Skinfaxi - 01.04.1951, Blaðsíða 9
SKINFAXI
9
Stórahraun.
inum, og þangað, sem helzt er þéttbýli, nema ferðir
séu skipulagðar til afskekktari staða.
Þeir bræður höfðu orðið að bíða alllengi, því bæði
var það, að seinna féll af fjörunum en ráð var fyrir
gert, og komust sumir ekki leiðar sinnar fyrr en út féll,
og svo var ekki reiknað með hinni íslenzku gestrisni.
En þegar að Stórahrauni kom, voru borð fram sett og
matur til reiðu handa þeim, sem langt voru að komnir
og ekki höfðu neytt morgunverðar, en kaffi og kökur
handa hinum, sem ekki vildu matinn þýðast. Fór í
þetta nokkur tími fyrir nær 40 manns, enda þótt rösk-
lega væri að gengið framreiðslu og matartekju.
Á Stórahrauni búa nú þrjú systkini með móður sinni
aldraðri, flutt þangað fyrir eigi alllöngu innan af
Skógarströnd. En þarna hefur verið risnuheimili svo
lengi sem núlifandi menn muna, og lítur út fyrir, að
sú risna ætli ekki að deyja út hjá þeim búendum, sem
nú eru þar.