Morgunblaðið - 24.11.2008, Page 11
Fréttir 11INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. NÓVEMBER 2008
A
T
A
R
N
A
Á INGÓLFSTORGI
mánudaginn 24. nóvember kl. 16.30
VERJUM
VELFERÐINA
Launþegar!
Í efnahagserfiðleikum verður almenningur
að geta treyst á öflugt velferðarkerfi.
Látum ekki eyðileggja grunnþjónustu
samfélagsins. Verjum velferðina.
Fjölmennum öll á útifund BSRB,
Öryrkjabandalags Íslands,
Landssamtakanna Þroskahjálpar og
Félags eldri borgara í Reykjavík.
Útifundur
STARFSMANNAFÉLAG
REYKJAVÍKURBORGAR PÓSTMANNAFÉLAG ÍSLANDS
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
„VIÐ höfum boðið öllum ráðamönn-
um þjóðarinnar; ríkisstjórn, við
höfum boðið Davíð Oddssyni sér-
staklega, öllum alþingismönnum.
Við merkjum stóla með nöfnum
ráðherranna og fimmtíu og einn
stól fyrir þingmenn,“ segir Gunnar
Sigurðsson leikstjóri, en hann er
einn skipuleggjenda borgara-
fundanna sem haldnir hafa verið
síðustu vikur á mánudagskvöldum,
fyrst í Iðnó, síðast á Nasa og í kvöld
í Háskólabíói.
„Já, það er auðvelt að sjá hverjir
mæta ekki,“ segir Gunnar, en stólar
ráðamanna verða allir á sviðinu í
stóra sal bíósins. „Alþingismenn
eru ekki að koma til að tala, aðeins
til að hlusta.“
Misjafnar heimtur
Að sögn Gunnars hafa heimt-
urnar á ráðamönnum á fundina
verið misjafnar, einnig á formönn-
um flokkanna sem eiga sæti á Al-
þingi og boðið var á annan fundinn.
Þrettán alþingismenn sóttu fyrsta
fundinn; á öðrum fundinum var for-
mönnum flokkanna á Alþingi sér-
staklega boðið í pallborð. „Eini for-
maðurinn sem mætti var
Steingrímur Sigfússon, en Ómar
Ragnarsson, formaður Íslands-
hreyfingarinnar, mætti líka í sal-
inn. Aðrir sendu varaformenn en
Illugi Gunnarsson mætti fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn. Á fundinn á Nasa á
mánudaginn var mættu svo frétta-
stjórar fjölmiðlanna.“
Gunnar segir að um 8-900 manns
hafi mætt á síðasta fund, og því hafi
verið ákveðið að fá Háskólabíó
næst. „Stemningin á fundunum hef-
ur verið mjög góð; það eru þegnar
þessa lands, og þeir láta sig málin
varða. Við erum ekki bara mótmæl-
endur, við erum viðmælendur.“
Efnahagsástandið er aðal-
umræðuefni fundanna og segir
Gunnar verðtryggingu og ábyrgð-
arleysi stjórnvalda þungavigtar-
umræðuefni. „Fólk er að kalla eftir
ábyrgð og ábyrgri afstöðu í þjóð-
félaginu. Ef ég er í starfi og finn og
heyri að ég veld því ekki, þá á ég að
stíga til hliðar. Þetta er algjörlega
þverpólitísk hreyfing og fólk með
allskonar skoðanir, sem á það sam-
eiginlegt að vilja kalla það fólk til
ábyrgðar, sem hefur komið okkur í
þessa stöðu.“
Fólk er að kalla eftir ábyrgð
SLYSAVARNAFÉLAGIÐ Lands-
björg hefur samið við Neyðarlínuna
hf. um notkun á Tetra-öryggis- og
neyðarfjarskiptakerfinu sem er í
eigu íslenska ríkisins en rekið af
Neyðarlínunni. Landsbjörg hyggst
nýta kerfið til fjarskipta milli björg-
unarsveita, annarra viðbragðsaðila
og stjórnkerfa félagsins á landsvísu.
Einnig er félaginu heimilt að
tengja saman Tetra-fjarskiptakerfið
og VHF-fjarskiptakerfi björgunar-
sveitanna. Björgunarsveitir Lands-
bjargar munu aðstoða Neyðarlínuna
við uppsetningu á sendum og viðhald
á kerfinu þar sem það á við. Neyð-
arlínan greiðir allan kostnað sveit-
anna við þá vinnu. Afnotagjöldum
björgunarsveita af kerfinu verður
einnig stillt í hóf.
Samið um
notkun Tetra
ÁHRIF drag-
nótaveiða á botn-
dýralíf í Skaga-
firði voru
könnuð um miðj-
an síðasta mánuð
á vegum Haf-
rannsóknastofn-
unarinnar. Drag-
nótarbáturinn
Hafborg EA frá Grímsey var not-
aður til verkefnisins. Leiðangurs-
stjóri var Haraldur Einarsson og
skipstjóri Guðjón Óli Þorláksson.
Dragnótaveiðar eru aðallega stund-
aðar á mjúkum og sléttum botni og
geta þær hugsanlega haft áhrif á
lífríki botnsins, bæði þau dýr sem
eru ofan á botninum og þau sem lifa
niðurgrafin í setinu, segir m.a. á
heimasíðu Hafró.
Kanna áhrif
dragnótar
HÉRAÐSDÓMUR Norðurlands
vestra hefur dæmt 29 ára gamlan
karlmann í 6 mánaða fangelsi fyrir að
ráðast á sambýliskonu sína og slá
hana m.a. í höfuðið með glervasa. Þá
beit maðurinn konuna í líkamann á
nokkrum stöðum. Konan marðist og
bólgnaði á höfði, marðist á bringu,
baki og fótlegg og fékk bitför og klór-
för víða.
Maðurinn var einnig dæmdur til að
greiða konunni 225 þúsund krónur í
bætur auk sakarkostnaðar.
Þetta gerðist í íbúð á Sauðárkróki í
júlí 2007. Maðurinn neitaði fyrst sök
en játaði síðan verknaðinn fyrir dómi.
Fram kemur í dómnum, að maðurinn
hefur áður hlotið dóma fyrir ýmis
brot, þar á meðal fyrir alvarlegar lík-
amsárásir, þjófnaði, ölvunarakstur og
fleira. Hann rauf skilyrði reynslu-
lausnar með árásinni á konuna.
Dómurinn segir, að árásin hafi ver-
ið hættuleg og beinst að sambýlis-
konu hans inni á heimili þeirra. Einn-
ig verði að taka tillit til þess að
maðurinn hafi verið að takast á við
vandamál sín.
Fangelsi fyrir
líkamsárás
Óvissuástandið í efnahags-
málum þjóðarinnar er viðfangs-
efni fleiri funda í dag, því kl.
16.30 efna BSRB, Félag eldri
borgara í Reykjavík, Lands-
samtökin Þroskahjálp og Ör-
yrkjabandalag Íslands til úti-
fundar á Ingólfstorgi. Í
fréttatilkynningu um fundinn
segir að leggja verði sérstaka
áherslu á að verja kjör hinna
verst settu, og að eindregin
krafa hópsins sé að vörður verði
staðinn um velferðarkerfið.
Fulltrúar samtakanna fernra
verða ræðumenn á fundinum.
Vörður um velferð