Skinfaxi - 01.04.1951, Síða 5
SIÍINFAXI
5
og þjóðlegum ávöxtum alls liins bezta úr kjarngróðri
liðinna alda.
Vér skulum vona og reyndar vera þess örugglega
vís, að æskulýðurinn, sem nú tekur við hinum dýrsta
grip, heilögum arfi forfeðranna, sem fenginn er fyrir
þrotlausa elju og fórnfúst starf, ávaxti hann og efli á
hverja lund, og tengi þannig saman glæsta fortíð og
gifturíka framtíð.
Óteljandi verkefni kalla ungmennafélög og önnur
æskidýðssamtök til þróttmeira og fyllra starfs. Þess-
ir aðilar, sem forustuna taka um framtiðarstarfið, eiga
sem fyrst að fylkja liði vel og skipulega til þeirrar hild-
ar, sem háð verður á hinum haslaða velli lífsbaráttunn-
ar. Þeir hafa hin beztu voim og allur aðbúnaður er
hinn sæmilegasti. Sálarþrekið skal hert í al'li þekking-
ar og sannra mennta. Þol líkamans treyst með skynsam-
legum lifnaðarháttum og þá m.a. ástundan hollra i-
þrótta, svo að þróttur til átaka og manndómur bogni
ekki í sviptibyljum hildarleiksins. I samstarfi við aðra
skal hver og einn temja sér grandvara og drengilega
umgengnishætti, svo að kraftarnir dreifist sem minnst
og hið sameiginlega átak megi verða sem drýgst. Allt
þetta skal gert í því skyni, að fæstir bregðist á þeim
stundum, þegar ættjörðin væntir þess, að hver maður
geri skyldu sína, og hún þarfnast alls hins sterkasta,
sem vaxa má á kynstofni hennar.