Skinfaxi - 01.02.1927, Qupperneq 28
28
SKINFAXI
ar, því að frá þeim er aldan runnin, og víst ætti að vera
hægt að fá umsögn þeirra,sem mest störfuðu fyrir fjórð-
ungasamböndin og U. M. F. í. Skýrslur og þinggerðir
þær, sem til eru, geta komið að góðu liði, en þó þarf
meira með. Hvert félag á iandinu ætti að velja sinn
færasta mann til þess að rita sögu þess, og með línum
þessum vill Skinfaxi skora á öll félög innan U. M. F. í.
að gera þetta í vetur og senda sögu sína til ritstjóra
l)laðsins fyrir næstu áramót.
Ef svo illa kynni að fara, að eitthvert félag brygðist
trausti því, sem liér er borið til þess, þá getur það varla
búist við að þess verði minst í hinu væntanlega riti.
Færi svo, að mörg félög trössuðu þetta verk, verður
hæpið að ritið geti komið út á réttum tíma, en það mun
óþarfi að gera ráð fyrir öðru en félögin bregðist vel við
þessu máli, því að hér virðist vera um ánægjulegt og
kostnaðarlitið verk að ræða, sem mjög snertir gagn og
lieiður allra ungmannafélaga.
G. B.
Bréf
til ungmennafélaga í Borgarfjarðar- og Mýrasýslu.
I haust vildi það sorglega siys til, að tveir ungir og
efnilegir menn druknuðu við vinnu í héraði ykkar, af
þvi þeir kunnu ekki að synda. priðji maðurinn, sem
lenti líka í hættunni, bjargaði sér í land á sundi.
Fyrir nokkrum árum druknuðu 12 ungir menn i
besta veðri.á Vesturlandi. Ef þeir liefðu kunnað að
synda mundu þcir allir hafa bjargast.
Slík atvik koma fyrir árlega. Sundíþróttin er nauð-
synleg hverjum íslendingi, bæði til almennrar heilsu-
bótar, og til varnar gegn slysum.
Veðuráttan hér á landi er mikill þröskuldur í vegi
sundnámsins og sundiðkunar. Sjórinn er kaldur, svo