Skinfaxi - 01.02.1927, Síða 20
20
SKINFAXI
finna skyldur sínar við prastaskóg. Enginn úr félag-
inu hafði nokkru sinni komið i prastaskóg og vissu
eigi fyr en á stofnfundi sambandsins að liann var til,
en af því hann var eign þeirra sem annara ungmenna-
f Jaga, vildu þeir sýna viðleitni sina til að gera hann
frægan garð ungmennafélaganna. þvi miður hefir þetta
félag nú sagt sig úr sambandinu og mun baráttan við
vínnautn félaganna vera eina orsök þess, en við vonum
að þetta áhugamikla og afkastasama félag komi bráð-
lega aftur í sam'bandið og vinni sigur á örðugleikum
sínum.
U. M. F. Afturelding er félag, sem stendur á göml-
um merg (stofnað 1908) og hefir mörgum ágætum
kröftum á að skipa til starfa, má þar sérstaklega nefna
Grafarholtssystldnin, sem starfað hafa i félaginu frá
stofnun þess. Að tilhlutun félagsins var í fyrra haldin
mjög myndarleg iðnsýning fyrir hreppinn og unnu
félagarnir að henni að öllu leyti sjálfir. Var sýning
þessi oi)in í viku og var vel sótt, enda var þar margt
að sjá, er aðdáun vakti. — Félagið hefir lánað hreppn-
um allstóra peningaupphæð til að hyggja samkomu-
hús og skólahús og hefir svo afnotarétt af því eftir
þörfum. í fyrra gaf félagið 30 dagsverk til að laga og
bæta landið umhverfis liúsið, einnig gaf það 50 krónur
til þrastaskógar og sömu upphæð í ár. Ef öll félög í
sambandi U. M. F. í. gæfu þannig á hverju ári, þó
minni upphæð væri, yrði það sá stofn, sem nægja
mundi til að framkvæma þær umbætur, sem skóginum
eru nauðsynlegar til að geta þroskast og verja hann
skemdum af völdum manna og dýra. Félagið fæst ekki
sjálft við trjárækt, en vegna áhrifa frá þvi eiga nú flest-
ir félagarnir vísi að garði við heimili sín. íþróttastarf-
semi hefir verið nokkur í félaginu undanfarin ár og
hefir það lialdið iþróttamót með U. M. F. Dreng í Kjós,
sitt árið hjá hvoru félagi, einnig hefir það tekið þátt í
viðavangshlaupi því, sem háð er hér fyrsta sumardag