Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.12.1945, Page 65

Skinfaxi - 01.12.1945, Page 65
SKINFAXI 137 í tilefni af 40 ára afmæli ungmennafélaganna á næsta ári var samþykkt að bjóða fulltrúum frá ungmennafélögunum í Fæeyjum og Noregi á landsmótiS og sambandsþingiS, sem haldið verður jafnframt mótinu. Ungmennafélagi Færeyja var sent kveðjuskeyti og færeyska málstaðnum óskað sigurs í sjálfstæðisbaráttunni. Víttar voru tilefnislausar ádeilur í blaðagreinum á ritara U.M.F.Í., Daníel Ágústínusson, varðandi málefni ungmennafé- laganna og lionum þökkuð mikilsverð og vel unnin störf i þágu þeirra. Rædd voru og gerðar ályktanir um ýmis önnur starfsmál U. M.F.Í. Allar þessar samþykktir voru gerðar einróma. Im bækiii'. i. Ólafur Jóhann Sigurðsson hefur sent frá sér nýtt smásagna- safn, er hann nefnir Teningt í tafíi. Mun þetta vera sjöunda bók þessa unga rithöfundar, og eru i henni tíu; sögur. — Vegna þess, að mig minnir, að sumt af frumsmiðum höf. hafi á sinum iíma birzt í Skinfaxa, þykir mér hlýða að geta þessarra smá- sagna að nokkru. Bólc þessi ber það óhikað með sér, að hún er skrifuð af rit- höfundi, sem þegar hefur náð miklum þroslca. Það er jafnan ríkt í huga lesandans, að höf. er leitandi í list sinni, en fálmar ckki um viðfangsefnin með reikulli hugsun og fumandi fingr- um. Hér gætir miklu síður áhrifa frá innleridum ogi erlendum höfundum en í fyrri bókum hans. Hygg eg, að þetta smásagna- safn sé persónulegra en nolckur önnur bók hans, yfir sögun- um hvílir sérstæður blær, svo að vart myndi neinum bland- ast liugur um, að þær væru allar slcrifaðar af einum og sama manni. Það er einmitt þessi persónulegi heildarsvipur, sem gerir bókina svo merka og skemmtilega, þvi að þótt sjálfsagt sé og næsta eðlilegt, að áhrifa gæti frá öðrum hjá ungum höf- undum, og reyndar þeim eldri líka, hefur samt enginn rithöfund- ur náð miklum þroska fyrr en hver ný bók frá hans hendi sver sig ótvírætt og skilyrðislaust i ætt til hans sjálfs, og einskis annars. 10

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.