Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.12.1945, Page 15

Skinfaxi - 01.12.1945, Page 15
SKINFAXI 87 Sem að líkindum lætur spurðist ég snemma fyrir um það, liver maður þessi væri. Svarið var, að hann héti Magnús Stefánsson. Það var þó ekki nafnið, sem beindi minni barnslegu athygli af enn meiri krafti en áður að manninum. Það voru þær litlu upplýsingar, sem fylgdu með svarinu. Hann var skáld og birti kvæði sín undir nafninu Örn Arnarson. Mér var þá þannig farið, og er raunar enn, að mér fundust þeir menn höfði hærri en aðrir, sem skáld voru. Ekkert hlutverk þótti mér meira og dýrðlegra en þeirra. Það var þvi sizt að undra, þótt ég athug- aði Magnús af mikilli gaumgæfni, er ég mætti hon- um á gönguferðum hans. Hann var liið eina skáld, er ég þá hafði séð. Mér þótti það harla furðulegt, að hann skyldi yrkja undir öðru nafni en sínu eig- in. Þá skildi ég ekki, að það var einmitt í liinu fyllsta samræmi við manninn, lif hans allt og skoðanir lians á ljóðagerð sinni. Þegar ég fór að fara sendiferðir inn í bæinn, sá ég Magnús oft, ýmist á götunni eða i verzluninni, þar sem hann vann. Hann vann þá aðallega verzl- unarstörf, annað hvort við afgreiðslu eða á skrif- stofu. Og alltaf var sama hægðin í fasi hans og fram- göngu, sífellt sama tignarkennda róin. Hann var langt frá því að vera skrafhreyfinn við menn, og hann virtist þekkja fáa. 1 búðinni var hann jafn liæglátur og endra nær, og talaði sem minnst liann mátti. Og árin líða. Magnús lieldur áfram að vera athug- unarefni minnar barnslegu eftirtektar. Hann var á- vallt í hæfilegri fjarlægð til þess að horfa varð á hann álengdar, utan um liann var eins konar frið- lýstur hringur, sem ekki varð yfirstiginn. Hann var sú bylgjan, sem bar einna liæst í þeirri mannröst og fólksstraumi, sem fram hjá flæddi á uppvaxtar- árum minum. Og þó var liann aðeins einstakur og

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.