Morgunblaðið - 24.11.2008, Qupperneq 28
28 Dagbók
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. NÓVEMBER 2008
Sudoku
Frumstig
9 4 5 3
7 9
7 6 1 5
3 5 8 1 7
1 7 4 6
4 6 9 8 3
8 6 4 3
4 2
7 8 4 1
2
4 6 3 9
1 9 5 2 8
8 4 9
5 4 3 9 6 2
7 2 6
6 1 9 7 4
9 5 1 6
9
3 1
6 3 4 5 8
5 9 3 7
4 9
3 9 1 6 7 5
5 2
1 5 7 6
9 7 5 4 1
8 4
7 4 1 3 8 5 9 2 6
9 5 8 6 2 1 4 7 3
2 6 3 7 4 9 8 5 1
8 2 4 5 9 6 3 1 7
6 7 9 1 3 8 5 4 2
1 3 5 2 7 4 6 8 9
4 9 6 8 1 7 2 3 5
3 8 7 9 5 2 1 6 4
5 1 2 4 6 3 7 9 8
6 9 8 3 5 1 4 7 2
7 1 4 6 9 2 8 5 3
5 2 3 7 8 4 1 6 9
1 3 7 9 6 8 5 2 4
8 4 9 2 7 5 6 3 1
2 5 6 1 4 3 7 9 8
4 8 2 5 3 6 9 1 7
3 7 5 8 1 9 2 4 6
9 6 1 4 2 7 3 8 5
9 4 8 3 2 6 1 7 5
5 7 2 9 1 4 8 3 6
1 3 6 5 7 8 9 4 2
4 6 5 8 3 1 7 2 9
2 1 3 7 9 5 4 6 8
7 8 9 4 6 2 3 5 1
8 9 4 2 5 7 6 1 3
3 5 1 6 4 9 2 8 7
6 2 7 1 8 3 5 9 4
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Lausn síðustu Sudoki.
Í dag er mánudagur 24. nóvember,
329. dagur ársins 2008
Orð dagsins: Daníel tók til máls og
sagði: „Lofað verði nafn Guðs frá eilífð
til eilífðar, því hans er viskan og mátt-
urinn.“ (Daníel 2, 20.)
Víkverji er á því að það geti oft ver-ið prýði að því á heimilum að
skreyta veggina með stórum plaköt-
um, hvort sem um er að ræða frægar
ljósmyndir eða málverk. En einn vin-
ur hans, sem býr í fjölbýlishúsi, horfir
nú tortryggnisaugum á myndir af
þessu tagi þegar hann sér þær á
veggjum. Hann veltir fyrir sér hvað
búi undir.
x x x
Nýlega þurfti að ráðast í dýrar ogumfangsmiklar viðgerðir í hús-
inu hennar vegna leka og skemmda á
lögnum. Hann þurfti að sætta sig við
vatnsleysi í íbúðinni um hríð og reiða
sig á sturtuaðstöðu hjá ættingjum.
Hann hefur ekki búið þarna lengi
en komst að því að ofar í húsinu hafði
fólk vitað lengi að eitthvað var að.
Stórir rakablettir höfðu myndast og
veggir bólgnað út. En málið var
„leyst“ með því að kaupa nokkur stór
plaköt og hengja þau upp til að hylja
blettina!
Það er víst hægt að pissa í skóinn
sinn með margvíslegum hætti. Ein-
hvern veginn hélt Víkverji að í þessu
unaðslandi roks og rigningar væri
ekki lengur til fólk sem héldi að það
gæti hunsað náttúruöflin. Vatn er
þungt, það leitar niður og stundum
út, hvort sem það lemur þökin okkar
eða drýpur úr lekum lögnum.
x x x
En nú segir vinurinn að sumir íbú-anna séu farnir að fárast yfir
því hvað viðgerðin hafi orðið dýr og
hvað það hafi tekið langan tíma að
finna iðnaðarmenn til að lagfæra hús-
ið. Hann svaraði því til að ef fólkið
hefði brugðist strax við þegar rakinn
kom í ljós, látið rannsaka málið og
gert áætlun um úrbætur hefði þetta
orðið miklu ódýrara og tekið
skemmri tíma.
x x x
En Víkverji þekkir mörg dæmi umsvona háttalag í fjölbýlishúsum.
Honum finnst að það ætti að krefjast
þess að þeir sem kaupa sér húsnæði í
fjölbýli verði skikkaðir til þess af op-
inberum aðilum að samþykkja ávallt
viðhald áður en allt er komið í steik.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 agn, 4 tann-
stæði, 7 blóm, 8 slag-
brandurinn, 9 bragðvís-
an mann, 11 trassi, 13
karlfugl, 14 slá, 15 lipur,
17 skríls, 20 gruna, 22 að
baki, 23 aumingja, 24
mannsnafn, 25 ákveð.
Lóðrétt | 1 skinnpoka, 2
illska, 3 óhreinkar, 4
íþrótt, 5 saur, 6 land-
rimi, 10 gufa, 12 vond,
13 húð, 15 þrúga, 16 spil-
ið, 18 vargur, 19 dáið, 20
ofnar, 21 nabbi.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 fannfergi, 8 tærar, 9 dynur, 10 róa, 11 lúlla, 13
reisn, 15 legil, 18 skáld, 21 oft, 22 áfátt, 23 arinn, 24
kinnungur.
Lóðrétt: 2 apríl, 3 narra, 4 endar, 5 gengi, 6 stél, 7 grun,
12 lúi, 14 eik, 15 ljár, 16 grámi, 17 lotin, 18 stafn, 19
álitu, 20 dáni.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. d4 Rf6 2. Rf3 c5 3. d5 d6 4. Rc3 g6
5. e4 Bg7 6. Bb5+ Rbd7 7. a4 O-O 8.
O-O Re8 9. He1 Rc7 10. Bf1 b6 11.
Bf4 Re5 12. Rxe5 Bxe5 13. Dd2 Bxf4
14. Dxf4 e5 15. dxe6 fxe6 16. Dg3
Bb7 17. Had1 e5 18. Rb5 Hf6 19.
Bc4+ Kf8
Staðan kom upp fyrir skömmu í
þýsku deildakeppninni. Þýski stór-
meistarinn Jan Gustafsson (2634)
hafði hvítt gegn landa sínum og koll-
ega Michal Bezold (2513). 20. Rxd6!
Hxd6 21. Dxe5 og svartur gafst upp
enda ræður hann ekki við allar hót-
anir hvíts. Gustafsson er 29 ára og
fjórði stigahæsti skákmaður Þjóð-
verja. Bezold hefur lítið teflt und-
anfarin ár en hann kom áður fyrr
nokkrum sinnum til Íslands að tefla á
alþjóðlegum mótum og á Íslandsmóti
skákfélaga.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Framsýni Belladonna.
Norður
♠Á8
♥ÁKDG
♦D2
♣KD543
Vestur Austur
♠DG1072 ♠964
♥43 ♥10985
♦ÁG10986 ♦73
♣-- ♣Á962
Suður
♠K53
♥762
♦K54
♣G1087
Suður spilar 3G.
Enn er það HM 1967, nú leikur Ítala
og Frakka. Meistari Belladonna er hér
í lykilhlutverki í vörninni. Hann var
höfundur sagna og vakti á 1♠ í vestur.
Frakkinn Boulenger doblaði og keyrði
svo í 3G, sem Szvarc spilaði í suður.
Belladonna kom út með ♦10 – þriðja
frá brotinni röð.
Leiðin til vinnings á opnu borði er að
dúkka fyrsta slaginn, en Szvarc fór
skiljanlega upp með ♦D og spilaði laufi
á gosann. Avarelli hefði tekið samning-
inn tvo niður með því að hoppa upp
með ♣Á og spila tígli, en hann kaus að
dúkka. Með átta slagi í húsi tók Szvarc
nú hjörtun með hraði og Belladonna
henti jafnhratt ofan af spaðanum. Þar
sá hann langt fram í tímann og þegar
Szvarc spilaði ♠Á-K og þriðja spað-
anum var það austur sem fékk slaginn
á ♠9.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Þú kemur þér að kjarnanum í
vinnunni og gerir þér grein fyrir að hing-
að til hefur þú eytt of miklum tíma til
einskis. Reyndu að fullnægja æv-
intýraþránni.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Hafðu varann á og gættu þess að
persónulegar upplýsingar um þig verði
ekki á allra vitorði í dag. En óöryggi þitt
tekur skyndilega völdin í stutta stund í
kvöld.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þú ert sannfærður um að þínar
aðferðir til að ná árangri séu þær bestu.
Vandamálin eru til þess að leysa þau svo
gakktu hreint til verks og útkljáðu málin.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þú hefur tækifæri til að klappa
fyrir öðrum vegna afreka þeirra, og líka
til að fá hamingjuóskir. Ekki vera
hræddur við að segja góðum vini leynd-
armál.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Það er ekki allt fengið með pen-
ingum þótt þeir skipti verulegu máli. Ef
þú ert það sem þú borðar ættir þú að
draga úr neyslu á fæðu sem er ekki holl
fyrir þig.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Lífið hefur gengið svo skemmti-
lega hratt fyrir sig að undanförnu að þú
ert hissa að þurfa að bíða eftir þeim sem
þú þarfnast.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þú hefur verið í stöðugri sjálfs-
skoðun frá árinu 1996 þannig að nú veistu
nákvæmlega hver þú ert og hvað þú vilt.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Það freistar þín mjög að
reyna eitthvað nýtt svo þú skalt fyrir alla
muni láta það eftir þér. Talaðu um það
við vog eða krabba.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Það er eitt og annað í þínum
eigin garði sem þarfnast athugunar og
úrbóta. Farðu þér hægt, það er ekki far-
sælt að hrapa að lausnum.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Allt virðist í lausu lofti. Hugs-
aðu fyrst um það hvort hann sé einhvers
virði og komi þér að einhverjum notum.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þér finnst ekki rétt að eyða
jafn miklu í ferðalög og skemmtanir og
þú hafðir hugsað þér. Gerðu málin upp í
hvelli svo þú getir haldið áfram – reynsl-
unni ríkari.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú lagðir hart að þér í gær og ætt-
ir að leyfa þér að slaka svolítið á í dag. Að
öðrum kosti áttu á hættu að koðna niður.
Stjörnuspá
24. nóvember 1809
Erindisbréf fyrir hreppstjóra
(hreppstjórainstrúx) var birt.
Þar var fjallað um réttindi
þeirra og skyldur í 42 grein-
um.
24. nóvember 1965
Jóhann Löve, 30 ára lög-
reglumaður, fannst suður af
Skjaldbreiði eftir að fjögur
hundruð manns höfðu leitað
að honum í sextíu klukku-
stundir. Hann hafði verið á
rjúpnaveiðum með félögum
sínum en villst í vonskuveðri.
„Ég einbeitti mér að því að
fullvissa mig um að ég myndi
finnast,“ sagði Jóhann í sam-
tali við Vísi.
24. nóvember 1972
Suðurlandsvegur milli Reykja-
víkur og Selfoss var formlega
tekinn í notkun. Hann hafði
verið endurbyggður og lagður
bundnu slitlagi. Verkið tók sex
ár.
24. nóvember 1974
Varðskipið Ægir tók vest-
urþýska togarann Arcturus að
ólöglegum veiðum við Suð-
austurland. Þetta var fyrsti
togarinn sem tekinn var innan
50 mílna fiskveiðilögsög-
unnar.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
Þórdís Lind Þórsdóttir, Margrét
María Ívarsdóttir, María Valgarðs-
dóttir, Auður Skarphéðinsdóttir og
Vigdís Skarphéðinsdóttir héldu
tombólu hjá Nóatúni í Hamraborg í
Kópavogi og söfnuðu 3.150 kr. sem
þær færðu Rauða krossinum.
Hlutavelta
„ÉG ætla ekki að vera með neina stórveislu en
ég á von á að dætur mínar og barnabörn komi
til mín í dag og gleðjist með mér og kannski
nánustu vinir líka. Þetta verður hóflegt núna en
ég hélt veglegar veislur bæði þegar ég varð
fimmtugur og þegar ég varð sextugur,“ segir
Sigurdór og neitar því ekki að vel geti verið að
hann taki lagið með gestum sínum í dag. „Ég er
alltaf til í að syngja. Ég var í hinum ýmsu hljóm-
sveitum hér áður og það var mjög skemmtilegur
tími, þá var maður svo ungur, rétt um tvítugt,“
segir Sigurdór sem söng meðal annars með
hljómsveit Svavars Gests frá árinu 1959 til 1960, en einna fræg-
astur er hann fyrir að syngja Þórsmerkurljóðið um hana Maríu.
„Þegar ég var fararstjóri á Spáni þá var þess alltaf krafist að ég
tæki þetta lag. Ég er svo heppinn að hafa alltaf haft næga atvinnu
og fjölbreytta. Ég var fararstjóri á Spáni í tólf sumur, ég var blaða-
maður í fjörutíu ár og lærði líka prentverk, auk þess að vinna fyrir
mér með söng,“ segir Sigurdór sem er sáttur við lífið og segist
hafa verið gæfusamur, en stærsta áfallið sem hann hefur orðið fyr-
ir var þegar hann missti móður sína 12 ára gamall. khk@mbl.is
Sigurdór Sigurdórsson er sjötugur í dag
Tekur kannski lagið
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is