Skinfaxi - 01.12.1945, Síða 24
96
SKINFAXI
og vönduð, svo að þau standa enn og eru í notkun.
Hver hefur ekki verið á skemmtun í „Templaranum“
eða í „Gúttó“?
Með tilkomu ungmennafélaganna verður enn meiri
þörf fyrir samkomuhús, og ungmennafélagar ráðast
í byggingarframkvæmdir, og svo er enn í dag. Víða
á landinu er talað um, að þetta eða liitt liafi gerzt, eða
sé að gerast, i ungmennafélagshúsinu.
Um 1930 skapast svo nýtt viðhorf í þessum sam-
komuhúsmálum, því að þá er viða alvarlega farið
að hugsa um að koma upp heimavistarskólanum. Úr
ríkissjóði fæst samkvæmt lögum 50% af byggingar-
kostnaðinum. Viðkomandi sveitarfélög eiga að standa
straum af 50%, svo að félög innan hreppsins, oftast
með ungmennafélagið í broddi fylkingar, stofna til
samtaka um að leggja fram þetta tilskilda heima-
framlag. Með þessu móti byggjast allir þeir heima-
vistarskólar, sem við eigum, nema einn, sem byggist
með aðstoð félagsskapar í kaupstað, vegna þarfar
kaupstaðarins á að koma hörnum í sumardvöl.
Að lokum taka þessar byggingarframkvæmdir nýtt
viðbragð með tilkomu iþróttasjóðs. Úr honum má
veita til iþróttamannvirkja, og þar sem nota má sal-
inn í samkomuhúsinu sem fimleikasal, og siðan má
byggja búningsldefa, haðklefa og áhaldageymslu, á
mannvirkið allt rétt á styi'k úr íþróttasjóði. íþrótta-
nefnd rikisins liafa borizt um 40 slíkar beiðnir, þau
5 ár, sem hún hefur starfað.
Nú er verið að byggja 3 heimavistarskóla, og 2
þeirra hafa íþrótta- og samkomusal. 1 3 þorpum er
verið að byggja samkomuhús, sem liafa iþróttaað-
stöðu. Bygging þriggja samkomu- og iþróttahúsa
stendur yfir á 3 stöðum til sveita. Margar þeirra
beiðna, sem íþróttasjóði hafa borizt, eru varðandi
lagfæringu á viðbyggingu, eða til þess að ljúka við
gömul samkomuhús. Þau hús, sem orðin eru 40 ára