Skinfaxi - 01.12.1945, Side 3
SIÍINFAXI
75
son og Guðmundur Hjaltason, báðir frábærir liug-
sjóna og vakningarmenn. Það sem Guðmundur t. d.
ritar í Skinfaxa er sígilt og í sönnum ungmennaféí-
lagsanda, þótt höfundur sé þá senn sextugur. Samt
mun ýmsum hinum yngri mönnum hafa þótt ritið
nokkuð glamurkennt og lítið um markviss átök. Jón-
as Jónsson tekur nú við ritinu og hefur ritstjórnina
með höndum í sex ár. Skinfaxi verður nú mjög fræg-
ur og er gunnfákur mikill. Enn er félagsskapurinn
við góða heilsu, en hinn stórsnjalli málflutningur
Jónasar er þó meir sólarupprás nýs stjórnmálaflokks,
Framsóknarflokksins, en að horft sé beinlínis frain
á leið ungmennafélagslireyfingarinnar.
Auðvitað hefur ekki vakað fyrir Þórhalli Bjarnar-
syni, Guðmundi Hjaltasyni né Helga Valtýssyni að
stofna nýjan stjórnmálaflokk, þótt svo tækist til,
að Framsóknarflokkurinn yrði til utan um ýmis
lielztu hugsjónamál hreyfingarinnar. Liklega hefur
slíkt heldur ekki vakað fyrir Jónasi Jónssyni í fyrstu,
og liinn ágæti samherji lians Tryggvi Þórliallsson tal-
ar um það með miklum þunga, að ungmennafélög-
in megi alls ekki skipta sér af stjórnmálum. Hann
talar um moldviðri þjóðmálanna, en svo fer, að
naumast sá í hann sjálfan fyrir svælu og reyk bar-
dagans, og mun hann þó, sem fyrr, hafa verið þeirr-
ar skoðunar, að ungmennafélögin ættu að lialda sér
utan við stjórnmál.
Þegar ungmennafélögin liafa verið við lýði í rúm
10 ár, berjast ýmsir merkustu forvígismennirnir á
orustuvelli stjórnmálanna, en hinir, sem eftir eru
i félögunum, eru hnípnir og vita varla hvort hér
skuli staðar numið eða haldið lengra. Sjálfsagt hafa
þeir verið til, sem litu þannig á málin: Framsóknar-
flokkurinn er að gera hugsjónir félagsskapar okkar
að veruleika. Nú hugsum við ekki framar né töL
um eins og börn.
6*