Morgunblaðið - 24.11.2008, Qupperneq 13
Úr vesturheimi 13
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. NÓVEMBER 2008
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthorg@gmail.com
ÞÓ nokkur áhugi er á beinu leiguflugi
frá Winnipeg til Íslands í tengslum
við sérstaka vesturfarahátíð á Hofs-
ósi í júníbyrjun á næsta ári, en krepp-
an á Íslandi hefur sett strik í reikn-
inginn og því óvíst hvort flugið
gengur upp. Hins vegar er mikill
áhugi á öðrum ferðum vestur og að
vestan.
Hátíðin aðdráttarafl
Jónas Þór, sagnfræðingur og eig-
andi ferðaskrifstofunnar Vesturferða
sf., segir að vestra sé töluverður áhugi
á fyrirhugaðri hátíð á Vesturfarasetr-
inu á Hofsósi. Hann hafi kynnt hátíð-
ina á ferðum sínum í Vesturheimi á
árinu og skipulagt hópferðir í
tengslum við hana. Þegar sé nær full-
bókað í tvær ferðir, annars vegar frá
Minneapolis og hins vegar frá To-
ronto. Hann bendir á að í ferðina frá
Minneapolis komi fólk víðs vegar að í
Bandaríkjunum, eins og til dæmis frá
Utah, Kaliforníu, Illinois og Norður-
Dakóta. Þátttakendur frá Toronto
séu að mestu þaðan og úr nágrenninu.
Jónas segir að fulltrúar þriggja ís-
lenskra hópa hafi óskað eftir að fara
vestur í leiguflugi í júní og í kjölfarið
hafi hann kannað möguleika á því.
Ekki hafi gengið að fá flugvél héðan í
verkefnið en kanadískt flugfélag hafi
lýst yfir áhuga á samstarfi. Í kjölfarið
hafi hann kannað áhuga vestra á
leiguflugi í tengslum við hátíðina á
Hofsósi og fengið góð viðbrögð.
Kreppan hafi hins vegar haft þau
áhrif að íslensku hóparnir hafi hætt
við,en ljóst væri að leiguflug gengi
ekki upp aðra leiðina. Ekki væri samt
fullreynt og því gæti þessi draumur
orðið að veruleika. Í þessu sambandi
er vert að geta þess að leiguflug milli
Winnipeg og Íslands var mjög vinsælt
á 8. og 9. áratug liðinnar aldar og vilja
margir sem í þær fóru helst ekki
ferðast öðruvísi á milli landanna.
Þjóðræknisfélagið hóf skipulagðar
ferðir til Vesturheims 2002. Vestur-
ferðir sf. voru stofnaðar í ágústbyrjun
2006 í þeim tilgangi að efla tengsl Ís-
lands og Íslendinga við afkomendur
íslenskra vesturfara í Norður-Amer-
íku. Félagið hefur í samvinnu við
Þjóðræknisfélagið skipulagt ferðir á
staði sem á einn eða annan hátt tengj-
ast sögu vesturfaranna.
Ferðum fjölgar þrátt fyrir efnahagskreppu og stöðugt fleiri í skipulögðum ferðum vestur og að vestan
Hugað að beinu leigu-
flugi til og frá Winnipeg
Morgunblaðið/Steinþór
Kveðja Eric Olafson frá Utah og Peter Bjornson, menntamálaráðherra
Manitoba, heilsast á Gimli. Íslenskir ferðamenn í baksýn.
Í HNOTSKURN
» Vesturferðir sf. hafaskipulagt 12 ferðir til
Vesturheims á næsta ári.
» Félagið fer einkum ásvæði þar sem Íslendingar
og afkomendur þeirra
vestra búa.
SNORRAVERKEFNIÐ fagnaði 10
ára afmæli á árinu og alls hafa 265
manns tekið þátt í því, Snorra plús
og Snorra vestur.
Þetta kom fram hjá Almari
Grímssyni, formanni Þjóðrækn-
isfélags Íslendinga, á aðalfundi ÞFÍ
í Þjóðmenningarhúsinu í liðinni
viku. Almar benti á að í hinu hefð-
bundna ungmennaverkefni hefðu
verið 147 manns á 10 árum, enginn
hefði hætt í miðjum klíðum og þátt-
takendur hefðu gefið verkefninu
mjög háar einkunnir.
Verkefnið Snorri vestur í Mani-
toba fór fram í sjöunda sinn í sumar
og hafa 49 ungmenni tekið þátt í
því. Alls hafa 69 manns tekið þátt í
Snorra plús. Um er að ræða tveggja
vikna námskeið hérlendis fyrir 30
ára og eldri en ungmennanám-
skeiðin standa í um sex vikur.
„Þetta verkefni hefur sannað mikið
gildi sitt til að efla samskiptin og
ekki er óalgengt að foreldrar eða
jafnvel ömmur og afar hafi komið í
kjölfar ungmennanna,“ sagði Al-
mar á aðalfundinum.
Snorraverkefnið hefur frá byrj-
un verið rekið í verktöku hjá sam-
starfsfélaginu, Norræna félaginu á
Íslandi, og hefur Ásta Sól Kristjáns-
dóttir verið verkefnisstjóri frá
árinu 2000. Almar Grímsson er
stjórnarformaður Snorrasjóðs og
Úlfur Sigurmundsson varafor-
maður, skipaður af Norræna félag-
inu. Wanda Anderson er verkefn-
isstjóri Snorra vestur og Eric
Stefanson stjórnarformaður verk-
efnisins. Forseti nemendasamtaka
Snorraverkefnanna er Ragnheiður
Diljá Gunnarsdóttir.
steinthorg@gmail.com
Morgunblaðið/Steinþór
Vinskapur Almar Grímsson hefur hitt marga Vestur-Íslendinga.
Snorraverkefnin þrjú með
samtals 265 þátttakendur
Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 6, sími 515 7000 | Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 462 2700 | notadir.brimborg.is
C
ohn
&
W
olfe
P
ublic
R
elations
Íslandi
Eingöngu bílar sem sérfræðingar Ford mæla með
Farðu á netið og skoðaðu Ford á notadir.brimborg.is
Kynntu þér sértæka þjónustu Atvinnubíla Ford hjá Brimborg.
Skoðaðu notaða úrvalsbíla í sýningarsal Ford, Bíldshöfða 6, í dag.
Komdu í kaffi og kleinur í sýningarsal Ford, Bíldshöfða 6.
Nýtum notaðan Ford
Nýtum notaðan Ford
Nýtum notaðan Ford
Nýtum notaðan Ford
Nýtum notaðan Ford
Nýtum notaðan Ford
2,4 dísil beinskiptur 18 manna
Fast númer VD294
Skrd. 06/2006. Ek. 64.000 km.
Ásett verð 3.990.000 kr.
Afsláttur 500.000 kr.
Tilboðsverð 3.490.000 kr.
2,4 dísil beinskiptur 18 manna
Fast númer RS771
Skrd. 03/2006. Ek. 68.000 km.
Ásett verð 3.890.000 kr.
1,8 dísil beinskiptur 6 dyra
Fast númer TI476
Skrd. 07/2005. Ek. 25.000 km.
Ásett verð 1.790.000 kr.
Afsláttur 400.000 kr.
Tilboðsverð 1.390.000 kr.
2,0 dísil beinskiptur 6 dyra
Fast númer IR013
Skrd. 06/2005. Ek. 49.000 km.
Ásett verð 2.190.000 kr.
Afsláttur 400.000 kr.
Tilboðsverð 1.790.000 kr.
2,0 dísil beinskiptur 6 dyra
Fast númer ZM701
Skrd. 05/2005. Ek. 45.000 km.
Ásett verð 2.310.000 kr.
Öll verð í auglýsingunni
eru með virðisaukaskatti.
1,8 dísil beinskiptur 6 dyra
Fast númer UK430
Skrd. 01/2006. Ek. 25.000 km.
Ásett verð 2.090.000 kr.
Ford Transit 300M Sendibíll Ford Transit 220L Sendibíll Ford Transit 300M Sendibíll
Ford Transit 410L RútaFord Transit 410L Rúta Ford Transit 220L Sendibíll
Ford Genuine Design.
Ford leggur áherslu á notagildi, gegnheila
og einlæga hönnun.Vertu í hópi
þeirra bestu. Veldu Ford. Spurðu um
Fyrirmyndarþjónustu Brimborgar.