Morgunblaðið - 24.11.2008, Page 35
Lennon Vinsælli en Jesús?
BLAÐ, sem gefið er út í Páfagarði,
hefur fyrirgefið John Lennon um-
mæli, sem hann lét falla fyrir rúm-
um fjórum áratugum, um að Bítl-
arnir væru vinsælli en Jesús. Í grein
blaðsins er farið lofsamlegum orð-
um um Bítlana og sagt að Lennon
hafi bara verið ungur maður að
monta sig.
Lennon sagði í blaðaviðtali í
Bretlandi árið 1966, þegar Bítlaæð-
ið var sem mest, að hann vissi ekki
hvort myndi deyja fyrst út, kristin-
dómur eða rokk og ról. Mikið upp-
nám varð í Bandaríkjunum vegna
þessara ummæla og voru plötur
Bítlanna m.a. brenndar.
Blaðið L’Osservatore Romano,
sem er hálfopinbert málgagn Páfa-
garðs, fjallar um það í nýjasta tölu-
blaði sínu að 40 ár eru liðin frá því
Hvíta albúmið með Bítlunum var
gefið út.
Blaðið fékk nýjan ritstjóra fyrir
skömmu og þótt Benedikt páfi hafi
gagnrýnt marga þætti nútímapopp-
menningar hefur hann leyft blaðinu
að endurspegla umheiminn. Slíkt
hefði verið óhugsandi á tíma Páls
páfa VI., sem ríkti í Vatíkaninu þeg-
ar Bítlarnir voru upp á sitt besta.
John
Lennon
fyrirgefið
Fjallaklifur Ama Dablam – Beyond The Void segir frá leiðangri tveggja Ís-
lendinga á tind Ama Dablam 6.856 m háan tind í Himalaja.
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
HEIMILDARMYNDIN Ama Da-
blam – Beyond The Void eftir Ingvar
Þórisson vann til verðlauna á fjalla-
kvikmyndahátíð í Torelló á Spáni á
laugardaginn.
„Hún var valin besta fjallamyndin
á hátíðinni, en það eru önnur af
tvennum aðalverðlaunum hátíðar-
innar,“ segir Ingvar sem var staddur
í Englandi þegar blaðamaður náði tali
af honum í gær. „Ég er hér í Kendal á
annarri fjallamyndahátíð. Bróðir
minn, Jón Þórisson sem er meðfram-
leiðandi í myndinni, fór með hana til
Spánar og tók við verðlaununum
þar.“
Ama Dablam – Beyond The Void
fjallar um leiðangur Ingvars og Við-
ars Helgasonar á Ama Dablam, 6.856
m háan tind í Himalaja, í fyrra. Með
þeim í för var hinn kunni fjallamaður
Simon Yates. Þá sömdu þeir Barði
Jóhannsson og Eberg tónlist fyrir
myndina.
Myndin var sýnd þrisvar á hátíð-
inni í Englandi um helgina og segir
Ingvar viðtökurnar hafa verið frá-
bærar. „Það er virkilega gaman að fá
þessi viðbrögð við myndinni en það
hjálpar kannski að Simon Yates er
mjög þekktur hér.“
Fjallamyndahátíðin á Spáni var sú
fyrsta sem myndin fór á. „Ég hef ekki
sótt um fleiri hátíðir en þessar tvær
en það eru nokkrar í byrjun næsta
árs sem ég ætla að reyna að komast
á. Það verður auðveldara að komast á
hátíðir núna eftir að myndin hefur
hlotið verðlaun,“ segir Ingvar hinn
kátasti. Hann vinnur nú að heimild-
armyndinni Roðlaust og beinlaust
sem fjallar um sjómenn frá Ólafsfirði
sem skipa hljómsveitina Roðlaust og
beinlaust en Ingvar fylgdi þeim m.a.
til Frakklands á sjómannalagahátíð.
Valin besta fjalla-
myndin á Spáni
Ama Dablam – Beyond The Void hlaut
sigurlaun á fjallamyndahátíð
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. NÓVEMBER 2008
Sími 564 0000
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Smárabíó
Þú færð 5 % endurgreitt í Laugarásbíó
ef þú greiðir með kreditkorti
tengdu Aukakrónum
50 kr. afsláttur ef þú kaupir bíómiðann á
www.laugarasbio.is
Reykjavík Rotterdam kl. 5:50 - 8 B.i. 14 ára
Igor kl. 4 - 6 LEYFÐ
Skjaldbakan og Hérinn kl. 3:45 LEYFÐ
Lukku Láki kl. 3:45 LEYFÐ
STÆRSTA OPNUN ÁRSINS! NÆST STÆRSTA OPNUN ALLRA TÍMA Á ÍSLANDI!
47.000 MANNS Á 2 VIKUM!
TOPPMYNDIN Á ÍSLANDI!
SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI
-TOMMI, KVIKMYNDIR.IS
- V.J.V., -TOPP5.IS/FBL - D.Ö.J., KVIKMYNDIR.COM
-S.V., MBL
- Þ.Þ., DV
- Ó.H.T., Rás 2
STRANGLEGA BÖNNUÐ INNAN 16 ÁRA!
ALLS EKKI FYRIR VIÐKVÆMA!
SÝND Í SMÁRABÍÓI
Aðeins
500 kr.
SÝND Í SMÁRABÍÓI
“HROTTALEG MYND EN
SPENNANDI, ÓGNVEKJANDI
OG ÓVÆNT”
- S.V., MBL
ar bíómiðann með Kreditkorti tengdu Aukakrónum!
TOPPMYNDIN Á ÍSLANDI!
47.000 MANNS Á 2 VIKUM!
STÆRSTA OPNUN ÁRSINS!
NÆST STÆRSTA OPNUN ALLRA TÍMA Á ÍSLANDI!
HÖRKUSPENNANDI MYND UM
SPILLTA LÖGREGLUMENN
-bara lúxus
Sími 553 2075
Sýnd kl. 5, 7:45 og 10:15 Sýnd kl. 5, 7:45 og 10:15
Sýnd kl. 8 og 10:15 Sýnd kl. 6 (500 kr.) m íslensku tali
- Ó.H.T., Rás 2
Nick and Norah´s 3:40-5:50-8-10:10 LEYFÐ
Quantum of Solace 5:30- 8-10:30 B.i. 12 ára
Quantum of Solace kl. 5:30 - 10:30 LÚXUS
Quarantine kl. 10:10 B.i. 16 ára
My Best Friend´s Girl kl. 8 - 10:20 B.i. 14 ára
500 kr.
500 kr.
500 kr.
Ver
ð a
ðei
ns
500
kr.
MADONNA gerir sitt besta til að
komast yfir skilnaðinn við Guy Ritc-
hie með svolítilli hjálp frá öðrum
fyrrverandi eiginmanni sínum, Sean
Penn. En það sást til þeirra tveggja
fá sér drykk saman á Greenwich-
hótelinu í Manhattan á miðvikudags-
kvöldið. „Þau eru í góðu sambandi,
en það er ekkert rómantískt í gangi.
Þau eru aðeins góðir vinir,“ lætur
heimildarmaður nálægur söngkon-
unni hafa eftir sér við People-
tímaritið.
Skilnaður Madonnu og Ritchie
gekk í gegn fyrir rétti í London á
föstudaginn, en kvöldið áður hélt
Madonna tónleika í Fíladelfíu sem
hluta af tónleikatúrnum Sticky and
Sweet sem hún er nú á. Hún einbeit-
ir sér að vinnu sinni og börnunum
þremur til að þurfa ekki að hugsa til
hins átta ára hjónabands með Ritch-
ie sem var að ljúka.
„Þetta er sorgleg staða, en hún er
ekki í ástarsorg,“ segir heimild-
armaður People.
Hjónasvipur Madonna og Sean Penn voru gift á árunum 1985-1989.
Ekki í ástarsorg
Reuters
AÐÞRENGDA eiginkonan Nicol-
lette Sheridan er komin með nýjan
mann upp á arminn en hún sleit ný-
lega sambandi við tónlistarmanninn
Michael Bolton.
Nýja ástin er leikarinn David
Spade en hann mætti í 45 ára afmæl-
isveislu leikkonunnar. Meðal ann-
arra gesta í veislunni voru meðleik-
arar Sheridan í Aðþrengdum
eiginkonum; Felicity Huffman, Neal
McDonough og Kyle MacLachlan.
Samband Sheridan og Spade fer
enn leynt en þau mættu sitt í hvoru
lagi í veisluna og sátu ekki við sama
borð til að byrja með. En síðar um
kvöldið sást til þeirra knúsast og
kyssast þar sem þau voru búin að
færa sig saman. Þó þau tvö haldi því
fram að þau séu ekki að hittast stóð
Spade við hlið Sheridan þegar hún
blés á kertin á afmæliskökunni.
Fyrir tveimur vikum sást til
þeirra saman í fyrsta skipti við opn-
un veitingastaðar þar sem þau
eyddu öllu kvöldinu í djúpum sam-
ræðum.
Sáust kyssast og knúsast
Sæt saman Sheridan og Spade.