Skinfaxi - 01.04.1951, Blaðsíða 42
42
SKINFAXI
Helgi Einarsson frá Umf. Biskupstungna, 363 stig. 12. Sig-
urður Guðmundsson frá Umf. Selfoss, 302. stig.
Mótið var fjölmennt og ríkir mjög mikill áhugi í héraðinu
fyrir glímunni, enda hafa um langt skeið komið þaðan beztu
glímumenn þessa lands.
Leikstarfsemi Umf.
Að vetrinum er leikritaflutningur algengt viðfangsefni Umf.
víðsvegar um land. Er þetta mikilvægur þáttur í skemmtana-
lifi fólksins. Venjulegast eru þetta smáþættir, enda er aðstaða
yfirleitt ekki til sýningar á hinurn stærri sjónleikjum, hvorki
leiksviðsbúnaður né nógu margir leikendur, sem þátt geta
tekið í æfingum iangan tima.
í vetur hafa þó nokkur Umf. á Suðurlandi ráðizt í stór
leikrit, sýnt þau oft heima og ferðast með þau um héraðið
við ágætar undirtektir. Eitt af þeim er Umf. Baldur í Hraun-
gerðishreppi. Sýndi það „AImannaróm“ eftir Stein Sigurðs-
son. Þótti leikurinn takast ágætlega og lilaut liann mikla að-
sókn. Eftirfarandi myndir eru úr leiknum:
Atriði úr síðasta þætti undir leikslok. Talið frá vinstri: Doktor
Hansen (Gunnar Halldórsson), Þóra vatnsburðarkerling (Vil-
horg Þórarinsdóttir), Tómas vélstjóri (Einar Guðmundsson),
Þorlákur (Gísli Guðjónsson), Halla (Stefanía Pálsdóttir), Jafet
næturvörður (Siginundur Ámundason), Gunnar stúdent (Ivrist-
inn Helgason), og Sigrún (Sigríður Guðjónsdóttir).