mitt borð eða ann-
arra embættismanna,“ segir Stefán.
Hann segir fráleitt að handtakan
hafi verið gerð til að kæfa niður
mótmæli.
Hefði ekki þurft að gerast
Um fimm hundruð manns fóru að
lögreglustöðinni eftir fundinn á
Austurvelli og kröfðust þess að
Haukur yrði látinn laus. Eftir um
klukkustundarlöng mótmæli magn-
aðist reiðin svo tekið var til við að
grýta húsið og brjóta upp útidyrnar.
Þrjár rúður brotnuðu og komst fólk-
ið að innri hurð anddyrisins. Þar
tóku 15-20 lögreglumenn á móti,
klæddir hlífðarbúnaði fyrir óeirðir.
Þeir sprautuðu piparúða yfir hóp-
inn, ruddu anddyrið og stóðu svo
vörð fyrir utan. Nokkrir leituðu sér
læknishjálpar í framhaldinu, vegna
piparúðans. Á sama tíma greiddi
ónefndur aðili sekt Hauks, sem var
tilefni fangelsisvistarinnar, svo hon-
um var sleppt út.
Hörður Torfason, skipuleggjandi
útifundanna á Austurvelli, fordæmir
allt ofbeldi. Hins vegar segir hann
að þetta hefði ekki þurft að gerast.
Lögregla hafi í engu svarað mót-
mælendum og enginn komið út til að
skýra málin.
Eva Hauksdóttir, móðir Hauks,
sem leiddi mótmælin, segir engan
einn hafa hvatt til húsbrotsins.
Smátt og smátt hafi æsingurinn
magnast upp. Hún hafi ekki átt
frumkvæðið að því, en ef reiði fólks í
þessu samfélagi sé hunsuð grípi það
einfaldlega til ráða af þessu tagi.
Reyndu að frelsa mann úr varðhaldi
500 manns mótmæltu handtöku á aðgerðasinna fyrir utan lögreglustöðina við Hverfisgötu
Lauk með brotnum rúðum, húsbroti, piparúða og stimpingum Mannleg mistök voru undanfari
Morgunblaðið/Júlíus
Í HNOTSKURN
»Haukur Hilmarsson varskráður eftirlýstur af
hálfu innheimtumiðstöðv-
arinnar á Blönduósi hinn 11.
nóvember sl.
»Þriggja vikna fyrirvari áafplánun á ekki við um
sektardóma. Skv. lögum er þó
skylt að senda hinum dæmda
tilkynningu. Það fórst fyrir.
Sindri Við-
arsson sagn-
fræðinemi
sagði að
dagar fá-
fræði og
sandkassa-
leikja í
stjórnmálum
væru taldir.
Sindri sagðist vilja betra sam-
félag, byggt á jöfnuði. „Við ætl-
um að byggja betra samfélag og
þeim skilaboðum þurfum við að
bera áleiðs, þeim sem heima
sitja og bera þrælslund í hjarta
gagnvart stjórnvöldum.“ „Höf-
um réttlæti í huga en ekki
hefnd. Höfum náungakærleik í
hjartastað og kaupum það síð-
asta sem keypt verður í langan
tíma; betra samfélag sem bygg-
ist á jöfnuði en ekki spillingu,
það byggist á jöfnum auði en
ekki flokksskírteinum, það
byggist á samhjálp liðinna
alda.“
Gerður Pálma atvinnurekandi
sagði Ísland nú í heimspress-
unni sem aldrei fyrr og ekki af
góðu, en sú ímynd sem listafólk
hefði skapað gegnum árin væri
enn sterkari í hugum heimsins.
Réttlæti, ekki hefnd
Katrín
Oddsdóttir
laganemi
sagði í ræðu
að þjóðin
hefði verið
svipt rétt-
inum til að
fara með
mál sitt fyrir
dómstóla, þjóðin hefði ekki
fengið og myndi aldrei fá tæki-
færi til að láta reyna á sínar
hliðar. Hún sagði Geir Haarde
ekki hafa viljað láta kúga sig,
en hins vegar vera opinn fyrir
því að láta kúga íslensku þjóð-
ina.
Hún rifjaði líka upp kjörorð
Sjálfstæðisflokksins fyrir síð-
ustu kosningar. „Þegar öllu er á
botninn hvolft er það traust
efnahagsstjórn sem er stærsta
velferðarmálið. Nú hefur öllu
verið á botninn hvolft. Okkur
öllum hefur verið hvolft á botn-
inn og stærsta velferðarmálið í
augnablikinu er að koma þeim
frá, sem klúðruðu efnahags-
stjórninni og hafa hvorki sýnt
iðrun né vilja til að endurskoða
þau gildi sem þeir höfðu að
leiðarljósi,“ sagði Katrín.
Á botninn hvolft
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
ENN fjölgar í vikulegum mótmæl-
um á Austurvelli. Fyrir viku voru
þar um 6.000 manns en núna á laug-
ardaginn voru þar ívið fleiri, líklega
upp undir 7.000. Austurvöllur fylltist
af fólki og þurfti Hörður Torfason,
listamaður og skipuleggjandi mót-
mælanna, að biðja fólk að færa sig
nær og þjappa svo fleiri kæmust inn
á völlinn.
„Ég er búinn að vera þarna á laug-
ardögum í sjö vikur. Frá því við vor-
um þarna fjögur eða fimm hefur orð-
ið gríðarleg breyting,“ segir Hörður.
Kannski þarf stærri vettvang
Hann metur núna eftir hvern fund
hvort Austurvöllur dugi enn til sem
fundarstaður. Hann útilokar ekki að
fundurinn verði fluttur á aðra stað-
setningu þegar fram í sækir ef fólki
fjölgar enn. Næsti fundur hefur
samt verið boðaður á sama stað.
Fólk bryddaði upp á ýmsu. Stytt-
an af Jóni Sigurðssyni var klædd í
femínísk-bleikan upphlut og skott-
húfu, sem táknmynd fyrir slakan ár-
angur af forystu karla á undan-
förnum árum. Alþingishúsið var
auglýst sem „til sölu“ og „selt“ Al-
þjóðagjaldeyrissjóðnum. Engir
árekstrar urðu meðal fólks og sam-
skipti við lögreglu voru góð.
Auk þessa voru fluttar ræður þar
sem nokkrar manneskjur kynntu
sinn skilning á kreppunni.
Morgunblaðið/Júlíus
Mótmælin fylltu Austurvöll í fyrsta sinn