Skinfaxi - 01.04.1951, Blaðsíða 30
30
SKINFAXI
Stig fyrir að snúa við (gildran): 20 stig fær sá, sem ekur um
gildruna, án þess að snerta nokkurn plankanna, 10 stig fæst,
þó planki sé snertur einu sinni, 5 stig ef komig er við tvisv-
ar. 0 stig fær sá, sem sncrtir þrisvar eða oftar.
Stig fyrir akstur: Dómarar meta aksturinn. Hæsta mögulega
stigagjöf 20 stig. Við mat skulu þeir leggja til grundvallar:
ónauðsynlega stöðvun, of snögga stöðvun, rykkjóttan akstur
við viðbragð, slæma „gira“-skiptingu, of hraðan eða óhæfan
gang vélar, o. s. frv.
Samkvæmt þessu er hægt að fú liæst 100 stig.
Dómarar og eftirlitsmenn:
1. Fæst 3 tímaverðir.
2. Eftirlitsmaður með hliðum (situr í kerrunni).
3. ---- með planka (3). Hann segir ökumanni,
livort honum liefur tekizt tilraun, eða verði að gera nýja
tilraun.
4. Eftirlitsmaður við gildru.
5. Stig fyrir mat á akstri annast 2 dómarar, sem sitja í kerr-
unni.
6. Ritarar.
7. Yfirdómari.
Þeir, sem eru vanir íþróttakeppni, munu fljótt taka eftir
þvi, að í framsetningu reglnanna gætir nokkurrar ónákvæmni,
t. d. er ekkert tekið fram um lengd eða breidd plankans, sem
bakkað er eftir, né kveðið á um fjarlægðir milli hliða og strika,
Það er sýnilegt, að í þessu gætir frjálsræðis. Eins er ekkert á-
kveðið um Iengd brautar, en af fyrirmynd þeirri, sem ég
hafði að myndinni, má sjá, að þar er miðað við braut í kring-