Skinfaxi - 01.12.1945, Qupperneq 64
SKINFAXI
13(5'
í Ásunum umhverfis Eiða teygir sig ungviði úr moldu.
I>að er gróður jarðarinnar. Innan skólaveggjanna eru einnig
unnin gróðurstörf. Það er rœktun andans. Að slikum gróður-
störfum vill Ungmenna- og íþróttasamband Austurlands vinna.
Verði gróður lands og lýðs sem mestur og fegurstur. Vinn-
um að þvi öll.
Félagsmál.
Frá héraðssaniböndunum.
A árinu gengu tvö héraðssambönd í U.M.F. í.: Ungmenna- og
íþóttasamband Vestur-Barðastrandasýslu, er telur 4 félög og
252 félagsmenn. Formaður er Albert Guðmundsson, Sveinseyri
í Tálknafirði. íþróttasamband Strandarsýslu, er telur 6 félög
og 241 félagsmann. Formaður er Ingimundur Ingimundar-
son, Svanshóli i Kaldananeshreppi. í árslok 1944 voru 176
félög í U.M.F.Í., með um 10 þúsund félagsmönnum. Skiptast
þau í 16 héaðssambönd. Iiafði félögum fjölgað á árinu um 18
og félagsmönnum um 1352.
Þessar hreytingar hafa orðið á formönnum héraðssamband-
anna: Halldór Kristjánsson, Kirkjubóli, er formaður Ung-
mennasambands Vestfjarða. Sr. Pétur Ingjaldsson, Höskulds-
stöðum, er formaður Ungmennasambands Austur-Ilúnavatns-
sýslu. Guðmundur Benediktsson, Breiðabóli Svalbarðsströnd,
er formaður Ungmennasambands Eyjafjarðar. Jón Sigurðsson,
Arnarvatni, er formaður Héraðssambands Suður-Þingeyjinga.
Mörg héraðssamböndin vinna að héraðs-íþróttavelli og njóta
tiJ þess stuðnings íþróttasjóðs. Þau taka íþróttakennsluna meir
í sínap hendur með hverju árinu sem líður, og ráða í þjónustu
sina héraðskennara. Héraðamótanna er getið annars staðar.
Sambandsráðsfundur U.M.F.Í.
Sambandsráðsfundur Ungmennafélags íslands (þ. e. hér-
aðsstjórar og stjórn U.M.F.Í.) var haldinn í Reykjavík, dag-
ana 8. og 9. september síðastliðinn. Þessar ályktanir voru
gerðar:
Samþykkl að halda landsmótið í byrjun júlímánaðar næsta
vor, helzt að Laugum i Þingeyjarsýslu. Sérstök mótsnefnd
verður kjörin af U.M.F.Í. og Héraðssambandi Suður-Þingeyinga.
Teknar voru fullnaðarákvarðanir um iþróttagreinar á mót-
inu. Eru þær birtar i þessu hefti Skinfaxa.