Skinfaxi - 01.02.1927, Page 6
6
SKINFAXI
hún auðvitað varið liann fyrir óaldarlýðnum, enda hefir
það verið gert, en hún getur ekki ráðið við það, þó alt
sé fult af druknu fólki, hæði innan húss, þar sem veit-
ingar eru seldar og' líka á móunum i kringum leik-
völlinn.
Samkomustaður Árnesinga og Rangæinga cr að vísu
ver á vegi sladdur en fundarstaðir flestra annara ung-
mennasambanda. Skömmu eftir að íþróttamótið var
haldið við pjórsárbrú, héldu Vestur-Skaftfellingar mót
í Skaftártungu. Sást þar enginn ölvaður maður, en þang-
að komust ekki bilar með vín og fólk frá kaupstöðun-
um. pó að sveitir þær sem verst liggja við samgöngum
geti enn um stund varið skemtanir sínar fyrir ófögnuði
vínsins, þá cr það hvorttveggja, að þau félög eru mörg
og fjölmenn, sem verða fyrir búsifjum af þess-
um sökum, og hitt er lika víst, að bráðum kemur röðin
að afskektum sveitum ef svo heldur fram sem horfir
um þetta mál.
pvi ættu allir hugsandi menn að skilja að binn mesti
voði stafar af áfengi nær því á öllum sviðum þjóðlífs-
ins. pegar ungmennafélagar auglýsa samkomur sínar,
ættu þeir að taka það fram, að ölvaðir menn hefðu þar
engan griðastað. En þá verða þeir að tryggja sér rétt
og aðstöðu til þess að geta fylgt þessu ákvæði hlífðar-
laust, og aldrei hefir ungmennafélögum verið meiri
þörf á bindindisstarfsemi en nú. peir þurfa að ganga
einhuga að verki; allar hjáróma raddir, sem heyrast
um bindindismál innan félaganna, þurfa að þagna. pær
eru falskar í félögum, sem starfa fyrir menningarmál.
Óvinir bindindis hafa t. d. sagt, að bindindisheitið eigi
að hvcrfa úr stefnuskrá ungmennafélaga, því það eigi
sér stað að félagar brjóti. pcssir menn fara að dæmi
óþrifinnar konu, sem hættir að hirða húsið sitl og hcfir
það sér til afsökunar, að einhver muni ganga um það
með óhreinar fætur. pessir menn eru svo meirlyndir, að
vilja gefa eftir þegar liðs þeirra er mest þörf.