Skinfaxi - 01.12.1945, Síða 56
128
SKINFAXI
3000 ni. hlaup: Jón A. Jónsson (í. Þ.) 9:59.0 mín.
Þar sem mótið var af sérstökum ástæðum haldið á virkum
degi, var aðsókn minni en ella.
Héraðsmót U.M.S. Norður-Þingeyinga
var haldið í Ásbyrgi 8. júlí.
Sr. Friðrik A. Friðriksson, Iiúsavík, flutti guðsþjónustu,
en Júlíus Hafstein, sýslumaður, Helgi Valtýsson, kennari, og
Einar Kristjánsson, Hermundarfelli, fluttu ræður. Lúðrasveit
Akureyrar lék og Iíarlakór Núpsveitunga söng.
Fimm Umf. tóku þátt í íþróttakeppninni. Umf. Öxfirðinga
vann mótið, og er það i 3ja skipti í röð, sem það vinnur
mótið. Flest stig lilaut Friðrik Jónsson (Umf. Öxfirðinga).
Úrslit urðu:
100 m. hilaup: Friðrik Jónsson (Öx.) 12.1 sek. Hann vann
einnig langstökk (5.68 m.).
800 m. hlaup: Egill Stefánsson (Umf. Langanes) 2.20 min.
Þrístökk: Björn Guðmundsson (Umf. Neista) 12.20 m.
Hástökk: Stefán Bogason (Umf. Langnesinga) 1.60 m.
Veður var hið ákjósanlegasta, og mótið mjög fjölsótt.
Héraðsmót U.f. Austurlands
var haldið á Eiðuni dagana 4. og 5. ágúst. Fyrri daginn fóru
undanrásir fram.
Sr. Árni Sigurðsson, fríkirkjuprestur, flutti ræðu og Þór-
arinn Þórarinsson, skólastjóri og Ármann Halldórsson, kenn-
ari, lásu upp. Blandaður kór frá Norðfirði söng, undir stjórn
Magnúsar Guðmundssonar, kennara. Sr. Árni Siguðsson og
Þórarinn Þórarinsson sungu tvísöng (Glunterna).
Alls tóku 35 þátt í íþróttakeppninni.
Úrslit urðu:
100 m. hlaup: Guttormur Þormar (Umf. Fljótsdæla) 11.7
sek. Hann vann einnig þrístökk (13.47 m.).
800 m. hilaup: Jón Andrésson (Umf. Borgarfjarðar) 2:16.2
min. Hann vann einnig 3000 m. hlaup (9:56.2 mín.).
Langstökk: Ólafur Ólafsson (Iluginn, Seyðisf.) 6.47 m.
Hástökk: Eyþór Magnússon (Umf. Hróar) 1.65 m.
Stangarstökk: Björn Magnússon (Umf. Hróar) 3.09 m.
Kúluvarp: Snorri Jónsson (Þróttur, Neskaupst.) 11.72 m.
Kringlukast: Steinþór Magnússon (Samvirkjafélag, Eiðaþing-
há) 34.75 m.
Spjótkast: Jón Bjarnason (Er.) 53.00 m.