Morgunblaðið - 24.11.2008, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. NÓVEMBER 2008
/ AKUREYRI / KEFLAVÍK / SELFOSSI
- MMJ, KVIKMYNDIR.COM
BYGGÐ Á SANNSÖGULEGUM ATBURÐUM UM
ÓTRÚLEG AFREK STRÍÐSFANGA Í VÍETNAMSTRÍÐINU
STÓRLEIKARINN, CHRISTIAN BALE
ÚR THE DARK KNIGHT SÝNIR STJÖRNULEIK.
OG AKUREYRI
STEVE ZAHN ER MAGNAÐUR
SÝND Í ÁLFABAKKA,
OG AKUREYRI
ANNE HATHAWAY
ÚR GET SMART OG DEVIL
WEARS PRADA KEMUR HÉR Í
MÖGNUÐUM SPENNUTRYLLI.
MYND SEM KEMUR
STÖÐUGT Á ÓVART
FYRSTATEIKNIMYNDIN SEM ER
FRAMLEIDD MEÐ ÞRÍVÍDD Í HUGA!
ÓTRÚLEG UPPLIFUN,
SJÓN ER SÖGU RÍKARI!
ATH.
SÝND
MEÐ
ÍSLEN
SKUT
ALI
SÝND Í KEINGLUNNI
TOPP
GRÍNMYND
SÝND Á SELFOSSI SÝND Á SELFOSSI SÝND Á SELFOSSISÝND Í KEFLAVÍK OG SELFOSSI
- D.Ö.J., KVIKMYNDIR.COM
- V.J.V., -TOPP5.IS/FBL
ÞÚ HLÝÐIR, EF ÞÚ VILT LIFA!
SÝND Í ÁLFABAKKA VIP
SALURINN
ER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
BODY OF LIES kl. 8 - 10:20 B.i. 16 ára
HIGH SCHOOL MUSICAL 3 kl. 8 LEYFÐ
RESCUE DAWN kl. 10:20 B.i. 16 ára
BODY OF LIES kl. 8 - 10:30 B.i. 16 ára
HOW TO LOSE FRIENDS... kl. 8 B.i. 12 ára
QUANTUM OF SOLACE kl. 10:20 Síðustu sýningar! B.i. 12 ára
QUANTUM OF SOLACE kl. 8 Síðustu sýningar! B.i. 12 ára
QUARANTINE kl. 10:20 Síðasta sýning! B.i. 16 ára
PATHOLOGY kl. 8 Síðasta sýning! B.i. 16 ára
RIGHTEOUS KILL kl. 8 Síðasta sýning! B.i. 16 ára
OG KRINGLUNNI
SÝND Í ÁLFABAKKA
OG KRINGLUNNI
SÝND Í ÁLFABAKKA SÝND Í ÁLFABAKKA
OG KEFLAVÍK
SÝND Í ÁLFABAKKA,
Anne Hathaway Patrick Wilson ZACH EFFRON OG VANESSA HUDGENS
GERA ALLT VITLAUST Í HIGH SCHOOL MUSICAL 3!
frumsýnd næstu helgi!
- H.J. Morgunblaðið.
UNIFEM á Íslandi Laugavegi 42
Miðstöð Sameinuðu þjóðanna á Íslandi
Sími 552 6200 unifem@unifem.is www.unifem.is
MORGUNVERÐARFUNDUR UNIFEM Á ÍSLANDI
Hótel Holt, þriðjudaginn 25. nóvember kl. 8:15–9:30.
LÍF ÁN OFBELDIS
ER ALLRA RÉTTUR
– Vinna UNIFEM gegn kynbundnu ofbeldi á heimsvísu –
Heiðursgestur fundarins verður Gro Lindstad yfirmaður UNIFEM á
sviði samstarfs við ríkisstjórnir og þjóðþing. Hún mun fjalla um verkefni
UNIFEM sem hafa það að markmiði að binda endi á ofbeldi gegn konum.
Emebet Merkuria flutti til Íslands frá Eþíópíu árið 2001. Hún mun segja
frá reynslu sinni þar sem ofbeldi gegn konum er samþykkt sem hluti af
samfélagsgerðinni.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra ávarpar fundinn.
Aðgangseyrir m/morgunmat er 2300 kr. Námsmenn greiða 1700 kr.
Fundurinn er hluti af 16 daga átaki gegn kynbundnu ofbeldi.
ÞÓ að það eigi ekki að vera hægt að
„keppa“ í tónlist hafa slíkir viðburðir
oft drjúg og góð áhrif á grasrótar-
starf íslenskra tónlistarmanna. Í
þeim felst áþreifanlegt markmið til
að stefna að, þar gefst kostur á að
leika fyrir áhorfendur í alvöru tón-
leikasal og góðri tónlist, sem hefði
annars týnst inni í bílskúr eða á net-
inu, er komið út undir bert loft. At-
hyglin sem tónlistarmönnunum er
veitt virkar hvetjandi og margir af
okkar fremstu tónlistarmönnum
hafa tekið sín fyrstu skref á þessum
vettvangi.
Global Battle of the Bands hefur
verið að styrkja sig í sessi að þessu
leytinu til á undanförnum árum. Í
þetta skipti var keppnin haldin í
spánnýjum tónlistar- og sportbar í
Hafnarfirði, Dillon Sportbar. Und-
anúrslitakvöld voru þrjú og um þrjá-
tíu sveitir kepptu. Ólíkt hinum betur
kynntu Músíktilraunum er öllum
frjálst að taka þátt og hefði Sálin
hans Jóns eða Sigur Rós reglum
samkvæmt getað keppt. Þá er stóra
gulrótin auðvitað aðalkeppnin úti í
Bretlandi þar sem sveitir víða að úr
heiminum keppa um væna fúlgu
fjár.
Af þessum sökum spannaði
keppnin vítt svið og skrautlegt;
hljómsveitir sem vart gátu hnoðað
saman lagi, hvað þá spilað það öttu
kappi við sveitir sem stóðu nokkrum
vetrarbrautum framar. Gallsúr til-
raunastarfsemi var í bland við fag-
legt, útvarpsvænt popp og kepp-
endur voru frá barnsaldri upp að
fimmtugu. Úrslitakvöldið var annars
sterkt, og margar sveitirnir gætu átt
bjarta framtíð fyrir höndum, sé vel
haldið á spöðum.
Hafnfirska rokksveitin Ten Steps
Away reið á vaðið. Hún er undir
greinilegum áhrif frá sveitungum
sínum í Sign og forsöngvarinn og
gítarleikarinn er reyndar meðlimur í
þeirri sveit. Ten Steps Away er um
margt vel á veg komin með emo-
rokk sitt og ímyndarvinnan geir-
negld; augnskuggar, þröngar galla-
buxur, hárgreiðsla … jú neim it.
Sitthvað vantar þó upp á þéttleikann
en þrátt fyrir allt; afskaplega lofandi
sveit.
Thingtak var næst og hafði hún af
einhverjum sökum að mestu skipt út
System of a Down innblásnu rokk-
inu sem hún lék í undanúrslitunum.
Afskaplega þétt sveit (trommari og
gítarleikari voru eitt sinn í hinni
ágætu Akureyrsku sveit Ópíum).
Textar pólitískir og metnaður mikill
en það mætti huga betur að laga-
smíðadeildinni.
Dægilegt nýbylgjurokk er dag-
skipunin hjá What About. Vel spilað
og þétt, alls ekki slæmt en heldur
ekkert sérstakt. Efnileg sveit en
smá innspýting af frumleika myndi
gera henni gott.
Elect var á vissan hátt skemmti-
legasta sveit kvöldsins. Tónlistin
hreint og tært kalifornískt þrass af
gamla skólanum, a la ’83. Svona hlýt-
ur Metallica að hafa hljómað á fyrstu
æfingunni. Hrátt, skítugt og slitr-
ótt … og það voru nákvæmlega þeir
þættir sem heilluðu. Elect á vænt-
anlega eftir að verða betri með tím-
anum, en hún má samt ekki verða
„of góð“ ef þið skiljið hvað ég meina.
Þá voru Menn ársins á vissan hátt
einkennilegasta sveit keppninnar.
Hér voru komnir reynsluboltar
miklir, sveitin hefur þrætt pöbba og
ballhús landsins undafarin ár en gaf
nýverið út prýðilega plötu með
frumsömdu efni. Tónlistin sem flutt
var um kvöldið var vandað, sálarríkt
og grúvandi djassrokk með „hvít-
um“ blæ þar sem andi Steely Dan,
Simply Red og Hothouse Flowers
sveif yfir. Það var dásamlega frísk-
andi að heyra þessa „óvenjulegu“
hljómsveitakeppnistónlist og ég tek
ofan fyrir Mönnunum að kýla á
þetta. Og já, tónlistin var auk-
inheldur stórgóð.
Agent Fresco, sigurvegararar
Músíktilrauna, voru í sérflokki. Að
vísu fór fyrsta lagið fyrir ofan garð
og neðan en það seinna var hápunkt-
ur kvöldsins. Frábær hljómsveit
sem nær á magnaðan hátt að sam-
eina ofurtæknilega spilamennsku,
torræðar og ævintýralegar kafla-
skiptingar og melódískt næmi og að-
gengileika. Framtíðarsveit og ekki
spillir ástríðufull sviðsframkoman
fyrir þar sem allir leggjast á eitt.
Sviwe kom gríðarlega sterk inn í
undanúrslitum, alveg merkilega
langt komin sveit. Lék dreymið
kuldarokk í anda Joy Divison og The
Wilderness, með skoti af Verve og
Radiohead. Af einhverjum sökum
datt þó allur botn úr sveitinni í úr-
slitunum. En samt, gríðarlega efni-
legt band og söngvarinn í algerum
sérflokki.
Bárujárn er með skemmtilegri
sveitum sem ég hef lengi séð. Frum-
leg og nýskapandi og blandar ólíkum
stefnum og stílum óhikað saman.
Brimbrettarokk, þeramín, naskt
sýrurokk og go-go-píur voru í blönd-
unni; bassaleikarinn er gírugur
langintes, söngvarinn og gítarleik-
arinn hins vegar síðhærður og fúl-
skeggjaður og hvað er með þetta
nafn? Þetta á ekki að virka en það
gerir það samt. Snilldarband.
Síðasta sveitin var svo The Pet
Cemetery. Áhrif frá Arcade Fire og
Kings of Leon voru auðgreinanleg;
stúlkur sáu um bassa- og fiðluleik og
sveitin afskaplega flott á sviði.
Ástríðan var tilfinnanleg og sveitin
var á flugi, frá fyrsta tóni til þess síð-
asta.
Leikar fóru þannig að dómnefnd
setti Bárujárn í þriðja sæti, The Pet
Cemetery í annað og Agent Fresco í
það fyrsta, og var sigur hennar
nokkuð öruggur. Hún lék svo nokk-
ur lög til viðbótar er úrslit voru klár
og sýndi þá og sannaði hversu vel
hún var að sigrinum komin. Hiklaust
efnilegasta rokksveit sem lengi hef-
ur fram komið á þessu blessaða landi
okkar.
Guð býr í grasrótinni, amma
TÓNLIST
Dillon Sportbar, Hafnarfirði
Global Battle of the Bands
Úrslit í Íslandsriðli GBOB eða Global
Battle of the Bands. Níu sveitir kepptu.
Laugardaginn 21. nóvember.
Arnar Eggert Thoroddsen
Magnús Andersen.
Agent Fresco Sigurvegarar Íslandsriðils GBOB 2008. „Hiklaust efnilegasta rokksveit sem lengi hefur fram komið
á þessu blessaða landi okkar,“ eins og segir í umsögn.
„Við sáum fram á það að komast
ekkert út með tónlistina okkar
næstu tvö árin vegna efnahags-
hrunsins. Þetta var því kjörin leið
til að koma sér úr landi og kynna
tónlistina erlendis en takmarkið er
að koma henni til sem flestra,“
segir Borgþór Jónsson, bassaleik-
ari Agent Fresco, spurður hvers
vegna sveitin hefði skráð sig en
sveitin sigraði fyrr á árinu í Mús-
íktilraunum og hefur vaxið ásmeg-
in síðan, bæði að vinsældum og
listrænum styrk. En hvernig orkaði
ákvörðunin siðferðislega á með-
limi?
„Þetta var sálfræðilega erfitt, ég
viðurkenni það,“ segir Borgþór.
„Við viljum ekki fá á okkur orð fyrir
að vera einhverjir keppnishestar.
Strákarnir voru mjög á móti þessu,
fannst þetta ekki svalt, en ég þrýsti
mjög á þetta og var með leiðindi
(hlær). Reglur keppninnar eru enda
þannig að allir geta verið með og í
gegnum tíðina hafa vel standsettar
sveitir verið að keppa.“
Borgþór viðurkennir líka að með-
limir hafi verið mjög stressaðir um
að hafa þetta ekki af.
„Við erum komnir í blússandi gír
og hefðum því orðið svolítið fúlir ef
við hefðum ekki unnið. Sú niður-
staða hefði barið okkur niður verð
ég að játa.“
Borgþór segir að lokum að verið
sé að vinna í því að snapa fleiri
gigg í Bretlandi og þeir félagar séu
nú farnir að setja saman áætlun
sem miði að því að gera þá eins
sýnilega og kostur er á meðan þeir
eru úti.
Sálfræðihernaður