Morgunblaðið - 24.11.2008, Blaðsíða 17
John McCain,“ segir Sólmundur
sem er með öll erlend heiti á
frammámönnum á hreinu.
Sólmundur missir aldrei af
fréttatíma og tekur fréttir fram-
yfir barnaefni og allt annað sem
er í boði. Hann rekur Snæfríði
systur sína, sem er fjögurra ára,
út úr sjónvarpsherberginu og þarf
sitt næði til að fylgjast með frétt-
unum. „Hann var ekki nema fimm
ára þegar hann tilkynnti mér einn
daginn að það væri kominn nýr
forsætisráðherra í Póllandi,“ segir
faðir hans og bætir við að réttlæt-
iskennd drengsins hafi verið stór-
lega misboðið þegar Benazir Butto
var myrt í Pakistan. „Honum þótti
það afskaplega tilgangslaust og
grimmilegt. Á þeirri stundu áttaði
hann sig kannski í fyrsta skipti á
því hvað heimurinn getur verið
miskunnarlaus. En hann tekur
þetta ekki inn á sig, hann lætur
sig þetta fyrst og fremst varða og
er áhugasamur um það sem er
Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur
khk@mbl.is
Fyrir utan fréttatímanneru uppáhaldsþættirnirmínir í sjónvarpinudýralífsþættirnir með
Sir. David Attenborough, þar lær-
ir maður svo margt um mörg
skrítin dýr,“ segir Sólmundur
Magnús Sigurðarson, sjö ára gutti
sem býr í Biskupstungum. Hann
er einstaklega fróðleiksfús og vill
vita sem mest um sem flest, hvort
sem það eru dýr, landafræði,
heimspólitík eða kreppan á Ís-
landi. „Ég horfi alltaf á fréttirnar
af því að ég vil vita hvað er að
gerast úti í heimi og hérna heima
á Íslandi. Ég var mjög spenntur
þegar forsetakosningarnar voru í
Bandaríkjunum um daginn og
neitaði að fara að sofa þegar kosn-
ingavakan var,“ segir Sólmundur
og kímir en alla jafna er hann
mjög þægur að fara í háttinn, en
móðir hans segir að þetta kvöld
hafi honum ekki verið haggað.
Hann vildi verða vitni að því hvort
Barack Obama tækist að sigra eð-
ur ei. „Hann sofnaði nú reyndar í
miðri kosningavöku en vakti mig
eldsnemma og tilkynnti mér him-
inlifandi að Obama hefði sigrað,“
segir móðir hans og bætir við að
Sólmundur hafi fylgst vel með
kosningabaráttunni og áherslum
hjá frambjóðendum. En hvers
vegna vildi Sólmundir fá Obama
sem forseta í Bandaríkjunum? „Af
því að hann er friðarsinni. Hann
er ekki eins mikill stríðsmaður og
Tekur fréttir
fram yfir barnaefni
Sólmundur Magnús Sigurðarson segir að fréttatíminn sé það efni í sjónvarpi sem
hann hafi mest gaman af. Sólmundur er sjö ára og fylgdist spenntur með kosn-
ingabaráttunni í Bandaríkjunum.
Dýrafróður Sólmundur að glugga í einni af uppáhaldsbókunum sínum þar sem meðal annars má finna lemúra.
Morgunblaðið/Kristín Heiða
efst á baugi hverju sinni.“ Sól-
mundur fer mikið á bókasafnið í
skólanum sínum og fær lánaðar
bækur. Hann segist vera mest fyr-
ir dýrabækur. „Mér finnst svo
gaman að lesa og sjá hvað það er
til mikið af framandi dýrum í
heiminum. Ef ég gæti valið mér
land til að fara til þá langar mig
mest til Afríku af því mig langar
til að sjá alvöruljón og fíla í frum-
skógi og alls konar dýr sem þar
eru.“
Lemúri og efnafræðitilraunir
Sólmundur fór til Kaup-
mannahafnar í sumar með ömmu
sinni og það var í fyrsta skipti sem
hann fór til útlanda og var mikil
upplifun. „Þá fórum við í dýragarð
og þar sá ég alvöruísbirni og dýr
sem ég þekki úr bókum og ég sá
líka til dæmis alls konar eðlur.
Þar var lemúri sem er eitt af mín-
um uppáhaldsdýrum. Mér fannst
líka frábært að fara í flugvél og
ég sá svo margt í Danmörku sem
ég hafði ekki séð áður.“
Aðspurður segir Sólmundur að
vel geti verið að hann verði upp-
finningamaður, eðlis- eða efna-
fræðingur þegar hann verður stór.
„Mér finnst mjög gaman að gera
tilraunir með efni. Ég ætlaði
reyndar einu sinni að verða dýra-
fræðingur en ég er ekki lengur
viss um hvort það verður. Mér
finnst landafræði mjög skemmtileg
og gaman að læra nöfn á löndum,
borgum og eyjum. Mér finnst líka
gaman að læra hvernig hnötturinn
er samsettur.“
Hann var áður í kertagerðinni, en
þar sem gigtin er orðin skæð flutti
hann um set. Á næsta ári verða 60
ár liðin frá því að Árni flutti á Sól-
heima.
Rauður dúkur með gullþræði
Annar öldungur unir glaður við
sitt við vefnað í listasmiðjunni.
Rauður dúkur með gylltum þræði
lengist og lengist og Ólafur Bene-
diktsson, aðalvefari, lítur aðeins
upp til að brosa til gestanna, en
heldur síðan áfram við iðju sína.
Fellur sjaldnast verk úr hendi.
Jóladúkar eru áberandi í fram-
leiðslunni, en einnig grófari dúkar
og mottur ýmiss konar. Margir
leggja Sólheimum til efni. Sæng-
urföt koma frá sjúkrahúsum og
gamlar gallabuxur eru enn til á lag-
er frá varnarliðinu á Keflavíkur-
flugvelli. Þetta efni gengur í end-
urnýjun lífdaga og sómir sér vel í
nýjum hlutverkum.
Ágúst Þorvaldur Höskuldsson
blaðar í bók í Listasmiðjunni, Ís-
landsmet í frjálsum íþróttum eru til
skoðunar, gefin út af Erni og Ör-
lygi. Hann skiptir sér ekki mikið af
listsköpuninni þessa dagsstund, en
gefur blaðamanni mynd sem hann
teiknaði nýverið. Getur þess í
framhjáhlaupi hverrar ættar blaða-
maður er, allt satt og rétt. Þó höf-
um við ekki talað saman í ald-
arfjórðung eða svo.
Sigríður Ruth Hjaltadóttir situr
innarlega í sal listasmiðjunnar þar
sem hún hefur stundað iðju sína í
mörg ár. Hún hefur getið sér gott
orð fyrir listsköpun og er þekkt
meðal þeirra sem láta sig alþýðulist
fatlaðra varða.
Alls konar fólk og langhundar
Rut hélt m.a. sýningu í Bolung-
arvík á liðnu sumri. Fólk, blóm og
hús eru vinsæl viðfangsefni hjá
henni þegar hún mundar túss-
pennana. Hún segist mála fólk sem
hún þekkir, en trúlega er viðfangs-
efnið oftar en ekki Eva systir henn-
ar, segir Ólafur Már sem stjórnar
starfinu í Listasmiðjunni.
Einar Baldursson stendur einn
vaktina í keramíkgerðinni ásamt
Ingibjörgu Karlsdóttur sem leiðir
starfið þar. Einar er þessa stundina
að teikna flugvél, en flugvélar eru
hans líf og yndi. Einar sýndi í
Listasmiðjunni á Sólheimum í sum-
ar og var ekki að orðlengja að allir
kallarnir hans seldust upp, samtals
83 listaverk! Bæði málaðir og
brenndir í leir. Einar teiknar
myndirnar en síðan er það sam-
vinnuverkefni að mála þær og
ganga frá.
Hann hefur einnig málað mikið
af dýrum, aðallega hundum og kött-
um og eiga dýrin það sameiginlegt
að vera með einstaklega langan
hrygg. .„Langhundar og langir
kettir,“ sagði Ingibjörg.
Fréttirnar og Sólheimar
Við keyrum rólegar í bæinn held-
ur en austur. Það merkilega hafði
reyndar gerst að útvarpsfréttir
duttu út þegar við komum undir
Ingólfsfjall á austurleiðinni. Við
höfðum eiginlega ekki áhyggjur af
því fyrr en við nálguðumst höf-
uðstöðvarnar við Hádegismóa á ný.
Lífið á Sólheimum snýst ekki um
næsta fréttatíma.
Fjölhæf Yola vinnur bæði við smíðar og listsköpun.
» Á aðventudögum á
Sólheimum er gest-
um og gangandi boðið
upp á fjölbreytta dag-
skrá svo sem brúðuleik-
hús, tónleika, námskeið
í konfektgerð og þannig
mætti lengi telja.
Daglegt líf 17
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. NÓVEMBER 2008