Skinfaxi - 01.12.1945, Side 32
104
SKINFAXl
Félög þessi vinna að: samgleði, lieimilisiðnaði, söng,
leildist, fræðslu með lestri bóka, fyrirlestrum, náms-
flokkastarfi eða kvikmyndasýningum, bættri vinnu-
aðstöðu, bættri lífsafkomu, bættu öryggi á heimili og
vinnustað, íþróttaiðkunum, auknum hollustuháttum,
böðum, æfingum i að færa skoðanir sínar i orð og
m. fk, því að alltaf er nóg til af verkefnum.
Þessi fjölmörgu verkefni verður að bafa í huga,
þegar reisa á félagabeimili. Félagaheimili þarf að
hafa innan sinna veggja þessi lierbergi:
I. Forstofa og anddyri. I sambandi við anddyri
miðasölu, fatageymslu, salerni, snyrtiherbergi.
Til sveita þurfa fatageymslur að vera tvær, og
rúmgóðar, svo að fólk, sem kemur langt að, geti
baft fataskii)ti.
II. Eldhás og veitingastofa. 1 sambandi við eldhús
búr eða framreiðsluherbergi. Veitingastofan er
notuð til smærri funda og þarf þvi að bafa sér-
hitun, með kola- eða olíuofni, ef ekki er laugar-
eða rafbitun í húsinu.
III. Bókasafnsgeymsla, lesstofa og handavinmistofa.
Bókasafnsgejunsla og lesstofa getur verið eitt
og hið sama herbergi eða þá að lesstofa, veitinga-
stofa og fundaherbergi er eitt og sama lierbergið.
Handavinnustofan eða -stofurnar verður að vera
öllu öðru óháð, vegna vinnuborða, tækja á
veggjum, rennibekkja, spunavéla, sögunarvéla
og fleiri tækja á gólfi.
IV. Ilerbergi eða geymslur fyrir muni félaganna.
Hvert félag, sem til liússins legði fé eða vinnu,
þyrfti að eiga sér gejunslu eða herbergi, þar sem
félagastjórnir gætu baldið fundi eða starfsmað-
ur félags starfað, þó að fundir, námsskeið eða
skemmtanir fari fram í húsinu. Einnig á hvert
félag einhverjar séreignir, svo sem myndir og