Skinfaxi - 01.12.1945, Side 36
108
SKINFAXI
samanber þær áætlanir, sem fram liafa komið í
Reykjavík um byggingu æskulýðshallar.
IV.
Um þrjár stærðir félagaheimila er aðallega að ræða
hér á landi. Birtast hér myndir og lýsingar af þess-
um húsum. Því miður voru ekki tilhúnar fleiri fyrir-
myndir, en síðar gefst vonandi tækifæri til þess að
lnrta myndir af hentugum félagaheimilum.
V.
í undanförnum köflum liefi ég leitazt við að sýna
fram á þörfina fyrir byggingu vandaðra félagaheimila,
til þess að hægt sé að skapa farsælt sam-menningar-
líf hins starfandi fólks — starfsemi, sem yrði áfram-
liald af menningarstarfi skólanna. Ég hefi einnig lýst
því, hvaða vistarverur þurfa að vera í slíku félaga-
heimili. 1 eftirfarandi köflum mun ég leitast við að
lýsa því, hvernig með samtökum megi reisa slík fé-
lagaheimili, hvernig rekstri þeirra þurfi að koma fyr-
ir og hvernig slík félagaheimili njóta stuðnings hins
opinbera í Svíþjóð og Danmörku.
VI.
Ég hefi hér á undan nefnt þau félög, sem til eru í
flestum hyggðarlögum. Sama fólkið er meðlimir i
fleiri en einu félagi, svo að ekki er heint liægt að
reikna átakamöguleikana eftir félagafjöldanum, eða
fjölda virkra félagsmanna, heldur eftir íhúafjölda
hyggðarinnar og félagslegum þroska. Sé byggðin af-
skekkt eða einangruð, getur komið til mála að hyggja
félgaheimili og skóla undir sama þaki, en til þessa
þarf samþykki fræðslumálastjórnar. Ef skólinn á að
vera heimangönguskóli fæst % kostnaðar í slyrk, en
sé skólinn með heimavist fæst % kostnaður í styrk, en
verði tillögur milliþinganefndar að lögum, þá fæst