Skinfaxi - 01.04.1951, Blaðsíða 48
48
SKINFAXI
anum og þeim síðasta, sem er skrá yfir norrænar bækur um
æskulýðsmál, fjallar hún öll um ungmennafélögin í Norcgi,
Finnlandi, Svíþjóð og fslandi. Höfundurinn hefur dvalið með-
al þeirra allra og kynnzt störfum þeirra af eigin raun. Hann
rekur stefnu félaganna á hverjum stað og starfshætti þeirra.
Segir frá ýmsum mótum og sérstökum þáttum, sem helzt ein-
kenna störf félaganna. Bókin er mjög skemmtilega skrifuð
og frásögnin öll með afbrigðum ljós og lifandi. Þar finnst
mér eftirminnilegasti kaflinn um norsku Umf. á striðsárun-
um, hvernig þau brugðust við yfirgangi nazistanna og hver
spor þeir skildu eftir í samkomuhúsum og öðrum starfs-
stöðvum Umf.
Hér verða ekki tök á að rekja efni bókarinnar, sem þó
væri freistandi og gæti orðið mörgum Umf. hollur lærdóm-
ur. Hins vegar væri æskilegt að hún gæti komið út í islenzkri
þýðingu og þannig orðið eign íslenzkra Umf. Það væri þeim
áreiðanlega liinn mesti fengur.
Bók þessi fæst hjá U.M.F.Í. og kostar kr. 20.00.
D. Á.
Stjórn U.M.F.f.
heitir á alla ungmennafélaga að bregðast vel við þátttöku
í hinni samnorrænu sundkeppni og að hvert ungmenna-
félag taki undirbúninginn heima á sínu félagssvæði föst-
um tökum.
Takist þátttakan ve(l vinnum við þjóðfélaginu þarft
verk, því til vegs og hollustu.
fslandi allt!
SKINFAXI
Útgefandi: Sambandsstjórn Ungennafélaga íslands.
Pósthólf 406 — Reykjavík
Afgreiðsla: Edduhúsinu, Reykjavík, efstu hæð.
Ritstjóri: Stefán Júlíusson,
Brekkugötu 22, Hafnarfirði.
FÉLAGSPRENTEMIÐJAN H. F.