Skinfaxi - 01.04.1951, Blaðsíða 35
SIÍINFAXI
35
Hætt er við, að mörgum manni liafi þótt sundin þröng eða
því nær lokuð þjóð vorri til bjargar. Jónas Hallgrímsson kvað:
„Hörðum höndum
vinnur liölda kind
ár og eindaga,
Siglir særokinn,
sólbitinn slær,
stjörnuskininn stritar.“
En þegar neyðin er stærst, er hjálpin næst. Þcssu var ekki
aðeins svona varið hér á íslandi. Kúgun og harðrétti var hlut-
skipti alþýðu allra landa á þeirri tíð. En víða erlendis voru
kjörin miklu misjafnari en hér, allt frá fullkominni þrælkun
til konungdóms.
Oft leynist neisti í öskunni og getur á stundum kveikt stórt
bál.
Á æskuárum Jóns forseta kviknaði frelsishreyfing í Frakk-
landi, sem breiddist fljótlega út um öll lönd og náði hún
hámarki sinu í byltingunni 1837. Einmitt um það leyti var
Jón við nám í Kaupmannahöfn og greip frelsishugsjónin fijót-
lega hug hans allan. Hætti hann þá fljótlega námi og helg-
aði stjórnmálabaráttunni hug sinn og starf að mestu leyti,
Þritugur að aldri hóf hann útgáfu Nýrra félagsrita. Upp frá
þvi, og á meðan ævi lians entist, var hann von íslands og
vöxtur, því hann var sverð þess og skjöldur.
Ég ætla ekki að rekja sögu Jóns forseta, þjóðhetju okkar,
hún er öllum svo kunn, að það er óþarft. Ég vildi aðeins vekja
atliygli á þeim kröppu kjörum, sem þjáðu islenzku þjóðina á
fæðingar og vaxtarárum hans.
Þá voru margir örvona um, að úr greiddist vandræðunum,
en fyrir bjartsýni og stórhug Jóns, samfara fórnfúsri baráttu
hans fyrir heill íslenzku þjóðarinnar, öðlaðist fólkið á ný
trúna á landið og framtíðina.
Og sama liugsjón helgaði baráttu þeirra manna, sem tóku
við af Jóni og börðust við konungdóminn og einræðið, unz
fullur sigur var fenginn.Ekki aðeins að einokun væri aflétt
og Alþingi endurreist, heldur og Iýðveldi stofnað á íslandi.
Við hyllum það sex ára afmælisbarn í dag. Og hvernig er
þá umhorfs í þjóðlífinu?
Við höfum fengið innlenda verzlun og fullt verzlunarfrelsi.
Við höfum fengið Alþingi og innlenda landsstjórn. Erum við
ánægð nú?
3*